Fréttablaðið - 10.12.2011, Side 30

Fréttablaðið - 10.12.2011, Side 30
10. desember 2011 LAUGARDAGUR30 K lukkan er að nálgast níu á kol- dimmum desembermorgni þegar blaðamaður bankar upp á á heimili Daníels Bjarnasonar. Hann kemur til dyranna með eins árs son sinn í fanginu, Ríkharð. Sambýliskona hans, Elísabet Alma Svendsen, heilsar glaðlega og sýpur á svörtu kaffi. Svo hverfa þau mæðgin út í daginn. Fjöl- skyldan er nýflutt í fallega íbúð í Hlíðunum, þar sem er hátt til lofts, vítt til veggja og gull- fallegir gluggar hleypa þeirri litlu birtu sem úti er, aðallega frá ljósastaur úti á götu, inn á gólf. Þarna eiga margvísleg tónverk eftir að verða til, ef Daníel heldur áfram á sömu braut. „Þetta er bara nútíminn held ég,“ svarar Daníel, þeirri spurningu hvernig hann fari að því að teygja sig inn á svo breitt svið tónlistar eins og hann hefur hingað til gert. Hann er hljómsveitarstjóri og tónskáld að mennt og hefur meðal annars nokkrum sinnum stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands og frumflutt með þeim eigin verk, við góðar undirtektir. En hann semur líka tónlist fyrir kvikmyndir, kemur fram á Airwaves og vinnur náið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum þjóðar- innar úr ólíkum áttum. „Ég er klassískt menntaður og hef unnið með mörgum úr klassíska heiminum hér heima. En ég hef líka verið í miklu sambandi við fólk sem er ekki í klassískri músík, heldur raftónlist, djassi eða rokki. Auðvitað eru einhver skil á milli þessara heima, en það er greiður aðgangur á milli þeirra hér á landi. Mér finnst ég ekki þurfa að setja mig í sérstakar stellingar til að vinna með fólki utan klassíska geirans. Þetta hefur alltaf verið mjög eðlilegt.“ Í listaleikskóla í Bandaríkjunum Daníel er Reykvíkingur í grunninn, en fæddur í Danmörku og alinn upp að hluta í Wisconsin í Bandaríkjunum, þar sem foreldrar hans voru í námi. Þar var hann á listabarnaheimili, sem átti eftir að hafa talsverð áhrif á hann. „Ég var fjögurra ára þegar ég byrjaði þarna. Það var mikil áhersla lögð á leiklist, tónlist, dans og aðrar listir. Það hefur örugglega örvað það sem var til staðar hjá mér, einhverja listræna þörf. Ég á margar góðar minningar þaðan.“ Þegar hann flutti aftur heim til Íslands, sex ára gamall, var hann ekki bara búinn að virkja í sér listrænu hliðarnar, heldur líka búinn að læra að lesa og skrifa. Hann var því settur beint í sjö ára bekk. Seinna meir, þegar Daníel var búinn að ganga grunnskólaveginn hér, flutti fjölskyldan aftur til Danmerkur. Þar fór Daníel í menntaskóla og þar sem hann tekur ekki nema þrjú ár í Danmörku var Daníel orðinn stúdent átján ára. „Ég byrjaði sjö ára gamall að spila á píanó, en ég hætti nokkrum árum seinna, var bara að einbeita mér að fótbolta, handbolta og einhverju allt öðru en tónlistinni. Það var þess vegna mjög heppilegt að græða þarna tvö ár til að vinna upp það sem ég hafði misst úr.“ Vildi semja sjálfur Í Kaupmannahöfn hellti Daníel sér aftur út í píanóleikinn, byrjaði að skrifa tónlist og vinna með öðrum tónlistarmönnum. Þegar hann flutti aftur til Íslands hóf hann nám nám í píanóleik við tónlistarskóla F.Í.H. og síðan tónsmíðum við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þaðan útskrifaðist hann með gráðu í hljóm- sveitarstjórnun og tónfræði. „Mér fannst þetta fara mjög vel saman við tónsmíðarnar. Ég ákvað, þegar ég var búinn með allt þetta, að fara í framhaldsnám í hljómsveitastjórnun, frekar en í tónsmíðum.” Þá flutti hann til Freiburg í Þýskalandi og hóf nám í tónlistarháskólanum þar í borg. „Þar var ég í hálfgerðum felum með tónsmíð- arnar og hélt mig alfarið við stjórnunina. En ég fann að það var ekki rétt fyrir mig og eftir námið þurfti ég að finna þetta jafnvægi sem hentaði mér; að vinna sem stjórnandi, en jafn- framt að vinna í mínu eigin efni og í samstarfi við aðra ólíka listamenn.” Ævintýrið um Sólaris Í nóvember síðastliðnum kom út platan Sólaris, sem Daníel vann í samstarfi við Ben Frost. Hún hefur fengið góða dóma, meðal annars 8 af 10 stjörnum á tónlistarsíðunni Drowned in Sound. Fyrsta upplag hennar seldist upp á einum mánuði. Á plötunni er tónverk þeirra Daníels og Ben, sem er skrifað fyrir Krakársinfóníettuna og gerir ráð fyrir þrjátíu strengja- og ásláttar- leikurum, gítörum, rafhljóðfærum og breyttu píanói. Verkið