SunnudagsMogginn - 28.08.2011, Síða 32

SunnudagsMogginn - 28.08.2011, Síða 32
32 28. ágúst 2011 É g er stödd í 1001 nætur ævintýri. Í höfuðborginni Sanaa í Jemen hefur tíminn stöðvast. Angan af framandi kryddjurtum liggur í loftinu, hvítlaukur, saffran, turmerik og kóríander blandast þægilega saman og þrengir sér fyrir vitin. Þetta er brún ævin- týraborg sem ilmar og virðist miklu frekar hafa verið bökuð, en byggð. Húsin minna á fagurlega gerð piparkökuhús með hvítum skreytingum í kringum glugga og dyra- stafi, marglitað gler í gluggunum, líkt og úr glassúr. Konur ganga um strætin, flestar huldar svo ekkert sést í þær nema dökk, vel máluð augun og glaðhlakkalegur glampi sést í þeim, er þær ganga framhjá. Mig grunar að um varir þeirra leiki bros, þó ég sjái það ekki. Karlmennirnir klæðast hvítum serkjum, eða einhvers konar pilsum, með þykk belti um sig miðja og íbjúgan rýting í fagurlega skreyttu slíðri, skorðaðan undir. Stærð rýtinganna er mismunandi og segir til um stöðu þeirra. Eftir því sem þeir eru stærri og skrautlegri, því meiri virðingu ber að sýna þeim. Yfir serknum klæðast þeir svo jakka og á höfðinu er vandlega vafinn vefj- arhnöttur. Alls staðar spruttu upp börn Og alls staðar eru börn. Hlaupandi koma þau og umkringja ókunnugan útlending- inn, mjóslegin og mismunandi snyrtileg, eins og barna er siður, en áberandi falleg. Óðamála fagna þau gestinum, bjóða hann velkominn og krefjast svara, hvaðan hann beri að. Takmörkuð tungumálakunnátta, á öðru máli en sínu eigin, hamlar innihalds- ríkum samræðum, en forvitnin og glað- værð þeirra vegur þar margfalt upp á móti. Hér skiptir skilningur á tungumálum ekki svo ýkja miklu máli. Ég er stödd hér sem ferðalangur, hafði lagt af stað ásamt fleirum, með óljósar hug- myndir um fólk og samfélag, grunlaus um hvað biði mín og þá upplifun sem ég myndi verða fyrir. Svo mögnuð varð hún að mér fannst sem skilningarvitin ætluðu að bregðast mér, fara á yfirsnúning og bræða hreinlega úr sér. Augun stóðu á stilkum, hugurinn neitaði að hvílast og það var ekki fyrr en nokkrum dögum eftir komuna sem ég loks örmagnaðist og náði að sofna. Værukær þjóð í vímu Tíminn hefur staðið í stað í Jemen. Það hef- ur fátt breyst í áratugi, jafnvel hundruð ára, framþróun er hæg og fátæktin gífurleg. Nágrannaþjóðir hæða Jemena og finnst lítið til þeirra koma. Atvinnuleysi er með því mesta sem gerist í heiminum og þrátt fyrir töluverðar auðlindir, eins og olíu, jarðhita, dýra steina í jörðu og góð fiskimið, er þjóð- arframleiðsla og útflutningur ekki mikill. Menntunarstig þjóðarinnar er lágt. Samtímis sætir forsetinn Ali Abdullah Saleh harðri gagnrýni og menn vilja hann burt, en hann er talinn einn af ríkustu mönnum á Arabíuskaganum. Og ef satt reynist, er það umtalsvert ríkidæmi, því menn kalla ekki allt ömmu sína í þeim efn- um í olíulöndum Arabíuskagans. En hvernig má þetta vera og hvernig stendur á því að þrátt fyrir ágæta möguleika Jemena á ýmsum sviðum, hafa þeir dregist svo aft- ur úr miðað við aðrar þjóðir í kringum sig? Jú, ástæðan er gattið og það sjá allir sem koma til landsins og dvelja þar þó um skamma hríð sé. Karlar og konur, jafnvel börn, eru sem hlekkjuð af fíkn og þrá- hyggju gagnvart þessu fyrirbæri og væru- kær situr þjóðin í gattvímu meðan hún og efnahagur hennar flýtur að feigðarósi. En hvað er gatt og hvaðan kemur það? Og hvernig getur það haldið heilli þjóð í dróma og dáleiðslu, stöðvað tímann þar svo kirfilega að halda mætti að um kóngs- ríki Þyrnirósar væri að ræða? Með gattgúlp og grænar tennur Gatt er planta upphaflega ættuð frá Eþíópíu sem breiddist út á meðal Norður – Afríku- landanna og barst til Jemen