SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Síða 43
21. ágúst 2011 43
muna eftir honum úr hljómsveit Wayne Shorter á Listahátíð
2008. Hann kemur hingað með Ben Street og Adam Cruz.
Svo er spennandi að bjóða uppá tónleika sem tileinkaðir
eru tónlist Gunnars Reynis Sveinssonar, en hann er sem
kunnugt er okkar eini tónsmiður sem reyndi sig að ein-
hverju marki við hinn „Þriðja straum“ sem svo var kallaður
þegar menn blönduðu saman spunadjassi og gegnumsam-
inni tónlist. Kammerkór Suðurland og Diddú koma þar við
sögu og frumflytja með hljómsveit valda kafla úr kantötunni
„Á jörð ertu kominn“ eftir Gunnar Reyni við texta Birgis
Sigurðssonar. Einnig ætlar Ásgerður Júníusdóttir að syngja
nokkur lög Gunnars með hljómsveitinni og okkar magnaða
K Tríó opnar tónleikana með blöndu af eigin tónlist og lög-
um eftir Gunnar Reyni.
Auk stóru tónleikanna má benda á sólótónleika Skúla
Sverrissonar og dúett hans og Óskars Guðjónssonar. Dúettt-
ar Davíðs Þórs og Eyþórs Gunnarssonar annarsvegar og Ei-
vinds Aarset og Hilmars Jenssonar hinsvegar eru líka
spennandi. Dáldið dúettaþema í gangi þegar maður pælir í
því. En það verður bara fullt af spennandi hlutum að gerast á
hátíðinni,“ segir Pétur.
Franska djasstríóið The Kandinsky Effect.
Panamíski
píanóleikarinn
Danilo Perez .
Horfum til Úteyjar eystri
þar sem paradís breyttist
í glóandi víti
eins og hendi sé veifað,
þar sem ofbeldið læsti
blóðugum klóm
í stálhjarta byssumanns
og ungt fólk
hitti örlög sín fyrir
við afskræmda ásjónu
dauðans,
horfum okkur nær
til annarrar Úteyjar
-
æskuumhverfis
Sighvats hirðskálds
hins helga Ólafs
þar sem farfuglar syngja
við lyng og blóm,
þangað sem landnámsmenn
festu hug sinn
og hjarta
við heimaslóð nýja,
hefjum íslenzka fánann
í hálfa stöng
og sendum hryggð okkar
austur um höf.
Júlí ‘11
Matthías Johannessen
Noregi
blæðir
að friðsamlegt
andsvar við of-
beldi er öfl-
ugasta og hug-
rakkasta svar
sem hægt er að
veita.
Ofarlega í
huga mér er
mynd af
kristnum
presti og múslimskum imam sem
standa hlið við hlið við jarðarför eins
hinna ungu fórnarlamba ofbeldisins.
Þessari mynd hefur verið sjónvarpað
og hún hefur birst í alþjóðlegum fjöl-
miðlum. Hún hefur næstum orðið
tákn þeirrar staðfestu að byggja sjálf-
bært, umhyggjusamt og opið sam-
félag saman. Fjöldi fólks, víða að úr
heiminum, hefur sagt mér frá þeirri
gríðarlegu hvatningu sem það upp-
lifði vegna jákvæðra viðbragða
norska samfélagsins við hryðjuverk-
unum, þrátt fyrir þann sársauka sem
þau valda.
Við erum, sem kristin kirkja,
skuldbundin til að vinna saman að
réttlátum friði. Það þýðir að vinna að
opnum samfélögum þar sem fólk í
öllum hópum samfélagsins er með-
höndlað sem einstaklingar með
skyldur og réttindi og þar sem órétt-
mæt og syndug hegðun er fordæmd.
Við þurfum að huga að samvisku
okkar – um það hvað við segjum og
hvað við segjum ekki – og halda
áfram samræðunni við nágranna
okkar.
Á tímum sem þessum erum við
kölluð til að íhuga þetta grundvall-
andi gildi kristninnar: Boðið um að
elska náunga okkar. Við sjáum hve
mikilvægt það er á tímum sársauka
og dauða. Við sjáum þörfina á gagn-
kvæmu faðmlagi; faðmlagi ástar og
virðingar í samfélaginu. Við sjáum
hve mikið við þörfnumst boðorðsins
um að elska þegar við horfumst
hreinskilnislega í augu við þá miklu
áskorun sem felst í breytingum á
samfélagsmynstri vegna innflytj-
enda og vaxandi fjöltrúarlegs sam-
félags.
Hinn mannlegi harmleikur 22. júlí
er mikilvæg viðvörun fyrir okkur
öll.
Olav Fykse Tveit er norskur prestur
og framkvæmdastjóri Alkirkjuráðs-
ins, World Council of Churches. Það
eru samtök 349 kirkna í yfir 110 lönd-
um og landssvæðum um allan heim,
bæði rétttrúnaðarkirkna og fjöl-
margra ólíkra mótmælendakirkna.
Meðlimir þeirra eru samtals yfir 560
milljónir.
Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir þýddi.
Olav Fykse Tveit
É
g var í sumarfríi síðari
hluta júlí og varði því með
fjölskyldu minni, fyrrver-
andi samstarfsfólki og öðr-
um vinum í heimalandi mínu, Nor-
egi. Svo vildi til að leið mín lá til Osló
22. júlí. Þegar ég var að yfirgefa borg-
ina heyrði ég hinar hræðilegu fréttir
um fjöldamorðin í borginni og í sum-
arbúðunum á Útey.
Líkt og margir Norðmenn þekkti
ég sum fórnarlömbin og harmi slegn-
ar fjölskyldur þeirra. Meðal þeirra
sem voru myrtir í Útey var sonur
norsks embættismanns sem hafði
heimsótt mig aðeins nokkrum mán-
uðum fyrr á skrifstofu Alkirkjuráðs-
ins í Genf. Líkt og margir Norðmenn
á ég ennþá erfitt með að meðtaka að
þetta hafi raunverulega gerst.
Maðurinn sem hefur játað á sig
þetta blóðbað heldur því fram að
hann hafi verið að verja „kristna
menningu“. Hann álítur að ólíkir
„menningarheimar“ hljóti að „takast
á“. Þetta er glæpsamlega rangt hjá
honum.
Kirkjur í Noregi sendu sameig-
inlegt hirðisbréf vegna harmleiksins
22. júlí og sýna þar hver hin raun-
verulega kristna menning og hin
kristnu gildi eru. Þær vinna með og
sýna fulltrúum annarra trúarbragða
samhygð. Fólkið í Noregi hefur sýnt,
Syrgjendur minnast fórnalamba hryðjuverksins í Útey við Dómkirkjuna í Ósló.
Reuters
Olav Fykse Tveit
Hugleiðing um
harmleikinn í Noregi