Fréttablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 82
24. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR66
FÓTBOLTI Finnur Ólafsson gekk
í gær í raðir Fylkis frá ÍBV og
samdi við Árbæinga til næstu
þriggja ára.
Finnur ákvað að fara frá ÍBV
þar sem hann þurfti að flytja til
Reykjavíkur af fjölskylduástæð-
um. „Eyjamenn sýndu því mjög
mikinn skilning og voru jákvæðir
gagnvart því að vinna með mér í
þessu máli. Það er ástæðan fyrir
því að ég er genginn í raðir Fylk-
is,“ sagði Finnur við Fréttablaðið.
Finnur er fjórði leikmaðurinn
sem Fylkir fær til sín eftir tíma-
bilið en félagið hefur líka misst
fimm leikmenn. Þórður Gíslason,
formaður meistaraflokksráðs
karla hjá Fylki, segir að kaupin á
Finni fari því ekki illa með fjár-
hagsáætlanir félagsins.
„Alls ekki. Við misstum nokkra
menn í sumar og því þurftum við
að fylla í þeirra skörð. Það var því
svigrúm fyrir Finn í okkar áætl-
unum,“ segir Þórður.
Finnur átti eitt ár eftir af
samningi sínum við ÍBV og þurfti
því Fylkir að greiða fyrir hans
komu til félagsins. „Við þurftum að
greiða aðeins meira en stuðullinn
segir til um en í stóra samhenginu
töldum við þetta innan þeirra
marka sem við höfum sett okkur.“
Samkvæmt afreksstuðlakerfi
KSÍ er Finnur með stuðulinn 3
og því hefur lágmarksfélagsgjald
verið 300 þúsund krónur fyrir
hann. Þórður vildi þó ekki gefa
upp hversu mikið Fylkir hefði
greitt fyrir kappann.
Hann sagði annars rekstur
knattspyrnudeildarinnar ganga
ágætlega og að allir leikmenn
væru búnir að fá laun sín greidd.
„Okkur hefur gengið illa að greiða
niður skuldir frá árunum 2007 til
2008 en að öðru leyti hefur rekst-
urinn verið á áætlun og ekki útlit
fyrir annað en að svo verði einn-
ig á næsta ári,“ segir Þórður og
segir að leikmenn hafi haft skiln-
ing á því ef launagreiðslur hafi taf-
ist. „Svona mál hafa alltaf verið
rædd af yfirvegun og gengið vel að
greiða úr þeim. Staðan í dag er sú
að allir leikmenn hafa fengið laun
sín greidd.“ - esá
Finnur Ólafsson gerði í gær þriggja ára samning við Fylki í Árbænum eftir tveggja ára dvöl hjá ÍBV:
Erum ekki að yfirspenna bogann í Árbænum
Í LEIK GEGN FYLKI Finnur Ólafsson í baráttu við Andrés Má Jóhannesson, leikmann
Fylkis, í leik í Pepsi-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Breska kvennalands-
liðið í handbolta vann í gær fræk-
inn sigur á Angóla, núverandi
Afríkumeisturum. Sigurinn er
merkilegur fyrir þær sakir að
Bretland lék sinn fyrsta landsleik
í handbolta fyrir aðeins fjórum
árum síðan og hefur tekið stór-
stígum framförum síðan þá.
Angóla er einmitt með Íslandi
í riðli á HM í Brasilíu sem hefst
eftir rúma viku.
Blásið hefur verið miklu lífi
í handboltastarf Breta þar sem
Ólympíuleikarnir fara fram í
Lundúnum á næsta ári. Bretar
ætla að taka þátt í öllum íþrótt-
um, þar á meðal handbolta.
Í gær hófst æfingamót í hand-
boltahöllinni í Lundúnum sem
var reist fyrir leikana. Fjögur
lið taka þátt auk hinna tveggja;
Austurríki, Pólland, Slóvakía og
Kína. - esá
Tímamótasigur Breta:
Bretland lagði
verðandi mót-
herja Íslands
SÆTT Leikmenn Breta fögnuðu sigrinum
vel og innilega. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Í kvöld fer fram
stórslagur í Iceland Express-
deild karla þegar að Íslands- og
bikarmeistari KR tekur á móti
meistaraefnunum í Grindavík.
Leiknum verður sjónvarpað beint
á íþróttavef Vísis en hann hefst
klukkan 19.15.
Grindavík er enn ósigrað í
fyrstu tólf leikjum tímabilsins;
sex í deildinni, fimm í Lengju-
bikarkeppni karla og svo einum
í Meistarakeppni KKÍ, þar sem
þessi lið mættust. KR-ingar eru
í þriðja sæti deildarinnar og töp-
uðu síðast óvænt fyrir Þór frá
Þorlákshöfn í Lengjubikarnum nú
um helgina.