fyrir allt að 700 árum. Laufblöðin af plöntunni eru tuggin og valda örvandi áhrifum. Blóðþrýstingur og hjartsláttur eykst og neytendur segja að hugurinn fari á flug og verði frjórri. Mikið vellíðunarástand einkennir neytandann, hann verður málhreifari og finnur hvorki til svengdar né þreytu. Þjóðsagan segir, að til forna hafi músl- imar leitað í að tyggja laufblöðin í stað þess að neyta áfengis sem stríðir gegn trúar- brögðum þeirra. Einnig hafi hinir heit- trúuðu notað laufin til að halda sér vakandi við trúariðkanir og bænahald að næturlagi. Síðdegis eru flestir karlmenn á götum Sanaaborgar með gattgúlp í annarri kinn- inni og ófeimnir við að láta sjá sig þannig, á meðan konurnar halda sig alfarið innan- dyra við iðjuna. Fyrir utan gúlpinn eru þeir áberandi rauðeygðir, tennurnar grænleitar og glaðbeittir bjóða þeir gestinum rausn- arlega með sér og blása á efasemdir hans um hollustu efnisins. Fráhvörf eða timburmenn eftir neyslu gattsins telja Jemenar ekki mikil, varla merkjanleg, en hinsvegar sýna rannsóknir að afleiðingar geti bæði verið depurð og einbeitingarskortur. Borið hefur á geðsjúk- dómum hjá gattneytendum, sem eru raktir til langvarandi svefnskorts, en auk þess eru lifrar- og hjartasjúkdómar algengir. Lífið er gatt Hið virka efni gatts er Cathinone. Sameind þess er efnafræðilega skyld amfetamíni sem er þekkt á Vesturlöndum. Geymsluþol efn- isins er lítið, það brotnar fljótt niður og dvínar virkni laufblaðanna ört þegar þau þorna. Til að viðhalda rakanum í blöðunum eru þau vætt og vafin í bananahýði meðan á flutningi á markaðina stendur yfir og þar til neysla fer fram. Áður fyrr var Jemen þekkt fyrir ræktun á kaffi og frá borginni Mokka í suðvest- urhlutanum kom hið þekkta Mokkakaffi, en það er liðin tíð. Gattplönturnar þekja heilu hlíðarnar í vissum héruðum og hafa nánast útrýmt kaffiræktinni með öllu. Bændur fá mun meira fyrir uppskeruna en fyrir aðrar afurðir og fá allt upp í 2-3 upp- skerur á ári. Hinsvegar eykur gattræktun hvorki út- flutningstekjur landsins né þjóðarhag á nokkurn hátt. Laufblöðin eru viðkvæm í flutningum eins og áður hefur komið fram og því ekki ákjósanleg útflutningsvara. Auk þess sem gatt er stranglega bannað í nágrannalöndunum, til dæmis í Sádi- Arabíu og víðar. Smygl á því er vissulega þekkt, þar á meðal hér á landi, en tollverðir í Keflavík fundu töluvert magn af gatti í fyrra og tal- ið er að átt hafi að flytja það til Kanada. Þriðjungur tekna í laufblöð Á hverjum degi upp úr hádegi flytja rækt- endur uppskeruna úr héruðunum í kring á markaðina. Gattræktarhéruðin eru mis- jöfn, en rétt eins og þekkt er í vínhéruðum víða um heim, eru gæði afurðanna talin meiri frá sumum héruðum en öðrum. Helstu gæðaflokkar gattsins eru þrír og á markaðina koma menn á hverjum degi til að versla, prútta um verð og velja sér það sem þeim hugnast eða hafa efni á. Dagskammtur af gatti kostar í kringum 5 dali og er talið líklegt að meðalfjölskylda verji þriðjungi launa sinna í gatt og því er það oft látið ganga fyrir öðrum nauðsynja- vörum á heimilinu. Talið er að um 80% allra karlmanna í landinu tyggi gatt og u.þ.b. 50% kvenna. Börn byrja oft í kring- um 12 ára aldurinn að nota efnið og þá Þar sem böl- valdurinn gatt hefur stöðvað tímann Jemenskur karlmaður á markaðnum að gæða sér á gatti. Það er sem tíminn hafi staðið í stað í Jemen og hverfandi framfarir orðið síðustu áratugi eða ár- hundruð. Ein ástæðan er sú að þjóðin hefur ánetj- ast gatti, sem veldur depurð og einbeitingar- skorti, auk annarra kvilla. En hvað er þetta gatt? Kolbrá Höskuldsdóttir Jafnvel börnin tyggja gatt.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.