Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 54
10. desember 2011 LAUGARDAGUR54
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123
í Reykjavík, s: 550 9800 og á skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeinin
gar
Við gróðursetjum lifandi tré í
skógrækt skáta að Úlfljótsvatni fyrir
hvert Sígrænt jólatré sem keypt er.
Þú prýðir híbýli þín með Sígrænu
jólatré og stuðlar að skógrækt
um leið!
■ JASON SEGEL
Þ
að er ekki ofsögum
sagt að Prúðuleikara-
aðdáendur hafi ríka
ástæðu til að gleðjast
og hlakka til þessa
dagana. Bráðlega
ratar ný kvikmynd um þessar ást-
sælu furðuverður, sú fyrsta sem
sýnd er í bíóhúsum í tólf ár, á hvíta
tjaldið hérlendis en hún var frum-
sýnd í Bandaríkjunum í lok síðasta
mánaðar.
Ekki síður merkilegar fréttir
gætu þó falist í fréttum þess efnis
að NBC-sjónvarpsstöðin banda-
ríska hafi gefið samþykki fyrir
handritum að nýrri þáttaröð þar
sem Prúðuleikararnir verða í for-
grunni. Með hliðsjón af þessum tíð-
indum gæti nýtt Prúðuleikaraæði
hæglega verið í uppsiglingu.
Nýju nágrannarnir
Einungis örfáum dögum fyrir frum-
sýningu nýju myndarinnar, sem ber
hinn sáraeinfalda og gegnsæja titil
The Muppets, í bíó greindi bransa-
blaðið The Hollywood Reporter frá
því að náðst hefðu samningar um
handritsskrif að nýrri þáttaröð,
The New Nabors, sem mun fjalla
um fjölskyldu sem býr í borginni
Palm Springs og Prúðuleikarana
sem flytja inn í húsið við hliðina á
með ófyrirséðum afleiðingum.
Tveir reynsluboltar í fræðunum,
nafnarnir John Hoffmann og John
Riggi (sá síðarnefndi hefur meðal
annars getið sér gott orð sem fram-
leiðandi hinna vinsælu gaman-
þátta 30 Rock), eru höfundar þess-
arar nýju þáttaraðar. Þá mun Lisa
Henson, dóttir Jims Henson (skap-
ara Prúðuleikaranna) gegna stöðu
framleiðanda, en hún er forstjóri
Jim Henson Studios.
Froskur úr gamalli kápu
Leikbrúðustjórnandinn Jim Hen-
son hóf sköpun Prúðuleikarana um
miðjan sjötta áratug síðustu aldar
og kom froskurinn Kermit, sá fræg-
asti úr flokknum, fyrst fram í sjón-
varpsþættinum Sam and Friends
árið 1955. Frumgerðin af búki
frosksins var búin til úr grænblárri
kápu sem móðir Hensons hafði hent
í ruslið, en augun úr borðtenniskúlu
sem skorin hafði verið í tvennt.
Kermit varð þó ekki vinsæl
fígúra fyrr en fimmtán árum síðar
þegar Henson, sem einnig lék
og talaði fyrir froskinn fram til
dauðadags árið 1990, gerði frosk-
inn að reglulegum gesti í þættinum
Sesame Street, sem Henson hafði
unnið að um skeið.
Jim Henson hafði einlægan
áhuga á að höfða bæði til barna og
fullorðinna með verkum sínum. Í
því augnamiði komu brúður hans
nokkrum sinnum fram í gaman-
þættinum Saturday Night Live
árið 1976 en féllu í grýttan jarðveg
hjá áhorfendum. Sama ár hófst þó
framleiðsla Prúðuleikaraþáttanna
(The Muppet Show) í Englandi og
slógu þeir fljótlega í gegn beggja
vegna Atlantsála.
Kermit hefur alla tíð farið
Brestur á nýtt Prúðuleikaraæði?
Senn kemur til landsins ný bíómynd um hina ástsælu Prúðuleikara og einnig er von á sjónvarpsþáttaröð um þessar litskrúðugu
furðuverur. Kjartan Guðmundsson leit yfir sögu Prúðuleikaranna, sem nýlega komust í fréttir í tengslum við stóriðju ytra.
HJÁLPSAMUR Kermit aðstoðaði forsetafrúna Michelle Obama við að lesa fyrir börnin á jólatréssamkomu í Washington í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP
Prúðuleikararnir, og sér í lagi nýjasta
bíómyndin The Muppets, voru
gerðir að umtalsefni í þættinum
Follow the Money á Fox-sjón-
varpsstöðinni í síðustu viku, en þar
ræddu stjórnandinn Eric Boiling
og viðmælandi hans, Dan Gainor
frá Conservative Media Research
Center, um söguþráð myndarinnarr.
Þótti Boiling nafn olíubarónsins Tex
Richman, sem vill rífa niður Prúðu-
leikhúsið í myndinni, vera skýrt dæmi um vilja framleiðendanna til að koma
illu orði á olíuiðnaðinn.
Gainor tók í sama streng og kallaði söguþráðinn aðeins nýjasta dæmið
um vilja Hollywood til að þröngva boðskap vinstrimanna upp á áhorfendur.
„Það er ótrúlegt að sjá hversu langt vinstrifólk er til í að ganga til að ráðsk-
ast með börnin ykkar og vekja andúð þeirra á stórfyrirtækjum,“ sagði Gainor
og bætti við að vinstrifólk, fjölmiðlar og Hollywood hefðu haldið uppi and-
olíuiðnaðarboðskap áratugum saman.