KR-Grindavík í kvöld:
Sjónvarpað
beint á Vísi
HÁSPENNA Grindavík vann KR með
flautukörfu síðast þegar liðin mættust.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Stelpurnar okkar eru
nú orðnar sextán talsins eftir
að landsliðsþjálfarinn Ágúst
Þór Jóhannsson gaf það út í gær
hvaða fjórir leikmenn verða að
sætta sig við að detta út úr HM-
hópnum á lokasprettinum en fram
undan er fyrsta heimsmeistara-
mót kvennalandsins frá upphafi.
Ágúst ákvað að skilja eftir HK-
ingana Ólöfu Kolbrúnu Ragnars-
dóttur og Brynju Magnúsdóttir
sem og þær Hildi Þorgeirsdótt-
ur og Elísabetu Gunnarsdóttur.
Áður hafði Sólveig Lára Kjærne-
sted dregið sig út úr hópnum og
einnig fyrirliðinn Rakel Dögg
Bragadóttir sem meiddist illa á
hné.
Allt valið var erfitt
„Svona val er alltaf gríðarlega
erfitt og var kannski extra erfitt
núna. Við gengum frá því seint í
gærkvöldi,“ sagði Ágúst á blaða-
mannafundi í gær en hann valdi
hópinn með góðri aðstoð frá
aðstoðarþjálfara sínum, Gústaf
Adolf Björnssyni. Liðið leggur af
stað til Brasilíu á þriðjudaginn og
mun stoppa í London og spila einn
æfingaleik við breska landsliðið.
„Þetta er búið að liggja þungt á
mér síðustu daga. Maður þarf að
vera vel undirbúinn fyrir allt. Við
Gústaf erum búnir að liggja yfir
þessu og erum sannfærðir um að
þetta sé sá hópur sem passar best
í verkefnið,“ segir Ágúst og bætir
við:
„Þetta er nú það leiðinlega við
þetta starf að þurfa að taka þessi
símtöl og skera niður hópinn,“
segir Ágúst og hann viðurkennir
að það hafi haft áhrif á valið að
missa landsliðsfyrirliðann Rakel
Dögg Bragadóttur rétt fyrir mót.
„Það breytti áherslunum í val-
inu að missa Rakel en það er bara
partur af þessu að lenda í svona
áföllum. Rakel er auðvitað frá-
bær handboltamaður og ég væri
að ljúga því ef ég segði að ég
væri ekki svekktur yfir að hafa
misst hana út og kannski ekki
síst fyrir hennar hönd. Það er
þannig í boltanum að það kemur
maður í manns stað og við erum
búnir að vera að prófa leikmenn
og hrókera til í stöðum og annað,“
segir Ágúst.
„Æfingarnar hafa verið góðar
og það er mikill hugur í liðinu og
mikil einbeiting. Það eru enn þá
tíu dagar í fyrsta leik í heims-
meistarakeppninni og við höfum
því góðan tíma og þrjá leiki fram
að því. Það er um að gera að nýta
tímann áfram vel.“
Valið á milli markvarðanna
Ágúst nefnir sérstaklega valið á
milli markvarðanna Sunnevu Ein-
arsdóttur og Ólafar Kolbrúnar
Ragnarsdóttur en það vekur
vissulega athygli að báðir mark-
verðir liðsins spila með Val.
„Markmannsstaðan var erfið
og ég viðurkenni það alveg. Mér
fannst Sunneva standa sig gríð-
arlega vel á þessum sex æfingum
fram að því að við völdum hóp-
inn. Sunneva er búin að standa
sig vel og ég var mjög ánægður
með hennar nálgun á æfingun-
um hvað varðar keppnisskap og
hugarfar. Kolla stóð sig líka mjög
vel og þær eru jafnar í getu. Það
var gríðarlega erfitt val,“ sagði
Ágúst.
Íslenska landsliðið tók þátt í
EM fyrir ári sem var fyrsta stór-
mót liðsins en náði þá ekki að
vinna leik.
„Það var góður skóli fyrir stelp-
urnar að fara á EM í fyrra, mikil
og góð reynsla. Við Íslendingar
gerum alltaf gríðarlega miklar
kröfur en við verðum samt að
horfa raunsætt á þetta. Riðill-
inn er mjög sterkur og mér fynd-
ist það stórkostlegur árangur ef
liðið kæmist upp úr riðlunum,“
segir Ágúst.
Tveir leikir við Tékka um helgina
Íslenska landsliðið spilar tvo
æfingaleiki við Tékka í Vodafone-
höllinni á morgun og á laugardag
og Ágúst ætlar að bíða með form-
lega markmiðssetningu þar til
eftir þá leiki.