unnu þeir út frá kvikmynd Tarkovsky, Sólaris, frá árinu 1972. Það var flutt á Listahátíð í Reykjavík í sumar, af þeim Daníel, Ben, Krakárs infóníettunni og tveimur íslenskum slagverks- leikurum. Áður hafði hópurinn flutt verkið í Póllandi, Austurríki og í New York. Viðburðaríkt ár að baki Daníel hefur vægast sagt átt ann- ríkt á þesu ári. Hann hóf það með því að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands á Myrkum músíkdögum, þar sem frumflutt var verkið Birting eftir hann. Hann kom líka fram á opnunartónleikum Hörpu þar sem tvö verk eftir hann voru flutt, Fanfare og Millispil. Þá vann hann með dönsku hljóm- sveitinni Efterklang, samdi tón- list við dansverk og stuttmynd og stjórnað uppsetningu óperunnar á Töfraflautunni. Þá eru smærri verkefni ótalin. Daníel er á mála hjá útgáfufyrir- tækinu Bedroom Community, sem hefur þá sérstöðu að afmarka sig ekki innan ákveðinna tónlistar- stefna. Það var á vegum þeirra útgáfu sem fyrsta plata Daníels, Processions, kom út í fyrra. „Þessi plata skipti öllu máli fyrir mig, það hefur margt komið út úr henni. Þó að þetta sé klassísk plata fékk hún mikla umfjöllun hjá miðlum sem fjalla að jafnaði ekki um klassíska tónlist.” Ég hef verið heppinn Um þessar mundir er Daníel að klára þrjár stórar pantanir á tónverkum, sem allar fara út í heim. Eitt þeirra er fyrir stóra ungmenna- hljómsveit í Bandaríkjunum, American Youth Symphony, og Los Angeles Children‘s Chorus, sem er hundrað barna kór. Verkið verður flutt í Walt Disney Hall í Los Angeles í mars. „Það er að vissu leyti nýr kafli að hefjast hjá mér núna, því ég mun ekki að frumflytja þessi verk sjálfur, sem ég er með í smíðum núna. Ég hef alltaf frumflutt verkin mín sjálfur, svo það verður sérstakt að sitja úti í sal og fylgjast með. En það er James Conlon, aðalstjórnandi óperunnar í Los Angeles, sem stjórnar tónleikunum í mars og hann er rosalega góður. Svo ég hef ekki nokkrar áhyggjur af því.“ Því fer fjarri að þar með sé dag- skrá ársins 2012 upp talin. Daníel mun ferðast áfram með Sólaris og hefur hópurinn meðal annars fengið boð um að koma fram á tón- leikum í Búdapest og Sao Paolo og flytja verkið. Á árinu mun hann líka fara til Winnipeg, þar sem tvö verk eftir hann verða flutt. Eitt af stóru verkefnunum sem er fram undan er svo stjórnun á La Bohème, sem Íslenska óperan frumsýnir í mars í Hörpunni. Þá er hann bæði að semja tónlist fyrir kvikmyndina Djúpið, ásamt Ben Frost, og að vinna með hljóm- sveitinni SigurRós í nýrri plötu sem margir bíða spenntir eftir. Þrátt fyrir að eiga annríkt reynir Daníel að skipuleggja framtíðina ekki í þaula sjálfur. Það gerist einhvern veginn af sjálfu sér hvort sem er. „Ég reyni að skipu- leggja mig þannig að ég eigi mér eitthvert líf, fyrir utan tónlistina. En svo koma verkefni upp, sem er gríðarlega erfitt að segja nei við, og ég enda með að bæta þeim ofan á allt hitt. Með þessu móti er maður ekki lengi að fylla dagskrána fyrir árið. En ég get ekki kvartað því ég hef verið mjög heppinn með verkefni og samstarfsfólk þó að vinnudagurinn sé stund- um langur. Og auðvitað er það mikið lán að fá að starfa við það sem maður gerir best og elskar að gera. En því fylgir líka sú ábyrgð að maður verður að vanda sig og gera eins vel og maður getur.” Ég reyni að skipuleggja mig þannig að ég eigi mér eitthvert líf, fyrir utan tónlistina. Flakkar á milli tónlistarheima Tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Daníel Bjarnason ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum, gekk í menntaskóla í Danmörku og háskóla í Þýskalandi. Enn ferðast hann vítt og breitt um heiminn, en nýtur þess að búa og starfa á Íslandi, eins og hann sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur frá. Ekki síst vegna þess hversu þægilegt er að fljóta á milli ólíkra heima í íslensku tónlistarlífi. NÝR KAFLI AÐ HEFJAST Daníel Bjarnason tónskáld vinnur nú að nýju verki fyrir stóra ungmennahljómsveit í Bandaríkjunum, American Youth Syphony, og Los Angeles Children‘s Chorus, sem er hundrað barna kór. Verkið verður flutt í óperunni í Los Angeles í mars. Daníel mun ekki stjórna flutningi verksins sjálfur, heldur vera viðstaddur sem áhorfandi. Hingað til hefur hann alltaf stjórnað frumflutningi verka sinna sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.