Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2011, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 10.12.2011, Qupperneq 40
10. desember 2011 LAUGARDAGUR40 Villa Bergshyddan Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni, án endurgjalds, í eina eða tvær vikur á tímabilinu 16. apríl til 30. september 2012. Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Umsóknareyðublöð fást á www.reykjavik.is/menningogferdamal og www.stockholm.se/nordisktsamarbete Umsóknir sendist í síðasta lagi 1. febrúar 2012 til: Stockholms Kulturförvaltning, Nordiskt kultursamarbete, Hanan Haidari, Box 16113 SE - 103 22 Stockholm Einnig er hægt að skila umsókn rafrænt í gegnum heimasíðuna www.stockholm.se/nor- disktsamarbete Nánari upplýsingar veitir Kristjana Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1520, netf. nanna@reykjavik.is og Hanan Haidari hjá Stokkhólmsborg netf. hanan.haidari@stockholm.se E lín Ólöf Eiríksdóttir til- heyrir hópi kvenna, þá stúlkna, sem dvöldu á skólaheimilinu Bjargi sem starfrækt var á Seltjarnarnesi frá 1965 til 1967 af norska Hjálpræðishern- um. Hún hefur aldrei sagt sína sögu af upplifuninni á skólaheimilinu Bjargi en þangað fór hún fjórtán ára. Elín upplifði mikið rótleysi eftir að foreldrar hennar skildu og heimilisaðstæður hennar voru erf- iðar. Hún átti heima á Múlakampi sem kallaður var, braggahverfi sem stóð milli Suðurlandsbrautar og Ármúla og gekk í Laugarnes- skóla. „Ég var níu ára þegar for- eldrar mínir skildu og átti mjög erfitt með að sætta mig við það að vera föðurlaus. Móðir mín stóð eftir með okkur þrjú. Hún þurfti að vinna og gat ekki fylgst með öllum okkar ferðum. Ég hélt af stað í skól- ann á morgnana, en fór svo hvergi og þannig vildi það til að ég hætti bara í skóla, tólf ára gömul,“ segir Elín, sem hafði hvorki komist í kast við lögreglu né móðir hennar við barnaverndarnefnd þegar hún fór til vistar á Bjargi. Vissi ekkert um Bjarg „Ég fór inn á Bjarg fyrir misskiln- ing. Ég var dottin út úr skóla en fór svo að hugsa með mér að ég yrði að klára skólann. Og þá heyrði ég fyrst af Bjargi. Upphaf vistunar minnar var að ég fór í viðtal við Auði Eir, þáverandi lögreglukonu og síðar prest, og Guðlaugu Sverr- isdóttur varðstjóra. Þær segja mér að Bjarg sé góður skóli og ég ákvað að fara þangað. Afleiðingar þess urðu alveg hræðilegar fyrir líf mitt,“ segir Elín sem man afar vel þá stund þegar hún kom á Bjarg og komst að því að hún var ekki komin í skóla eins og hún hélt. „Ég fann að það var eitthvað skrítið á seyði þarna og þegar ég sagðist vera komin til þess að læra þá spurðu stúlkurnar mig hvort ég vissi ekki að ég væri komin í fangelsið Bjarg, Bjarg var nefnilega ekki skóla- heimili fyrir unglinga, þetta var fangelsi. Maður átti engan rétt sem manneskja þarna. Öll her- bergi voru læst og keðjur á öllum gluggum til þess að við kæmumst ekki út. Við vorum vaktar snemma á morgnana, það var náttúrulega skóli en við sáum um öll húsverk frá a til ö, gerðum allt nema elda matinn. Fyrsta árið fékk ég bara að fara út í klukkutíma á dag, og þá fór maður út að labba með kon- unum sem voru í fullum skrúða. Það var oft gerður aðsúgur að okkur, krakkarnir á Nesinu hróp- uðu á eftir okkur og kölluðu okkur druslur þannig að maður reyndi að læðast með veggjum.“ Elín segir harkalega hafa verið tekið á því þegar reglur voru brotn- ar. „Þá var maður barinn og sleg- inn, sumar hverjar voru dregn- ar upp og niður stigana. Þetta var svoleiðis að maður var orð- inn taugaveiklaður aumingi eftir þennan tíma. Það var stöðugt sagt við okkur að við ættum ekkert gott skilið. Við fengum heimsókn- ir, mamma kom og heimsótti mig, en þá voru alltaf tvær konur sem stóðu yfir okkur og pössuðu að við segðum ekki neitt.