Sakaðir um að hata olíuiðnaðinn
Nýja Prúðuleikaramyndin, The Muppets, kemur í bíó hérlendis í byrjun næsta mánaðar. Í
stórum dráttum fjallar hún um brúðuna Walter,
sem er heimsins mesti aðdáandi Prúðuleikaranna,
og Gary bróður hans, sem leikinn er af gaman-
leikaranum Jason Segel (sem gert hefur garðinn
frægan í nokkrum af best heppnuðu grínmyndum
síðari ára á borð við Forgetting Sara Marshall og
I Love You, Man og sjónvarpsþáttunum How I Met
Your Mother). Bræðurnir og May unnusta Gary,
sem leikin er af Amy Adams (Catch Me If You
Can, The Fighter), þurfa að afla tíu milljóna dala
til að forða því að Prúðuleikhúsið, þar sem gömlu
Prúðuleikaraþættirnir gerðust að mestu leyti,
verði lagt í eyði af olíubaróninum ósvífna Tex
Richman (leiknum af Chris Cooper) og beita til
þess öllum tiltækum ráðum.
Í viðtali við Huffington Post segist Segel hafa
verið einlægur aðdáandi Prúðuleikaranna frá
barnsaldri og það hafi einfaldað honum að komast
að kjarna persónanna, en Segal skrifar handrit
myndarinnar við annan mann ásamt því að leika
aðalhlutverkið. Svo djúpt segist leikarinn hafa
kafað ofan í sálarlíf Prúðuleikaranna að hann
brást í grát þegar hann heyrði Steve Whitmire
(sem leikið hefur Kermit frá ótímabæru andláti
Jims Henson árið 1990) lesa línur frosksins í hand-
ritinu á fyrstu upplestraræfingu.
„Ég hágrét ekki, heldur var þetta mun vand-
ræðalegra en það,“ segir Segel. „Þetta var svona
grátur þar sem þú reynir af öllum mætti að láta
fólk ekki sjá að þú sért grátandi, svo þú herpir var-
irnar saman, en varirnar eru samt skjálfandi. Svo
skyndilega byrjuðu tárin að renna niður andlitið á
mér og ég gat ekkert gert til að fela þau. Við gerð-
um fimm mínútna hlé á æfingunni. Það versta var
að ég er líka einn af framleiðendum myndar innar
og sem slíkur er ég yfirmaður. Undirmennirnir
gláptu á mig og veltu því væntanlega fyrir sér
hvort ég yrði sífellt brestandi í grát út allt fram-
leiðsluferlið.“
Spurður hvort hinir ljúfu og góðu Prúðuleikarar
passi vel inn í heimsmynd dagsins í dag, sem
mörgum þykir talsvert kaldhæðnari og jafnvel ill-
kvittnari en á mektardögum Kermits og félaga,
segir Segel vissulega rétt að Prúðuleikarnir sé
ljúfir og góðir. „En Prúðuleikararnir eru líka beitt-
ir. Það er eitt af því sem er svo frábært við þá. Í
gamla daga gátu þeir alltaf gert flugbeitt grín, en
aldrei á kostnað annarra. Það finnst mér mikilvæg
skilaboð til æskunnar í dag. Það er hægt að gera
grín, án þess að það sé á kostnað annarra, en samt
vera töff.“
Grét á fyrstu upplestararæfingunni
AÐDÁANDI Jason Segel, aðalleikari, handritshöfundur og
framleiðandi nýju Prúðuleikaramyndarinnar, ásamt frægasta
leikbrúðupari sögunnar. NORDOCPHOTOS/GETTY
fremstur í flokki Prúðuleikara sem
býsna jarðbundið mótvægi (enda
auðvelt að halda sér á jörðinni
þegar maður er ekki nema hálfur
metri á hæð, eins og Kermit sjálfur
orðaði það) við litskrúðuga og gal-
gopalega vini sína Ungfrú Svínku,
Gunnsa, Fossa Björn, trommu-
leikarann Dýra, sænska kokkinn,
Bikar og svo mætti lengi telja.
Endurnýjun lífdaga
Hinir eiginlegu Prúðuleikara þættir
voru framleiddir á árunum 1976 til
1979 og nutu gríðarlegra vinsælda.
Þegar áhorfið var sem mest var
talið að um 235 milljónir manna
hafi horft á þættina í yfir hundr-
að þjóðlöndum í viku hverri. Hér
á landi tengja margir Prúðuleikar-
ana við tímabilið þegar litasjónvörp
urðu stöðugt algengari hjá almenn-
ingi, en eins og gefur að skilja
breyttust ásjónur hins litskrúðuga
persónugallerís afar mikið við þá
nýjung. Gestaleikarar urðu sífellt
frægari eftir því sem á leið og má
telja Elton John, Paul Simon, Peter
Sellers, Debbie Harry, Johnny
Cash, Roger Moore, Sylvester Stall-
one, Twiggy og marga fleiri í þeim
hópi.
Eftir að þættirnir luku göngu
sinni hafa sjálfar brúðurnar, eða
Prúðurnar, komið víða við í mörg-
um sjónvarpsþáttum, teiknimynd-
um og kvikmyndum. Ef marka má
afbragðsgóð viðbrögð gagnrýnenda
og almennings ytra við nýju kvik-
myndinni verða að teljast allar líkur
á að vinsældir Prúðuleikaranna
gangi í endurnýjun lífdaga og haldi
nafni Jims Henson á lofti lengi enn.
PRÚÐULEIKARARNIR Í ELDLÍNUNNI