Fréttablaðið - 10.12.2011, Side 56
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Vera Einarsdóttir Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Valgarður Gíslason Pennar:
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, Róald Viðar Eyvindsson, Gunnþóra
Gunnarsdóttir, Sólveig Gísladóttir Auglýsingar: Ívar Örn
Hansen. ivarorn@365.is
SAMVERA
Sólveig Gísladóttir
skrifar
Mamma þín er rugludallur,“ sagði þriggja ára dóttir mín hátt og snjallt við dúkkuna sína. Eftir smá umhugsun og furðusvip af hálfu
móður hennar áttaði ég mig á því að þarna væri á
ferðinni fremur góð aðlögun að hinu klassíska leikriti
um Dýrin í Hálsaskógi. Leikritið er í miklu uppáhaldi
hjá þeirri stuttu þessa dagana og ekki síst samskipti
Mikka refs við bakarameistarann þar sem Mikki
lætur þau fleygu orð falla: „Hann afi þinn var ruglu-
dallur.“
Ég hafði svo sem áttað mig á því áður en þarna fór
ég að velta sérstaklega fyrir mér hversu hæfileikarík
börn eru að muna það sem fyrir þeim er haft. Það er
vitanlega grunnur þess að þau geti lært og standi sig
í lífinu. Oft á tíðum grípa þau hins vegar á lofti full-
yrðingar sem ekki eru þeim ætlaðar, já eða nokkrum
manni. Það getur orðið hálf neyðarlegt þegar þau
endur taka þessar fullyrðingar á við kvæmum
stundum. Hver kannast ekki við vandræðasvipinn á
foreldrum þegar börn þeirra benda á feitu konuna eða
karlinn í sundi?
Þar sem við foreldrarnir höfum gert okkur grein
fyrir þó nokkurri athyglisgáfu dóttur okkar reynum
við að vara okkur á að ræða viðkvæm málefni í
nálægð við hana og einskorða okkur við það sem
getur leitt til einhvers uppbyggilegs lærdóms síðar
á ævinni. En það eitt dugar þó ekki til til að ala upp
draumaeinstaklinginn því áhrifavaldarnir eru víða.
Afar og ömmur, frændur og frænkur, systkini og ekki
síst sjónvarpið hafa sín áhrif á uppeldi barnanna. Þá
dvelja þau stóran hluta úr degi á leikskóla og margur
lærdómurinn er þaðan dreginn. Langoftast jákvæður,
enda leikskólakennararnir upp til hópa sómafólk. Þá
læra börnin á leikskólanum heilmargt hvert af öðru
og því koma áhrifin ekki aðeins frá þeim heldur líka
foreldrum þeirra.
Ég hef til dæmis lúmskan grun um að
öll vitneskja dóttur minnar um litaval í
fötum sé komin frá jafnöldrum hennar.
Hún hefur frá unga aldri verið klædd
hvort heldur sem er í bleikt, blátt,
grænt eða gult og ég hef lagt áherslu
á að fólk megi almennt klæðast því
sem það vilji. Samt sem áður lendi
ég iðulega í rökræðum við þá stuttu
sem heldur því fastlega fram að
strákar megi alls ekki klæðast fjólu-
bláu, hvað þá bleiku, og það varði
nánast við lög að gera slíkt. Þegar
ég andmæli og bendi henni á að
pabbi hennar eigi bleika skyrtu
hefur hún komið sér upp hinu
fullkomna varnarkerfi. Afneitun.
Fyrir börnum haft
Jólastemning á Ingólfstorgi Jólamarkaðurinn á Ingólfs-
torgi var opnaður formlega í vikunni. Þar verður fjölmargt í boði,
allt frá hönnun, handverki og listmunum til kjöts beint frá býli og
jólaskrauts. Jólamarkaðurinn, sem áður var á Hljómalindar reitnum,
er starfræktur í fallega skreyttum bjálkakofum og verður viðburða-
hald fjölbreytt á Ingólfstorgi fram að jólum. Vel getur verið að glytta
muni í gömlu jólasveinana og Grýlu móður þeirra, en þau verða á
ferðinni um miðborgina fram að jólum. Jólamarkaðurinn verður
opinn frá kl. 14 til 18 fyrstu vikuna, en frá 15. desember frá kl. 14-20.
