SunnudagsMogginn - 28.08.2011, Side 40
40 28. ágúst 2011
Lífsstíll
Þ
ar sem ég sat í stofunni á sunnudagskvöldi og
hlustaði á Hafdísi Huld syngja Sumri hallar,
hausta fer, sem hún og gerir mjög vel, þá rann
upp fyrir mér að sennilega yrði sumarið ekki
mikið lengra, svo að ég kveikti á
kertum og hellti mér upp á te þegar
það fór að rökkva úti og hugsaði að
þetta væri nú bara notalegt. Þetta
sumar hefur verið nokkuð óvenjulegt
þar sem ég hef setið við ritgerðarskrif
og það hefur oft reynst erfitt í góðu
veðri. Síðustu daga hefur mér orðið
ljóst að haustið er í raun besti tíminn
til að sinna slíkum verkum. Þá er enn
þá gott veður og hægt að fara út að
ganga eða synda til að hressa sig við.
Um leið er farið að rökkva dálítið á
kvöldin og þá finnst mér einna best
að sitja við skriftir, þegar allt er orðið rólegt úti og heil
nótt framundan til að dunda sér. Ég hefði kannski átt
að hugsa út í þetta áður en ég ákvað að klára ritgerðina
yfir hásumar en jæja.
Það er langt síðan ég hef hlakkað jafn mikið til
haustsins og hálf-fyndið hvernig maður virðist oft vilja
það sem maður hefur ekki. Fyrir tveimur árum hlakk-
aði ég mikið til að byrja í námi en nú get ég ekki beðið
eftir að ljúka því. Sumarið er gott og birtan enn betri en
haustið verður samt engu líkt. Hugsa að ég muni jafn-
vel miða líf mitt við fyrir og eftir ritgerð og lifa lengi á
því að vera búin að skrifa. Nú fer að
koma tíminn til að fara aftur í rækt-
ina eftir vinnu, gera góðar súpur og
baka brauð. Halda matarboð, spæna
upp dansgólf bæjarins og fara í sum-
arbústað. Í raun hvað það sem mann
langar til. Muna samt að hafa það
notalegt inn á milli og hringa sig upp
í sófa með góða bók undir teppi.
Gleyma sér þannig í langan tíma þar
til kvölda tekur. Á meðan mun rit-
gerðin liggja fullkláruð og innbundin
uppi í hillu alveg stillt og prúð og
hafa sig hæga. Mikið verður þetta nú
allt saman notalegt og ljúft og því bíð ég óvenju spennt
eftir komandi hausti. En svo veit maður aldrei hvað
gerist næsta haust. Kannski verður maður búinn að fá
alveg nóg af sófaleti og slæpingsskap og ákveður að
skella bara í aðra ritgerð þegar maður verður búinn að
taka smá-hlé. Enda virðist lífið jú dálítið fara í hringi
rétt eins og árstíðirnar.
Kósíheit
í ágúst
Það er víst ekki hægt að neita
því lengur að haustið er í nánd.
En því fylgja líka kósíheit og
skemmtilegar stundir.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Í góðu síðsumar eða haustveðri er um að gera að nýta veðurblíðuna til að hjóla, synda eða fara út að ganga.
Morgunblaðið/Ómar
’
Nú fer að koma
tíminn til að fara
aftur í ræktina
eftir vinnu, gera góðar
súpur og baka brauð.
Halda matarboð,
spæna upp dansgólf
bæjarins og fara í
sumarbústað.
Á haustin verður lífið rólegra þegar útilegutímanum lýk-
ur og það dregur úr flandri fólks um landið. Þá er auð-
veldara að hóa fólki saman og rétti tíminn til að halda
notaleg matarboð og spjalla um ævintýri sumarins yfir
góðum mat. Tékkaðu á uppskriftabókinni sem þig hef-
ur lengi langað að prófa spennandi rétti úr og drífðu þig
í að prófa. Næst á dagskrá hjá mér er að baka hrökk-
brauð með alls konar fræjum og fíneríi sem verður
örugglega spennandi tilraun. Svo skellir maður nú
kannski í eina köku á eftir líka – svona aðeins á móti
hollustunni.
Hætt á flandri
Hausttískan er
spennandi og oft
skemmtilegast að
kaupa sér eitt-
hvað nýtt á þess-
um árstíma í flott-
um og mjúkum
haustlitum. Nú
fyllast tískublöðin
af öllu því sem
hugurinn girnist
og tískugrein-
arnar geta gefið
okkur góðar hug-
myndir að því
hvað passi best
saman. Í haust
verða pallíettur
vinsælar og er t.d.
upplagt að fram-
lengja sumarið
dálítið með flott-
um pallíettuskóm við gallabuxur og peysu. Úti á lífinu
verður smart að vera með háa hanska og jafnvel nota
armband með til að setja punktinn yfir i-ið. Það er um
að gera að nýta fallega haustmorgna til að fá sér
brunch og kíkja svo í búðir til að skoða og máta.
Pallíettur og hanskar
Þessi er með tískuna á hreinu.
Reuters
Nú fer að koma sá tími þar sem gott er
að hafa það kósí heima fyrir og borða
eitthvað sem hlýjar manni jafnt að utan
sem innan. Rabarbarabaka með rjóma
er ljúffeng á síðsumarkvöldi. Hér kem-
ur einföld uppskrift að slíkri böku af
uppskriftavefnum simplyrecipes.com.
Fylling
1 kg af rabarbara skorinn í litla bita
1 ¼ bolli sykur
1/4 bolli hveiti
1 teskeið vanilluessens
1/4 teskeið kardimommuduft
Kurl til að setja ofan á
1 bolli hveiti
1/2 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1/2 bolli smjör
Aðferð
Byrjið á að hita ofninn í 190 gráður.
Blandið innihaldinu í fyllingunni saman
í skál og hellið í eldfast mót í hæfilegri
stærð. Notið því næst matvinnsluvél-
ina til að búa til kurlið
og dreifið því yfir fyllinguna. Loks er
að baka góðgætið í um hálftíma eða
þar til kurlið er orðið ljósbrúnt að lit og
vel bakað. Svo er bara að láta mesta
hitann rjúka úr bökunni og bera fram
með ís eða þeyttum rjóma. Það gerist
nú ekki mikið auðveldara en þetta og
útkoman er ljúffeng baka sem allir í
fjölskyldunni ættu að geta gætt sér á.
Girnileg rab-
arbarabaka
Volg rabarbarabaka með rjóma er góð í kvöldkaffið eða á laugardagsmorgni.
Morgunblaðið/Jim Smart