“ Í vikueinangrun eftir strok Elín reyndi tvisvar að strjúka af Bjargi. „Ég komst ekki langt í fyrsta stroki. En ég reyndi aftur, mig langaði ekki að vera þarna, ég var komin með óbeit á þeirri mann- eskju sem ég var orðin, þessari stúlku sem átti ekkert gott skilið og vildi ekki lifa,“ segir Elín, sem fékk illa meðferð þegar hún strauk í annað sinn. „Þá náði ég til bróður míns í Kópavogi og var ákveðin í að láta ekki ná í mig aftur. Það var komin svo mikil uppreisn, hatur og illska í mig og ég var í mikilli taugaspennu. Ég sat heima hjá honum og var að reyna að jafna mig þegar hring- ir á dyrabjöllunni og Auður, Guð- laug og tveir stórir lögregluþjónar ryðjast inn og skipa mér að koma með sér. Ég grátbað þau um að fara ekki með mig á Bjarg, en það þýddi ekkert. Lögreglan reif mig upp úr stólnum og fór með mig beint út í bíl eins og versta glæpamann. Síðan var ég sett í einangrun á Upptöku- heimili ríkisins í Kópavogi og þar fékk ég að dúsa í heila viku í loft- lausu herbergi með einu járnrúmi og gardínum á milli glerja til þess að við sæjum ekki út. Ég fékk mat inn í herbergið en enginn talaði við mig. Ég var viss um að ég væri að verða brjáluð, fékk svo mikið brjál- æðiskast að ég réðist á sjálfa mig, klóraði, barði og beit þar til að það blæddi úr mér. Höfuð mitt var eitt flakandi sár. Svo fann ég nál í einni klósettferðinni og þar var ég búin að ná mér í vopn svo nú skyldi ég klára þetta. Ég vildi ekki lifa leng- ur. Þetta var mín fyrsta tilraun til sjálfsmorðs,“ segir Elín sem rifjar upp að hún hafi ekki fengið lækn- isheimsókn en sálfræðingur hafi komið til hennar og fulltrúi barna- verndarnefndar sömuleiðis. Móður hennar var neitað um leyfi til heim- sóknar, en hún fékk þau svör að forsjá Elínar væri ekki lengur á hennar höndum, heldur hjá Barna- verndarnefnd Reykjavíkur. Elín fékk hins vegar þau skilaboð að hún gæti losnað úr einangrun og farið aftur á Bjarg, en það vildi hún ekki fyrr en eftir sjö daga vist í einangr- uninni. „Ég verð svo reið þegar ég byrja að tala um þetta að ég er að springa. Ég hef ekki öðlast sálarró í lífinu eftir þetta,“ segir Elín. „Ein kona sem vann á Bjargi var fengin til að hugsa um mig og bera græð- andi krem á sárin, þau greru smátt og smátt, en sárin á sálinni seint.“ Stóðum þétt saman Spurð hvernig samskipti stúlkn- anna á Bjargi hafi verið segir Elín að þær hafi staðið þétt saman. „Það kom ekkert upp á milli okkar, enda vorum við margar þarna lengi á sama tíma.“ Hún segir margar hafa átt afar erfitt eftir Bjargs- vistina. „Við vorum hræddar, enda var okkur hótað með einangrun og ofbeldi ef við hlýddum ekki fyrir- mælum. Margar urðu svo fyrir kynferðislegri áreitni. Það er hins vegar alrangt að við höfum stundað vændi eins og kom fram í viðtali í DV í haust,“ segir Elín og er mikið niðri fyrir. Hún skrifaði grein sem birtist í Fréttablaðinu á fimmtu- dag þar sem hún mótmælir þessum fullyrðingum. Vistinni á Bjargi lauk með síð- asta strokinu en þá var Elín orðin sextán ára. „Eftir eitt ár fengum við að fara einar út. Og ég not- aði tækifærið einu sinni og fór til mömmu í vinnuna til hennar. Ég fór til hennar og sagði: Ég fer ekki út á Bjarg aftur. Mamma var svo hrædd og sagði við mig: Þú veist hvernig þeir fara með þig. Hún var nefnilega búin að reyna allt til að ná mér út en fékk alltaf þau svör að hún hefði ekkert með mig að gera lengur. Ég róaði móður mína og sagði bara að ég hefði önnur áform. Læddist svo upp eftir, þar sem Breiðholt er í dag og lá þar um nóttina þar til mér var orðið skít- kalt. Þá tók ég sénsinn og fór aftur til mömmu. Ég kom þangað aftur um morguninn, rifin og tætt, renn- andi blaut og drullug,“ segir Elín sem óttaðist að húsið væri vaktað. Þegar hún sá ljóstýru bankaði hún upp á hjá móður sinni. „Mamma opnaði og var skelfingu lostin, því hún vissi ekki hvar ég hafði verið. Fljótlega kemur svo kona og segir að ég verði að koma út á Bjarg. Ég þvertók fyrir það en hún sagði að ég yrði að koma og ná í einkunnirn- ar mínar. Eins og ég hefði sýnt