„Við komum til með að gefa út
okkar markmið og það verður
ekkert feimnismál. Við ætlum
að setjast niður á sunnudaginn
eftir að við erum búin að spila
þessa Tékkaleiki og setja okkur
þá markmið fyrir riðlakeppnina.
Ég sé betur stöðuna á liðinu eftir
Tékkaleikina. Við erum að fara
inn í erfiða leiki á móti sterku
liði en það er góður undirbún-
ingur fyrir okkur og prófsteinn á
liðið og hvar við stöndum,“ segir
Ágúst. ooj@frettabladid.is
ÞAÐ LEIÐINLEGA VIÐ ÞETTA STARF
Ágúst Þór Jóhannsson kvennalandsliðsþjálfari tilkynnti í gær hvaða sextán leikmenn munu taka þátt í HM
í Brasilíu í desember sem verður fyrsta heimsmeistaramót íslensk kvennalandsliðs frá upphafi.
ÞARF AÐ VERA VEL UNDIRBÚINN Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kynnti HM-
hópinn sinn á blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HM-hópur Íslands
Markverðir
Guðný Jenný Ásmundsdóttir Valur
Sunneva Einarsdóttir Valur
Vinstri hornamenn
Ásta Birna Gunnardóttir Fram
Dagný Skúladóttir Valur
Vinstri skyttur
Harpa Sif Eyjólfsdóttir Sparvagens HF
Hrafnhildur Skúladóttir Valur
Stella Sigurðardóttir Fram
Þorgerður Anna Atladóttir Valur
Miðjumenn
Karen Knútsdóttir HSB Blomberg-Lippe
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir Valur
Hægri skyttur
Birna Berg Haraldsdóttir, Fram
Rut Arnfjörd Jónsdóttir Team Tvis Holstebro
Hægri hornamenn
Hanna Guðrún Stefánsdóttir Stjarnan
Þórey Rósa Stefánsdóttir Team Tvis
Holstebro
Línumenn
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir Valur
Arna Sif Pálsdóttir Aalborg DH
HANDBOLTI Íslenska kvennalandsliðið varð
fyrir miklu áfalli á dögunum þegar lands-
liðsfyrirliðinn Rakel Dögg Bragadóttir sleit
krossband aðeins nokkrum vikum fyrir HM í
Brasilíu. Þetta var ekki síst áfall fyrir Rakel
sjálfa en hún hefur engu að síður tekið þátt í
undirbúningi liðsins fyrir HM og hefur mætt
á allar æfingar.
Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari og
Hrafnhildur Skúladóttir, sem tekur við fyrir-
liðabandinu af henni, töluðu bæði um fram-
lag Rakelar á æfingum liðsins á blaðamanna-
fundi liðsins í gær. „Það hefur ekki verið
tekin nein ákvörðun um það hvort Rakel fari
með til Brasilíu. Hún hefur verið með á öllum
æfingunum að fylgjast með þessu hjá okkur.
Hún hefur mikla reynslu og hefur fín áhrif á
leikmenn. Rakel er mjög sterkur karakter og
sterkur persónuleiki og það er kannski ástæð-
an fyrir því að hún hefur verið fyrirliði lands-
liðsins í þetta langan tíma þrátt fyrir ungan
aldur,“ segir Ágúst.
Hrafnhildur er nú tekin við fyrirliðaband-
inu. „Þetta breytir ekki miklu fyrir mig. Ég
var varafyrirliði með Rakel og var fyrirliði
landsliðsins áður en ég átti yngri dóttur mína.
Ég var því fyrirliði landsliðsins fyrir fjórum
árum og þetta er ekki nýtt hlutverk fyrir mér.
Ég er líka fyrirliði hjá Val og líður bara ágæt-
lega í þessari stöðu. Ég hefði klárlega viljað
frekar hafa Rakel með en að vera sjálf með
bandið,“ segir Hrafnhildur en Hanna Guðrún
Stefánsdóttir verður varafyrirliði.
„Það er búið að ganga rosalega vel á æfing-
unum. Rakel hefur hjálpað okkur og er að
benda okkur á hluti. Hún er með rosalegt
auga fyrir spili og er að vissu leyti aukaþjálf-
ari. Ég veit ekki hvort hún getur farið með en
hún er með á öllum æfingum núna og er að
hjálpa til,“ segir Hrafnhildur. - óój
Rakel Dögg Bragadóttir er mikilvæg landsliðinu þótt hún geti ekki spilað og hún gæti farið með til Brasilíu:
Hefur verið að hjálpa til á öllum æfingum
RAKEL DÖGG BRAGADÓTTIR Gæti hjálpað liðinu í
Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL