Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 2
10. desember 2011 LAUGARDAGUR2
Alexía, áttu ráð undir rifi
hverju?
„Ég þarf að rifja þau upp.“
Leikkonan Alexía Björg Jóhannesdóttir
rifbeinsbrotnaði í sýningu leikhópsins
Pörupilta í Þjóðleikhúskjallaranum um
síðustu helgi.
REYKJAVÍKURBORG Friðþór Eydal,
upplýsingafulltrúi Isavia sem rekur
Reykjavíkurflugvöll, segir að óskað
hafi verið eftir því við Flugmála-
stjórn að gerðar verði breytingar
á aðflugsferlum
við flugvöllinn
svo takmarka
megi fyrirhug-
að a l æk k u n
skóg a r i n s í
Öskjuhlíð við 40
til 166 tré.
Eins og kom
fram í Frétta-
blaðinu í gær
óskaði f lug-
vallarstjórinn á Reykjavíkurflug-
velli eftir heimild borgaryfirvalda
fyrir því að tré í aðflugs- og flug-
taksstefnu við Öskjuhlíð verði
felld eða lækkuð
þar sem þau séu
vaxin upp fyrir
öryggismörk.
Framkvæmda-
stjór i Skóg-
ræktarfélags
Reykjavíkur og
fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks á
umhverfis- og
samgöngusviði
eru andvígir öllu meiri háttar
skógarhöggi á staðnum.
Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi
Besta flokksins og formaður
umhverfis- og samgönguráðs,
segir ráðið þurfa að skoða ýmsa
þætti. „Við fengum til dæmis bréf
um daginn vegna sjúkraflugs sem
lenti í slæmri lendingu um nótt. Þá
var sagt að það væri út af trjátopp-
unum,“ upplýsir Karl sem telur
málið ekki jafn „dramatískt“ og
sumir virðist telja. Það snerti ekki
hátt hlutfall trjánna í
skóginum. „En hvert
tré skiptir að mínu mati
máli þannig að ég vil
ógjarnan fara í þetta
nema alger nauðsyn
krefji.“
Friðþór Eydal segir
meðal annars að
rekstur austur-vest-
urflugbrautarinnar
grundvallist á deili-
skipulagi Reykjavík-
ur og starfsleyfi sem
gildi til ársins 2024.
„Skipulagslög tryggja
að aðflugssvæði flug-
valla séu hindrunar-
laus og skipulagsregl-
ur takmarka meðal
annars hæð mann-
virkja og trjágróð-
urs í öryggisskyni
fyrir flugumferð og
flugleiðsögubúnað,“
segir hann.
Að sögn Friðþórs
hefur trjágróður á litlu svæði í suð-
vestanverðri Öskjuhlíð vaxið upp
í verndarsvæði aðflugs. Kannaðir
hafi verið nokkrir kostir til lausn-
ar, meðal annars brattara aðflug,
færsla á lendingarsvæði flugbraut-
arinnar og lækkun trjáa. Mjög
bratt aðflug sé ekki á færi allra
flugvélagerða og krefjist sérstakr-
ar þjálfunar flugmanna og skapi
flugfarþegum óþægindi.
„Færsla lendingarsvæðis innar
á flugbrautina þýðir að flugvél-
ar sem algengastar eru í innan-
landsflugi gætu ekki notað braut-
ina nema hún yrði lengd um
100-300 metra til vesturs miðað
við aðflugsferla sem notast yrði
við. Slík framkvæmd yrði mjög
kostnaðarsöm og þyrfti meðal
annars að leggja bifreiðaakbraut
til Skerjafjarðar í jarðgöng undir
flugbrautina,“ segir Friðþór.
Þá segir Friðþór að unnið sé að
hugmyndum um lækkun trjáa eða
grisjun þeirra þar sem skógurinn
sé mjög þykkur og nýtist illa til úti-
vistar. „Með grisjun og rjóðurgerð
mætti hins vegar skapa þar fyrir-
myndaraðstöðu til útivistar svo
sómi sé að líkt og víðar í Öskju-
hlíð,“ segir hann. gar@frettabladid.is
Lengja þarf brautina
til vesturs standi trén
Verði tré í Öskjuhlíð ekki lækkuð til að tryggja öryggi við óbreytta flugumferð
þarf að lengja flugbraut til vesturs. Formaður umhverfisráðs segir málið ekki
jafn dramatískt og af sé látið. Tré verði ekki felld nema brýna nauðsyn beri til.
KARL SIGURÐSSON
FRIÐÞÓR EYDAL
FRÉTTABLAÐIÐ Ósk um að lækka eða
fella tré í Öskjuhlíð til að tryggja öryggi
við Reykjavíkurflugvöll falla ekki alls
staðar í frjóan jarðveg eins og fram kom
í Fréttablaðinu í gær.
ATVINNUMÁL Fyrirtækið Midgard
sem hugðist reisa 12 megavatta
gagnaver í Vogum er hætt við
áformin. „Hópurinn sem stend-
ur að Midgard hefur barist lengi
vel fyrir að safna áhugasömum
fjárfestum í verkefnið og hefur
það verið mikið streð á tímum
þar sem áhættufælni fjárfesta er
mikil og lánafyrirgreiðsla nánast
engin í nýsköpunarverkefni af
þessu tagi,“ útskýrir Jón Ólafur
Halldórsson í bréfi til sveitar-
félagsins Voga. Segir Jón að verið
sé að gera upp við lánardrottna
og biður um endurgreiðslu á
staðfestingargjaldi sem félagið
borgaði til Voga þegar þessir
aðilar skrifuðu undir viljayfir-
lýsingu í fyrra. Bæjarráð synjaði
beiðninni. - gar
Hætt við gagnaver Midgard:
Vogar hafna
endurgreiðslu
VOGAR Miklar vonir voru bundnar við
gagnaver í Vogum.
STJÓRNSÝSLA Bæta þarf ýmislegt
við framkvæmd og umsýslu samn-
inga iðnaðarráðuneytisins við
aðila utan ríkisins.
Yfirsýn ráðuneytisins yfir þessa
samninga er þó góð. Þetta er mat
Ríkisendurskoðunar sem hefur
haft til skoðunar samninga ráðu-
neyta við samtök, einkaaðila og
sveitarfélög. Samningar iðnaðar-
ráðuneytisins eru 22 talsins og
varða rekstur, þjónustu og önnur
verkefni gegn greiðslum úr ríkis-
sjóði. Áætlaður kostnaður við þá
er um 399 milljónir króna á ári.
Ráðuneytið hyggst efla eftirlit
sitt með ákvæðum samninga og
gera ríkari kröfur um árangurs-
mat en áður. - mþl
Iðnaðarráðuneytið metið:
Bæta þarf um-
sýslu samninga
REYKJAVÍKURBORG „Það er einkenni-legt að borgin ákveði að stráfella þarna fjölda trjáa út af flugvelli sem hvort sem er á að fara,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borg-arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem er andvígur því að orðið verði við
ósk flugmála-
yfirvalda um
grisjun trjáa
í Öskjuh l íð
vegna umferð-
ar um Reykja-
víkurflugvöll.
Flugmála-
yfirvöld hafa
í tvo og hálfan
mánuð óskað
samþykkis
Reykjavíkur-
borgar fyrir því að sagað verði ofan af sumum hæstu trjánum í Öskjuhlíð eða þau felld. Jón Baldvin Pálsson, flugvallar-stjóri Reykjavíkurflugvallar, segir í bréfi sem hann sendi umhverf-is- og samgöngusviði borgarinnar 20. september að tré í Öskjuhlíð-inni hafi hækkað svo mikið að þau skapi hættu fyrir flugvélar í aðflugi og flugtaki frá austur-vesturbraut vallarins. Lækka þurfi eða fella þau tré sem skagi hátt upp í svokallaðan hindranaflöt í Öskjuhlíð.„Þar sem þetta er brýnt öryggis-mál er þess óskað að úrlausn máls-ins verði hraðað eins og kostur er,“ segir flugvallarstjóri í niðurlagi bréfs síns.
Afgreiðslu erindis flugvallar-stjórans var frestað í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur á miðvikudag að ósk Gísla Marteins, sem vill að Skógræktarfélag Reykjavíkur veiti fyrst umsögn um málið.
