SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Side 38

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Side 38
B andaríski skemmtidansþátturinn So You Think You Can Dance hefur slegið í gegn og sömuleiðis þátta- stjórnandinn Cat Deeley. Deeley er tilnefnd til Emmy-verðlauna, sem besti stjórn- andi veruleikaþáttar. Verðlaunin verða veitt 18. september í Los Angeles og er Deeley eina konan sem er tilnefnd í flokknum. Hún keppir við Phil Keoghan (Amazing Race), Tom Berge- ron (Dancing with the Stars), Ryan Seacrest (American Idol) og Jeff Probst (Survivor). Flokkurinn var stofnaður fyrir Emmy- verðlaunin 2008 og hefur Probst unnið öll árin og er því á brattann að sækja fyrir Deeley og aðra tilnefnda. Starfaði sem fyrirsæta Deeley er bresk, fædd Catherine Elizabeth Deeley, hinn 23. október 1976 og er því 34 ára. Eins og áhorfendur dansþáttarins skemmtilega hafa kannski tekið eftir er hún hávaxin, 175 cm. Þegar hún var 14 ára tók hún þátt í keppni á vegum BBC-þáttarins The Clothes Show. Þar kom útsendari á vegum fyrirsætuskrifstof- unnar Storm auga á hana og fékk hún samning við skrifstofuna í kjölfarið. Þá tók hún upp nafnið Cat en það þótti þjálla og eftirminni- legra í fyrirsætuheiminum. Að skólagöngu lok- inni, þegar hún var 18 ára, varð hún fyrirsæta í fullu starfi þar til hún var 21 árs en þá fékk hún starf sem kynnir hjá tónlistarsjónvarps- stöðinni MTV í Bretlandi. Hún vann við fjölmarga þekkta þætti í Bretlandi en freistaði síðan gæfunnar vestanhafs og tók við starfi þáttastjórnanda So You Think You Can Dance árið 2006. Hún byrjaði í annarri þáttaröðinni og tók við af Lauren Sánchez, sem var ólétt. Deeley er heldur ekki alveg hætt fyr- irsætustörfunum en hún er sem stendur andlit Pantene-hársápu í Bretlandi. Finnst mikilvægt að vera í góðu sambandi við dansarana frá upphafi Deeley vildi frá upphafi eiga í góðu sam- bandi við keppendurna. „Þegar ég byrj- aði í þættinum sagði ég að ég vildi virki- lega fylgjast vel með undankeppnunum. Ég vildi ná að mynda tengsl við dans- arana frá upphafi. Ég vildi ekki að þeir myndu átta vikum síðar mæta í stúdíóið og segja: „Bíddu nú við, hver er þessi enska pía eiginlega?“ sagði hún í viðtali. Hún segir að fólk segi alltaf við hana að hún sé alveg eins í alvörunni og í sjónvarpinu. „Já, ég er alveg eins. Ég er ekki að leika einhvern annan kar- akter. Ákveðnir þættir persónuleika míns ýkjast upp því maður verður að skína í gegn í sjónvarpi en í raun er ég alveg sú sama,“ sagði hún. Deeley er að sjálfsögðu ánægð með Emmy-tilnefninguna. „Ég er svo spennt,“ sagði hún í þættinum Good Day LA. „Ég öskraði þegar ég frétti þetta. Ég var svo hissa, ég ætlaði ekki að trúa þessu. Ég hringdi í mömmu mína og hún sagði: Cat Deeley hefur slegið í gegn sem þáttastjórnandi hins vinsæla veru- leikaþáttar So You Think You Can Dance og er tilnefnd til Emmy- verðlauna fyrir vikið. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Dásamlegi dansþátta- stjórnandinn Hér er hún með samlanda sínum Nigel Lythgoe, skapara dansþáttanna vinsælu. Reuters Ljósu lokkarnir síðu eru einkenn- ismerki Cat Deeley ásamt brosinu. R euters 38 21. ágúst 2011 Þ etta var í fyrri viku. Við vorum komin vestur yfir Snæfellsnesið þegar flugstjórinn hafði yfir þessa venjubundnu rullu um stefnu, flughæð, skýjafar og hvernig vindar blésu á áfangastað. Flugið vestur á Ísafjörð var ljómandi ljúft og í blíðviðri síðsum- arsdags gátu flugmennirnir rennt sér beint niður Engidalinn, tekið langa lokastefnu og smurt sér inn á brautina. Ég kannaðist hvorki við nafn hans né flugmannsins – og flugfreyjunni þekki ég engin deili á. Og þó flýg ég alloft hér innanlands. En kannski á þetta að vera svo. Nafnleysið á víst að tryggja einhverja óhlutdrægni og fjarlægð. En fyrir vikið verður samfélag okkar leiðinlega ópersónulegt, enda þó mér þyki bráðnauð- synlegt að þekkja helstu persónur og leikendur þess. Sú var tíðin að flugið var sveipað einstökum ævintýrablæ og flugmenn voru menn sem flestir þekktu. Þannig þótti í frásögur færandi 8. nóv- ember 1980 þegar þekktasti flugstjóri þjóðarinnar kom inn til lokalend- ingar. Jóhannes R. Snorrason var að ljúka áratugalöngum ferli sínum sem atvinnuflugmaður.Lentur Jóhannes eftir síðustu lendingu sína sem flugstjóri á Flugleiðaþotu síðla árs 1980. Morgunblaðið/RAX Myndasafnið 8. nóvember 1980 Lokalending Jóhannesar Frægð og furður

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.