Konráð Vestmann matreiðslu-meistari og Sólrún Eyfjörð Torfa-dóttir eru búin að vera gift í tæp fjórtán ár. Barneignir voru frá
upphafi ofarlega á dagskrá en fljótlega
kom í ljós að þau áttu ekki kost á þeim
með hefðbundnum leiðum og í framhaldi
ákváðu þau að ættleiða barn. Fyrr á árinu
gekk ættleiðingin eftir og hjónin fengu
níu mánaða dreng frá Kína eftir fimm
ára bið.
„Þetta var löng og ströng bið en við
erum sannarlega þakklát í dag því Dagur
Kai er algjör draumaprins. Biðin var því
vel þess virði og við hefðum biðið lengur
eftir að við kynntumst honum, ef nauðsyn
hefði krafið,“ segir Sólrún glöð í bragði
þegar blaðamaður slær á þráðinn til
þeirra hjóna norður á Akureyri þar sem
fjölskyldan er búsett.
Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir frá
því að Sólrún og Konráð sóttu Dag Kai til
Kína en þangað hafði hvorugt komið áður.
Þau fóru ásamt hópi íslenskra hjóna utan í
sömu erindagerðum sem áttu langt og við-
burðaríkt ferðalag fyrir höndum áður en
komið var á endastöð í héraðið Jiang Su á
austurströndinni þaðan sem drengurinn
er ættaður. Þar var haldið beint á ættleið-
ingastöðina þar sem hjónin áttu erfitt með
að hemja tilfinningarnar meðan beðið var
eftir börnunum.
„Við þurftum að bíða í klukkutíma og
þetta er lengsti klukkutími sem ég hef á
ævinnni upplifað. Þolinmæðin var bara á
þrotum eftir alla þessa löngu bið, taugarn-
ar búnar,“ minnist Sólrún og Konráð sam-
sinnir því. Segir skrítna tilfinningu hafa
svo fylgt því að heyra nöfnin þeirra loks
kölluð upp þegar komið var með dreng-
inn á biðstofuna. „Það var dýrðlegt að fá
hann í hendurnar. Hann var barnið okkar
og eitthvað svo fullkominn í alla staði.“
Heimferðin gekk ekki átakalaust fyrir
sig. Dagur Kai fékk mikinn hita sem end-
aði með spítalaferð sem hjónin minnast
með óhug. „Þarna ríkti algjört öngþveiti
gagnstætt því sem við höfðum áður upp-
lifað í Kína. Fólk ruddist fram fyrir hvert
annað og starfsfólkið var ópersónulegt,“
segir Sólrún. Drengurinn fékk þó skjóta
greiningu á meininu, sem reyndist vera
sýking i öndunarfærum, og viðeigandi
lyfjameðferð áður en haldið var heim til
Íslands og stóð sig allan tímann eins og
lítil hetja, segja hjónin.
Þetta var í ágúst og síðan hefur Dagur
Kai verið að venjast foreldrum sínum og
nýjum heimkynnum. „Við elskuðum hann
frá upphafi en hann þurfti sinn tíma til
að mynda tengsl við okkur og það gerðist
hægt og rólega. Nú er eins og við höfum
alltaf verið foreldrar hans,“ upplýsir Sól-
rún og segir fjölskylduna hlakka til að
verja fyrstu jólunum saman. „Hingað
til höfum við haldið þau heima hjá for-
eldrum okkar en verðum nú bara þrjú á
aðfangadag og tökum svo á móti vinum og
vandamönnum. Satt best að segja bíðum
við hans með óþreyju. Jólin mega alveg
fara að koma, enda eiga þau eftir að verða
yndisleg.“ - rve
Jólin mega alveg koma
Hjónin Konráð Vestmann og Sólrún Eyfjörð Torfadóttir ættleiddu lítinn dreng, Dag Kai, frá Kína fyrr á
árinu. Fjölskyldan er nú í óðaönn að undirbúa fyrstu jólin saman.
Sameinuð Konráð og Sólrún ásamt syninum Degi Kai. MYND/HEIDA.IS
F34091211