Morgunblaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 11
Daglegt líf 11
Fyrirtækjakeppninni Hjól-
að í vinnuna lýkur í dag
en hún hófst 5. maí síð-
astliðinn. Þátttakendur í ár
eru rúmlega níu þúsund
talsins og höfðu síðasta
föstudag hjólað vega-
lengd sem nemur því að þeir
væru búnir að fara samtals
362 hringi í kringum Íslands.
Skýrr er í flokki fyrirtækja
með 150 til 399 starfsmenn
og var þar í öðru sæti fyrir
helgi.
Allar upplýsingar um
keppnina og úrslitin í ár
má finna á vefsíðunni:
www.hjoladivinnuna.is.
HJÓLAÐ Í VINNUNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2010
Tíu heilsutengdir klúbbar
„Byrjað var með nokkur hjól
til reynslu, svo gafst þetta það vel
að það var bætt við flotann. Hvert
hjól er númerað og maður fær lykil
og lás, regnhlíf, regnslá og hjálm
með hjólinu. Svo getur maður skil-
ið það eftir hvorum megin sem er.
Hjólin eru töluvert mikið notuð og
gaman að veifa samstarfsmönnum
sínum þegar hjólað er á milli.
Sumir gerðu nú saklaust grín
að þessu í byrjun en þegar það
kom svona flottur hjólafloti fóru
menn að prófa og hjóla og þetta
svínvirkar núna. Það tekur því
ekki að starta bílnum þessa leið
enda er maður fáránlega fljótur að
hjóla.
Þetta er pínu sameiningarafl
líka, menn geta talað um þetta og
verið samferða á hjólunum. Ég sé
fram á að þetta verði vel nýtt
áfram, sérstaklega með hækkandi
sól,“ segir Erna og bætir við að
það sé gaman að vinna hjá Skýrr
og starfsmenn séu margir meðvit-
aðir um heilsuna.
„Þetta er heilsufyrirtæki, það
eru um tuttugu klúbbar innan fyr-
irtækisins og af þeim snúast tíu um
heilsu og hreyfingu. Það er hjóla-,
kajaka-, sjósunds-, hlaupa- og
fjallagönguklúbbar svo eitthvað sé
nefnt. Mötuneytið er svo heilsu-
tengt. Það eru allir rosa „fitt“ í
Skýrr,“ segir Erna og hlær.
„Hjólaklúbburinn góði sér að
sjálfsögðu um allt viðhald og við-
gerðir á fákunum ef svo ber við og
bregst við eins hratt og vindurinn
ef eitthvað bjátar á.
Það má heldur ekki gleyma
því að við höfum náð góðum ár-
angri í keppninni Hjólað í vinnuna
og því lá það beinast við að brúa
bilið á milli húsa með hjólum. Hjól-
að í vinnuna er í gangi núna og er-
um við í efstu sætunum eins og
staðan er í dag og stefnum að sjálf-
sögðu á að klára þetta og sigra.
Það er heilmikið hjólalíf í
Skýrr og margir sem hjóla í vinn-
una, jafnvel úr Mosfellsbæ, og hér
er mjög góð aðstaða til að koma
hjólandi í vinnuna.“
Koma blóðinu á hreyfingu
Erna segir að það sé mikið
lagt upp úr því að heilsan sé í góðu
lagi hjá starfsmönnum Skýrr. „Við
erum náttúrulega að vinna við tölv-
ur allan daginn og það er reynt að
koma til móts við það og koma
blóðinu í okkur á hreyfingu,“ segir
Erna en um 330 manns vinna hjá
Skýrr.
Spurð hvort hún noti mikið
hjólin sjálf til að fara á milli bygg-
inga segist hún mega vera duglegri
við það.
