SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Side 36
36 21. ágúst 2011
Í
gömlu iðnaðarhúsnæði á Selfossi
er lítill æfingarsalur fyrir tae-
kwondodeild Selfoss. Þegar
blaðamann ber að garði tekur á
móti honum brosmild fjölskylda, en í
bakgrunni er fullur salur af fólki á öll-
um aldri, sem klætt er í hvíta galla með
belti í mörgum litum. Það er að gera
sparkæfingar undir handleiðslu Daníels
Jens Péturssonar og virðist hafa gaman
að.
Taekwondo er 2000 ára gömul sjálfs-
varnar- og bardagaíþrótt frá Kóreu, þar
sem fæturnir spila stærsta hlutverkið.
Þar fara saman styrktar-, liðleika- og
þrekæfingar en íþróttin krefst mikils
sjálfsaga. Iðkendur hennar læra að bera
virðingu fyrir náunganum sem og iðk-
endum með hærri gráður. Íþróttin hef-
ur verið stunduð hérlendis frá árinu
1974, en í fyrstu var hún aðeins stund-
uð á Keflavíkurvelli undir handleiðslu
Rons Hartman. Þar æfðu bæði Banda-
ríkjamenn og Íslendingar. Síðan þá hef-
ur íþróttin náð að blómsta hérlendis en
í dag er hægt að æfa taekwondo í 16 fé-
lögum víðsvegar um landið.
Bræður með svart belti
Pétur Jensson, Bjarnheiður Ástgeirs-
dóttir og börn þeirra, Daníel Jens,
Dagný María og Davíð Arnar, eru bú-
sett á Selfossi og æfa öll taekwondo.
Daníel Jens er þjálfari taekwondodeild-
ar Selfoss en hann er tvítugur: „Ég
byrjaði að æfa taekwondo haustið 2003.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
íþróttinni og mig hefur langað til að
læra að framkvæma flókin spörk. Í dag
er ég með 2. dan eða svart belti með
tveim röndum. Davíð Arnar, yngri
bróðir minn, sem er 12 ára, byrjaði að
æfa íþróttina ári síðar og er í dag kom-
inn með svart belti með einni rönd eða
1. dan. Dagný, tvíburi Davíðs, byrjaði
að æfa árið 2007 eftir að fimleikaáhug-
inn dvínaði og er nú komin með rautt
belti (1. geup) með þremur röndum og
á því aðeins eftir að taka eitt beltapróf
til að fá svarta beltið eins og við bræð-
urnir,“ segir Daníel.
Pétur og Bjarnheiður, Heiða eins og
hún er oftast kölluð, byrjuðu að æfa
árið 2008. „Daníel skoraði á okkur að
koma að æfa árið 2006 en við sögðum
alltaf að við kæmum árið 2008 og stóð-
um við það. Við hjónin erum í dag
komin með rautt belti með tveimur
svörtum röndum (2. geup). Svo það
styttist í að öll fjölskyldan verði komin
með svarta beltið,“ segir Pétur og
glottir.
Yngsti svartbeltingur á Íslandi
Davíð Arnar er yngsti Íslendingurinn
sem ber svarta beltið í taekwondo.
„Það er frábært!“ segir hann brosandi
út að eyrum. „Ég sagði við meistara
Sigurstein þegar ég var fimm ára að ég
ætlaði að ná svarta beltinu þegar ég
yrði ellefu ára en ég var nýorðinn tólf
ára þegar ég tók beltið. Mig langar að
þakka meistara Sigursteini Snorrasyni
(6. dan), Magneu Kristínu Ómarsdóttur
konu hans, Daníel bróður mínum og
Meisam, aukaþjálfara Selfoss og þref-
öldum heimsmeistara í taekwondo,
fyrir að hjálpa mér að ná svarta belt-
inu. Það er rosalega gaman að vera
kominn með það.“
Taekwondo skiptist í tvo meginhluta,
það er poomse og sparring. Poomse er
sú hlið taekwondo þar sem einn fram-
kvæmir tæknilega hlið þess. Sparring er
aftur á móti sjálf bardagahliðin þar sem
tveir eða fleiri koma saman og berjast.
Dagný María vann Íslandsmeistaratitil á
Íslandsmótinu í poomse sem fór fram á
Akureyri síðasta haust. „Það var mikill
heiður að ná þeim árangri að komast á
pall og ótrúlega skemmtilegt,“ segir
hún. Fjölskyldan er hinsvegar sammála
um að það sé skemmtilegra í sparring
heldur en í poomse: „Það er sennilega
vegna þess að það er meiri „action“
heldur en poomse. En það er líka
skemmtilegt þegar maður hefur náð
tökum á formunum,“ segir Pétur.
Oft hlegið mikið á æfingum
Það er ekki aðeins gaman í bardaga
heldur er heilmikill félagsskapur í
íþróttinni. „Mér finnst gríðarlega gam-
an á æfingum þegar mikið af fullorðnu
Öll fjöl-
skyldan í
taekwondo
Fjölskylda á Selfossi leggur stund á taekwondo og
það styttist í að allir verði komnir með svarta
beltið. Þau eru sammála um að íþróttin styrki
þau, auk þess sem agi og festa einkenni æfing-
arnar.
Helga Mjöll Stefánsdóttir
Magnea Kristín, Bjarnheiður og Pétur í beltaprófi í Kóreu 2010.
Ljósmynd/Helga Mjöll Stefánsdóttir
Fjölskyldan ber-
fætt í grasinu í
sumarsólinni.
Bjarnheiður, Pétur, meistari
Sigursteinn, Magnea Kristín
og ásamt stórmeistarinn
Kim í Kóreu.