„Ég er mjög ein-
dregið andsnúinn
því að fella þessi
tré,“ segir Gísli
Marteinn. Hann
k ve ð u r m i k i l
verðmæti fólgin í
Öskjuhlíðarskóg-
inum, sem búið sé
að rækta í sextíu
ár. „Þetta er ekki
fyrsta dæmi þess í
heiminum að skóg-
ur vaxi,“ heldur Gísli Marteinn áfram. Að trén myndu hækka hafi þvert á móti legið fyrir alla tíð og menn ávallt séð það fyrir að flugvöllurinn myndi fara.„Ég vil auðvitað ekki frekar en neinn að flugöryggi sé stefnt í tvísýnu en ég veit að við eigum það góða flugumsjónarmenn og flugtæknifræðinga að þeir finna einhverjar lausnir á því aðrar en að fella skóginn. Í dag meta menn skóglendi mjög mikils og
líta ekkert á það sem möguleika að stráfella skóga,“ segir Gísli Marteinn.
„Við sjáum það í hendi okkar að ef farið verður út í þetta er bókstaflega tekið besta skógar-svæðið úr Öskjuhlíðinni. Þá yrði hreinlega einum þriðja af útivist-arsvæðinu meira eða minna fórnað og sjónrænu áhrifin yrðu gríðar-leg,“ segir Helgi Gíslason, fram-kvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. gar@frettabladid.is
Flugvallarmenn vilja
tré burt úr ÖskjuhlíðUmhverfisráð Reykjavíkur vill umsögn skógræktarmanna áður en það heimilar að skógurinn í Öskjuhlíð verði lækkaður eins og flugmálayfirvöld segja brýnt af öryggisástæðum. Borgarfulltrúi vill aðrar lausnir en að fella tré í stórum stíl.
ÖSKJUHLÍÐIN Áhættumat hefur leitt í ljós að trén í Öskjuhlíðinni hafa vaxið verulega
upp fyrir svokallaðan hindranaflöt vegna umferðar um Reykjavíkurflugvöll.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
JÓN BALDVIN
PÁLSSON
HELGI
GÍSLASON
Þetta
er ekki
fyrsta dæmi
þess í heim-
inum að
skógur vaxi.
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
BORGARFULLTRÚI
LÖ
FÓLK Jólatrjáasala Flugbjörgunar-
sveitarinnar í Reykjavík hefst
í dag. Jólatré verða seld í húsi
sveitarinnar við Flugvallarveg við
Öskjuhlíð alla daga fram að jólum
og að auki verður opið í Grasa-
garðinum í Laugardal um helgar
fram að jólum.
Flugbjörgunarsveitin er eina
björgunarsveitin í Reykjavík sem
selur jólatré. Til sölu eru tré frá
Danmörku og Íslandi, en með-
limir í sleðahópi sveitarinnar hafa
höggvið. Sala á trjánum er fjár-
öflun fyrir sveitina. - þeb
Til styrktar flugbjörgunarsveit:
Jólatré fyrir
björgunarsveit
MOSKVA, AP Stjórnarandstaðan í Rússlandi hefur
boðað til mótmæla vítt og breitt um Rússland í
dag til að mótmæla fregnum um víðtækt kosn-
ingasvindl í þingkosningum í landinu á sunnu-
dag. Búist er við fjölmennustu mótmælum í
landinu frá falli Sovétríkjanna.
Mótmæli hafa víða brotist út í Rússlandi síð-
ustu daga eftir því sem æ fleiri gögn um kosn-
ingasvindl hafa komið fram. Þúsundir söfnuð-
ust þannig saman á torgum í Moskvu og Sankti
Pétursborg þrjú kvöld í röð í upphafi vikunnar.
Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútín
forsætisráðherra og Dimitrí Medvedev forseta
tapaði rúmlega 20 prósentum sæta sinna í Dúm-
unni, neðri deild rússneska þingsins, í kosning-
unum. Þrátt fyrir það hefur flokkurinn tæpan
meirihluta þingsæta.
Samfélagsmiðlar hafa logað í kjölfar kosning-
anna og borið boðskap mótmælendanna á milli
manna. Hópur aðgerðasinna hefur hvatt almenn-
ing til að mæta með hvíta klúta á mótmælin í
dag til að veita mótmælahreyfingunni merki.
