SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Síða 34
E
inar Margeir Krist-
insson og Darri Ey-
þórsson stofnuðu
saman nýsköpunar-
fyrirtækið Úr sveitinni á þessu
ári og nú hafa fyrstu vörurnar
litið dagsins ljós, fjórar tegundir
af gómsætum grillsósum. Uppi-
staðan í sósugerðinni eru tóm-
atar, sem annars hefði verið
hent, en félagarnir hafa það
markmið „að nýta betur ís-
lenskar afurðir á innlendan
markað með heilnæmi að leið-
arljósi“. Framleiðslan hefur
verið í samstarfi við Matís, Mat-
arsmiðjuna á Flúðum og Þorleif
Jóhannesson bónda á Hver-
bakka II.
Strákarnir hafa verið vinir frá
því þeir kynntust í námi í Verzl-
unarskóla Íslands og hafa báðir
starfað í matvælaiðnaðinum en
þó á mjög ólíkum stöðum.
Eldamennska og efnafræði
„Ég var tíu ár í verslunarbrans-
anum, var verslunarstjóri í Bón-
us á Seltjarnarnesi og hef unnið
hjá heildsölufyrirtækjum,“ segir
Darri sem söðlaði síðan um en
hann útskrifaðist með BS-gráðu
í efnaverkfræði frá Háskóla Ís-
lands í vor, sem kemur sér vel í
sósugerðinni.
Einar er hins vegar úr veit-
ingabransanum, eins og hann
segir. Hann hefur m.a. eldað í
stóru mötuneyti og veislueld-
húsi og starfaði á Hótel Glym í
Hvalfirði í tíu ár, vann sig upp
úr því að bera fram matinn í að
elda hann.
Einar hefur því reynslu af
eldamennsku á meðan Darri
mælir hitastigið og gerir
efnafræðitilraunir á vörunni.
„Okkur hefur verið tíðrætt
um það okkar á milli í gegnum
tíðina hversu miklu er hent í
verslunum, stóreldhúsum,
heima hjá fólki, bara á öllum
stöðum í keðjunni. Okkur lang-
aði bara að finna einhverja
skemmtilega lausn á þessu og
ákváðum að byrja á tómötunum
því þeir eru fjölhæfastir í
vinnslu af því grænmeti sem er
ræktað hérna. Svo eru tóm-
atarnir líka svo góðir,“ segir
hann.
Strákarnir fóru í samstarf við
Matarsmiðjuna á Flúðum, sem
er ný tilraunaaðstaða fyrir
frumkvöðla, lítið framleiðslu-
eldhús, sem dugar fyrir fyrstu
framleiðslu. „Við verðum að
hafa vottað eldhús. Það er al-
gjörlega nauðsynlegt að svona
staðir séu til,“ segir Darri en
annars væri startkostnaðurinn
of mikill.
Ennfremur er mikill meiri-
hluti allra tómata á landinu
ræktaður á Flúðum og svæðinu
þar í kring.
Einar varð atvinnulaus um
áramótin. Hugmyndin að Úr
sveitinni kviknaði í byrjun jan-
úar og þeir eru búnir að vera að
vinna við hana síðan í febrúar og
á fullu í allt sumar en þeir fengu
styrki frá Vinnumálastofnun og
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Þeir segja ekkert þýða að
„liggja í volæði í atvinnuleysi“,
en það sé eitthvað sem bíði
margra þegar þeir klára námið.
Hugmyndavinnan nær þó
lengra aftur því þeir hafa rætt
mikið saman um vinnuna sína í
gegnum tíðina og oft velt fyrir
sér ýmsum hugmyndum.
Eru úr Dölunum
Þeir eru báðir úr sveit en þó ekki
ættaðir af grænmetisrækt-
arsvæðinu á Suðurlandi heldur
úr Dölunum. Einar er úr Búð-
ardal og Darri úr Laxárdal.
„Við erum úr sveit en ekki frá
Flúðum. Fólk horfir stundum á
okkur og spáir hvar við fengum
eiginlega þessa hugmynd. Það
býst alltaf við því að foreldrar
okkar hljóti að vera grænmet-
isbændur fyrst við ákváðum að
fara út í þetta,“ segir Einar og
Darri útskýrir nánar: „Flestir
ungir strákar í nýsköpun eru að
gera eitthvað tölvutengt. Fólk
gerir því ráð fyrir því að maður
hljóti að hafa átt ömmu sem
kunni að búa til tómatsósu og
við séum að nota uppskriftina
hennar,“ segir hann.
Þeir hafa því engan bakgrunn
í grænmetisrækt nema hvað
Einar „ræktaði gulrætur og
kartöflur“ þegar hann var yngri.
Það rækta allir kartöflur í Búð-
ardal. Það var frí á fótboltaæf-
ingum þegar það var verið að
setja niður kartöflur á vorin.“
Úr sveitinni í sveitinni. Einar (t.v.) og
Darri skoða tómata í gróðurhúsi hjá
Þorleifi bónda á Hverabakka II.
Ljósmynd/Hrafn Garðarsson
Seiðkarlar
úr sveitinni
Félagarnir Einar Margeir Kristinsson
og Darri Eyþórsson ætla að lifa af
landsins gæðum á nýsköpunarfyrir-
tækinu Úr sveitinni, sem framleiðir
fyrsta flokks vöru úr afgangs græn-
meti.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is