SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Síða 42
42 21. ágúst 2011
L
augardaginn 20. ágúst byrjaði 21. Jazzhátíð í
Reykjavík og mun hún standa í tvær vikur. Hún
er haldin á ýmsum stöðum í bænum, allt frá
Norræna húsinu til Hörpunnar. Um helgar byrj-
ar hún snemma um daginn en á virkum dögum hefst hún
yfirleitt ekki fyrr en um áttaleytið að kveldi.
Upphaf Jazzhátíðar er árið 1990, þegar Ólafur Þórð-
arson stóð fyrir samnorrænni djasshátíð. Ári síðar var
nafninu breytt í RúRek (Jazzhátíð Ríkisútvarpsins og
Reykjavíkurborgar) og þannig var hún starfrækt í nokkur
ár. Síðar var nafninu breytt í Jazzhátíð í Reykjavík og Rúv
hætti beinum afskiptum af henni þótt gott samband sé
alltaf á milli RÚV og hátíðarinnar því að sögn aðstandenda
hátíðarinnar er þar helsta vígi djassins á meðal útvarps-
stöðvanna.
Pétur Grétarsson er búinn að sjá um hátíðina í mörg
ár og aðspurður segir hann markmið hátíðarinnar að vera
með inspýtingu í djasslífið hér á landi. „Hátíðin end-
urspeglar fyrst og fremst tónlistarlífið eins og það snýr að
ákveðnum kjarna íslenskra tónlistarmanna,“ segir Pétur.
„Þeir eru líklega teljandi á fingrum annarrar handar sem
lifa á djassinum einum saman hér á landi, ef þá er að finna
yfirleitt. Það má líka segja að djass er svo órætt hugtak að
jafnvel þó einhver sé fyrst og femst djassleikari þá er
maður litlu nær um hverskonar músík hann stendur fyrir.
Á þessu gráa svæði þrífst músík mjög vel og ég held að
henni sjálfri þyki dáldið gaman að vera óskilgreinanleg.
Svona dularfull. Gæði tónlistarinnar eru klárlega í sífelldri
betrun þegar talað er um hæfileika, þjálfun og þekkingu
þeirra sem hana flytja og búa til, en svo er algerlega af-
stætt hvað er góð músík og hvað ekki. Mér kann að finn-
ast æðisgengilega flott eitthvað sem þér finnst alveg glat-
að. Í þessu felst kannski vandinn ef einhver er. Hvernig
hátíð vill maður hafa? Við erum of lítið samfélag til að vera
með einn ákveðinn afkima djassins í forgrunni. Það virð-
ist falla áheyrendum vel í geð að hafa Jazzhátíð í Reykja-
vík eins fjölbreytta og raun ber vitni og hún er vel þekkt
bæði innanlands og utan,“ segir Pétur.
En það hefur verið flökt á hátíðinni og aðspurður
hvað valdi því segir hann: „Þegar ég tók við hátíðinni
2007 var hún búin að vera á ýmsum stöðum á almanak-
inu. Vor, vetur og haust, en ekki á sumrin. Mér fannst
ástæða til að prófa sumarið og freista þess að fá til okkar
einhvern hluta þeirra fjölmörgu ferðamanna sem eru hér
á þeim tíma. 2009 ákváðum við síðan að prófa að lengja
hátíðina og hafa hana 20 daga í tilefni af 20. hátíðinni. Það
gafst ákaflega vel og góð aðsókn var allan tímann. Hins-
vegar er erfitt fyrir okkur að ná t.d. flugfélögunum að því
að styðja við hátíðina á meðan hún er á háannatíma
þeirra. Einnig er tveggja vikna hátíð erfið í markaðs-
setningu til útlanda og þess vegna höfum við hug á því að
efla Vetrarjazzdagana sem við höfum prófað undanfarin tvö
ár. Þá værum við að tala um kröftuga langa helgi með
ennþá meiri alþjóðlegum blæ. Vonandi sjá flugfélögin
ástæðu til að koma með okkur í það,“ segir Pétur.
Margir Íslendingar
Það virðast fleiri íslenskir djasslistamenn vera á hátíðinni í
ár og aðspurður hvað valdi heldur Pétur að það sé afþví að
listamennirnir séu farnir að tímasetja útgáfur sínar inná
djasshátíðina. „ADHD, Sálgæslan og Stórsveit Reykjavíkur
verða allar með útgáfutónleika á hátíðinni í ár,“ segir Pétur.
„Einnig náðum við, í samvinnu við ÚTÓN, samkomulagi
við djasshátíðina í London um að kynna íslenskan djass þar
í nóvember. Þess vegna verða opnunartónleikar okkar í
Hörpu tileinkaðir þeim hljómsveitum sem þar koma fram.
Öllum borgarbúum er boðið að vera við opnunarhátíðina.
Enginn aðgangseyrir og mikil veisla þar sem Einar Örn
Benediktsson kemur út úr djassskápnum og setur hátíðina.
Ég er annars rosalega sæll og glaður að geta loksins boðið
uppá tónleika með Mezzoforte á djasshátíð.
Píanistinn Danilo Perez er líka happafengur en menn
Djass-
geggjar-
arnir eru
mættir
Jazzhátíð í Reykjavík er hafin
og mun hún standa í heilar tvær
vikur. Margt afbragðslista-
manna mun spila víðs vegar um
bæinn, allan daginn um helgar
og öll kvöld vikunnar.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
’
...djass er
svo órætt
hugtak að
jafnvel þó ein-
hver sé fyrst og
femst djassleikari
þá er maður litlu
nær um hvers-
konar músík
hann stendur fyr-
ir. Á þessu gráa
svæði þrífst mús-
ík mjög vel og ég
held að henni
sjálfri þyki dáldið
gaman að vera
óskilgreinanleg.
Mezzoforte leikur á Jazzhátíð í Reykjavík í fyrsta sinn.
Dansk-norska söngkonan og lagasmiðurinn Elou Elan.
Lesbók