Þá er búist við því að viðbúnaður lögreglu verði
mikill. - mþl
Búist við mótmælum vítt og breitt um Rússland í dag vegna kosningasvindls:
Risamótmæli boðuð í Rússlandi
SANKTI PÉTURSBORG Fjöldi mótmælenda klæddist grímum af andliti
Vladimírs Pútín í mótmælum á fimmtudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VINNUMARKAÐUR Laun kvenna í
stétt viðskipta- og hagfræðinga
hafa lækkað frá síðasta ári.
Þetta kemur fram kemur í
nýrri kjarakönnun Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga.
Miðgildi launa í heild hækkar
eilítið, úr 600 þúsundum í 604
þúsund, en laun kvenna lækka úr
550 þúsundum niður í 540.
Þetta er í fyrsta sinn sem laun
kvenna í stéttinni lækka frá
því stéttarfélagið hóf að gera
kjarakannanir árið 1979.
- þj
Viðskipta- og hagfræðingar:
Launamunurinn
milli kynja eykst
DÓMSMÁL Vefpressan, sem meðal
annars á og rekur vefsíðuna Press-
una, hyggst höfða mál gegn ein-
staklingum sem hafa, samkvæmt
frétt Pressunnar um málið, staðið
fyrir herferð til að fá fyrirtæki til
að hætta að auglýsa á vefmiðlum
fyrirtækisins. Þá stendur einn-
ig til að höfða meiðyrðamál gegn
einstaklingum sem viðhaft hafa
ummæli sem forsvarsmenn Vef-
pressunnar telja ærumeiðandi.
Í frétt Pressunnar er sérstak-
lega vísað til Sóleyjar Tómas-
dóttur borgarfulltrúa sem er
sögð hafa þrýst á fyrirtæki að
hætta að aug-
lýsa í miðlum
Vefpressunn-
ar. Þá er einnig
vísað til hóps
sem hefur stað-
ið fyrir undir-
skriftasöfnun
þar sem fólk er
hvatt til þess að
sniðganga miðl-
ana.
Var stofnað
til undirskriftarsöfnunarinnar
í kjölfar birtingar Pressunnar
á miðvikudag á mynd af stúlku
sem kært hefur par fyrir nauðg-
un. Á vefsíðu hennar, Engin-
pressa.com, segir að með mynd-
birtingunni hafi Pressan sent
þau skilaboð út í samfélagið að
þolendur kynferðisofbeldis eigi
yfir höfði sér að vera opinberað-
ir í fjölmiðlum. Rúmlega 3.000
manns höfðu skrifað undir í gær-
kvöldi.
Þess má geta að Steingrím-
ur Sævarr Ólafsson, ritstjóri
Pressunnar, hefur beðist afsök-
unar á myndbirtingunni. Þá var
frétt Pressunnar tekin af vefnum
stuttu eftir að hún birtist. - mþl
Vefpressan óánægð með viðbrögð við myndbirtingu Pressunnar á miðvikudag:
Vefpressan kærir undirskriftasöfnun
STEINGRÍMUR
SÆVARR ÓLAFSSON
Skotárás í Hollywood
Maður hóf skotárás í Hollywood
í gærdag. Hann særði einn mann
alvarlega áður en lögreglumenn sem
voru staddir í nágrenninu skutu hann
til bana.
BANDARÍKIN
2011
SPURNING DAGSINS
LÖGREGLUMÁL Leigubílstjórinn
sem keyrði Egil Einarsson, kær-
ustu hans og ungu konuna sem
kært hefur parið fyrir nauðgun er
kominn í leitirnar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur lýst eftir manninum í
tengslum við rannsókn málsins.
Skýrsla var tekin af bílstjóranum
í gær.
Lögreglan hefur sent frá sér til-
kynningar þar sem fram kemur að
bílstjórinn geti varpað mikilvægu
ljósi á rannsókn málsins. Þakkar
hún almenningi veitta aðstoð við
að finna hann.
Konan kærði Egil og kærustu
hans fyrir að hafa nauðgað sér á
heimili Egils hinn 25. nóvember
síðastliðinn. Parið neitar sök. - sv
Lögreglan þakkar aðstoð:
Leigubílstjóri
Egils fundinn