„Ég mætti nú alveg vera dug-
legri að nota hjólin og ég reyni að
gera það þegar ég er í húsi en ég
vinn töluvert úti í bæ. Ef ég hjóla
ekki fer ég gangandi í góðum fé-
lagsskap kollega. En það getur nú
líka verið hressandi á góðum degi
að taka auka hjólarúnt í hverfinu.“
Allir kátir Nokkrir
starfsmenn Skýrr
með hjól sem fyrir-
tækið keypti,
hjálma, regnhlíf,
slár og körfur.
Í rigningunni Erna Margrét
Arnarsdóttir tilbúin að fara
á milli bygginga á hjólinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Einn af öflugustu hjólabloggurum er
Hrönn Harðardóttir, Hjóla-Hrönn,
sem hefur lengi bloggað um hjóla-
tilveruna á hrannsa.blog.is.
Á bloggi hennar má lesa ýmsar
hugleiðingar um hvernig það er að
vera hjólreiðamaður í Reykjavík.
Hrönn er dugleg við að benda á það
sem betur má fara hjá borgaryfir-
völdum og mættu yfirmenn í sam-
göngumálum borgarinnar gjarnan
vera duglegir að lesa bloggið hennar,
bæði nýjar færslur og gamlar, hafi
þeir á annað borð áhuga á að gera
borgina betri fyrir hjólreiðamenn.
Hrönn les ekki bara borginni pist-
ilinn. Hún sér líka spaugilegu hlið-
arnar á flestum ef ekki öllum málum
og blogg hennar er því mjög
skemmtilegt aflestrar. Hrönn er að
auki ófeimin við að gagnrýna aðra
hjólreiðamenn, s.s. þá sem þekkja
ekki skil á þeim umferðarreglum sem
gilda á hjólreiðastígum.
Í nýlegri færslu fjallar Hrönn um
hvenær best er að hringja bjöllunni á
reiðhjólinu þegar farið er fram hjá
gangandi vegfarendum en flestir
hjólreiðamenn kannast við þetta
flókna vandamál. „Mér hefur ekki
fundist skipta neinu máli hvaða að-
ferð ég nota, sumu fólki bregður
hrottalega þegar skugginn minn
kemur rólega upp að því, aðrir verða
fúlir ef ég hringi bjöllunni (og trufla
fólk í samræðum) og aðrir yfir því að
hún skuli ekki hafa vera notuð,“ segir
m.a. í bjöllufærslunni.
Vefsíðan www.hrannsa.blog.is/blog/hrannsa/
Krókur „Ég held að ég geti fullyrt að enginn hjólreiðamaður með sjálfsvirðingu
taki á sig þennan krók, til að ja, ég veit ekki til hvers!“ segir Hrönn um stíginn.
Hjóla-Hrönn hringir bjöllu
Um 300 manns gengu á Hvannadals-
hnúk á laugardag í einstöku blíðviðri.
Stærsti hópurinn var frá Fjallafélag-
inu en á vegum þess voru 124 fjall-
göngumenn sem luku þar með 9.000
metra áskoruninni sem hófst í haust.
Um 80 manns klifu fjallið með Ferða-
félagi Íslands og þar að auki voru
hópar með Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum. Um næstu helgi fara
Íslenskir fjallaleiðsögumenn með yfir
100 manns á tindinn háa.
Hvannadalshnúkur heillar sem aldrei fyrr
Glaðbeittir Það er einstök tilfinning að sigra hæsta tind Íslands
Fögnuður í fjallasal
Ljósmynd/Haraldur Örn Ólafsson
SUMARHÚS OG FERÐALÖG
Gas-kæliskápar 100 og 180 lítra
Gas-hellur
Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-80w
Gas-ofnar
Gas-vatnshitarar
5 - 14 l/mín
Kælibox
gas/12v/230v
Gas-eldavélar
Sólarrafhlöður fyrir
húsbíla og fellihýsi.
Þunnar 130w
Bíldshöfði 12 •110 Reykjavík • 577 1515 • skorri.is • Opið virka daga frá kl. 8.15 til 17.30
Gas-helluborð
Gleðilegt sumar
9000 þátt-
takendur