þær einhvers staðar. Ég varð að fara þangað aftur en ég var ógurlega hrædd. Enda var ég orðin algjör aumingi eftir þessa dvöl. Ég þoldi ekki neitt, ég vildi ekki lifa. Ég fékk einkunnirnar mínar en ég get sagt þér að ég lærði ekkert þarna,“ segir Elín, sem ekki dvaldi lengi á Bjargi eftir þetta þriðja strok. Úr einu fangelsinu í annað „Þá var ákveðið að ég fengi ekki að fara út af Bjargi nema ég færi að vinna á Silungapolli þar sem fátæk- um börnum var komið fyrir. Þarna fór ég bara úr einu fangelsinu í annað því ég var látin vinna kaup- laust frá morgni til kvölds. Þarna þekkti ég engan, var bara sextán ára. Um miðjan desember strauk ég og fór til systur minnar sem bjó í Ólafsvík. Þar byrjaði ég að vinna í fiski.“ Elín segir að hún hafi verið gífurlega reið og lent í ógurlega miklu rugli fljótlega. „Ég byrjaði að misnota áfengi og réði ekki við neitt. Ég eignaðist mitt fyrsta barn ung, nítján ára. En mér og barns- föður mínum samdi ekki þannig að ég var strax orðin ein með dótt- ur mína. Ellefu árum síðar eign- aðist ég dreng. Að eignast börnin mín gaf lífinu mínu tilgang,“ segir Elín, sem dregur ekki fjöður yfir að hún hafi misnotað áfengi og fíkniefni sömuleiðis. „Ég gerði það fram eftir öllu, þangað til ég var að nálgast fimmtugt og margreyndi að stytta mér aldur. Ég hef nefnilega alltaf verið á flótta undan fortíð- inni. Ég bjó erlendis um tíma því ég hélst ekki við hér. Sem betur fer tókst mér sómasamlega upp með börnin sem þurftu oft að ganga í gegnum mikla erfiðleika með mér; Móðir mín hjálpaði mér mikið með þau,“ segir Elín. Hún er nú laus úr viðjum áfengis og fíkniefna og sátt við að búa á Íslandi í dag en hún hefur búið hér frá árinu 2009. Í vikueinangrun eftir strokutilraun Elín Ólöf Eiríksdóttir dvaldi á skólaheimilinu Bjargi frá janúar 1966 þangað til í ágúst 1967. Hún fór þangað sjálfviljug, óafvit- andi um fangelsið sem vistheimilið var. Hún kom niðurbrotin út og segir Sigríði Björgu Tómasdóttur að vistin hafi eyðilagt líf sitt. ELÍN ÓLÖF EIRÍKSDÓTTIR Er hætt að vera á flótta undan fortíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hjálpræðisherinn starfrækti stúlkna- heimilið Bjarg á Seltjarnarnesi frá 1965 til 1967. Dvöldu þar sam- tals tuttugu stúlkur um lengri eða skemmri tíma. Vistheimilanefnd sagði í skýrslu um heimilið sem skilað var haustið 2009 að þær konur sem nefndin hefði rætt við hafi allar sagt að dvölin á Bjargi hefði verið þeim erfið og að þeim hefði almennt liðið illa þar. Auk aðskilnaðar við fjölskyldur nefndu þær erfið samskipti við starfsfólk, strangan aga, frelsis- skerðingu og refsingar sem ástæður vanlíðunarinnar. Flestar kvennanna sögðu að þær hefðu verið beittar líkamlegu ofbeldi af hálfu starfsfólks. Töluvert hefði borið á hótunum af hálfu starfsmanna og þær mátt sæta einangrunarvist á Upptökuheimilinu í Kópavogi eftir strok af Bjargi. Sam- skipti þeirra við fjölskyldur hefðu verið takmörkuð; heimsóknir undir eftirliti, bréf ritskoðuð og setið yfir símtölum. Fjórar af þeim sjö konum sem komu til viðtals við nefndina greindu frá því að þær hefðu orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni af hálfu tiltekinna starfskvenna. Þær starfskonur sem nefndin ræddi við þvertóku fyrir lýsingar kvennanna. Ásökunum um ofbeldi var vísað á bug. Þrátt fyrir að vistheimilanefnd telji meiri líkur en minni á að sumar stúlknanna hafi mátt þola illa með- ferð af hálfu einhverra starfskvenna Bjargs dregur hún ekki þá almennu ályktun að starfskonur hafi kerfis- bundið og reglulega beitt viststúlkur illri meðferð eða ofbeldi. MEIRIHLUTI LÝSTI ILLRI MEÐFERÐ EÐA OFBELDI BJARG Skólaheimilið Bjarg var starfrækt í um tveggja ára skeið á sjöunda áratugnum. Á myndinni til vinstri má sjá Elínu á Bjargsárunum. MYNDIR/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR OG ÚR EINKASAFNI.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.