Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 58

Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 58
4 fjölskyldan jólaskemmtun syngjum og dönsum ... Frábær tilboð Borgartún 36 105 Re ykjavík 588 9747 www.vdo.is Lay-Z-Spa heitir pottar. Aðeins örfá stykki til á gamla verðinu. 69.900 kr. Nazran motocross- og útivistarfatnaður á frábæru verði. 15X10 6X139,5 sex gata s tálfelgur, passa undir flesta jeppa, á aðeins 9.990 kr. Gaflaraleikhúsið frumsýnir Jóla Trúðabíó í dag. Trúðabíóið er samspil leikhúss og klassískra gamanmynda á borð við myndir Charlie Chaplin og stjórna trúðarnir bíósýningunni á sinn einstaka hátt. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning á borð við þessa er sett upp á Íslandi en samspil trúðleiks og sýninga á klassísk- um gamanmyndum hefur verið vinsælt í Evrópu og Bandaríkjunum. Trúðleikur hefur verið að festa rætur í íslensku leikhúsi og það er markmið Gaflaraleik- hússins að skapa starfsgrundvöll fyrir íslenskan trúðahóp. Ætlunin er að Trúðabíóið verði fastur liður í jóladagskrá Hafnar- fjarðar. Fyrsta sýning verður klukkan 14 í dag. Önnur sýning verður á morgun og svo næstu sýningar svo 17. og 18. desemb- er. Allar sýningarnar hefjast klukkan 14. Hægt er að panta miða á midi.is og gegnum netfangið midasala@gaflaraleikhusid.is Trúðabíó í Hafnarfirði Trúðslæti Trúðar bregða á leik. MYND/GAFLARALEIKHÚSIÐ Í mínum huga snúast jólin um kærleikann og mér þykir góð tilfinning að syngja fyrir kirkjugesti í jólamessum. Þá er andrúmsloftið svo hátíðlegt og ég vanda mig enn meir en vanalega,“ upplýsir Benedikt og Pétur Bjarni kinkar kolli til samþykkis. „Jóla- lögunum fylgir meira stuð og það kemur mér í jólaskap að syngja í kirkjunni um jólin því stund- in er ein sú hátíðlegasta á árinu; miklu hátíðlegri en 17. júní,“ segir Pétur Bjarni og nefnir sitt uppá- haldsjólalag úr dagskrá komandi jóla, sem er þýska jólalagið Maria Durch ein Dornwald ging, en Nótt- in var sú ágæt ein er í dálæti hjá Benedikt. Þeir Pétur Bjarni og Benedikt eru báðir níu ára og byrjuðu í Drengjakór Reykjavíkur haustið 2010. Þar syngja þeir fyrsta sópran, sem er hæst radda í drengjakórum. Þeir segjast hafa byrjað í kórnum vegna mikils áhuga á söng, en báðir læra enn fremur á píanó og stunda boltaíþróttir. „Kórdrengirnir eru allir orðnir vinir og skemmtilegast þykir mér að fara í æfingabúðir í Hlíðardals- skóla í Ölfusi, þar sem við æfum söng og leikum okkur þess á milli,“ segir Pétur Bjarni. „Mér finnst skemmtilegast að syngja á stórtónleikum eins og nú um helgina með Frostrósum og Sissel Kyrkjebø í Hörpu. Þar eru fleiri áheyrendur og svo mikið um að vera,“ segir Benedikt og Pétur Bjarni bætir um betur: „Einn vinur minn gapti þegar ég sagðist mundu syngja með Frostrósum á aðvent- unni og fannst það alveg ótrúlegt. Hann þekkir kannski ekki Sissel, en allir krakkar þekkja Frostrósir.“ Og kórdrengirnir hjartahreinu og hljómfögru hlakka mikið til jólanna. „Ég verð að segja að maturinn er það skemmtilegasta við jólin. Ham- borgarhryggur er uppáhaldsmatur- inn minn og hann fæ ég bara um jól. Því er hann aðeins meira spennandi en jólapakkarnir því ég fæ oftar gjafir en hamborgarhrygg yfir árið,“ útskýrir Benedikt í einlægni. „Ég held íslensk jól á aðfanga- dagskvöld og amerísk á jóladags- morgunn. Ég fæddist í Ameríku og þaðan höfum við haldið þessum skemmtilega sið. Ég bý nefnilega hjá pabba og mömmu til skiptis og fæ svo margar gjafir að ég er hepp- inn að geta haldið tvöföld jól,“ segir Pétur Bjarni kátur. - þlg Hamborgarhryggur betri en jólapakkar Kórdrengirnir Benedikt Gylfason og Pétur Bjarni Einarsson syngja með Drengjakór Reykjavíkur við jólamessu í Hallgrímskirkju á öðrum degi jóla. Þeir segja gott að geta gefið af sjálfum sér og glatt kirkjugesti með söng sínum. Englaraddir jóla Benedikt og Pétur Bjarni í hátíðlegum búningi Drengjakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju. Þeir segja kórstarfið skemmtilegt og eitt mesta fjörið að fara í æfingabúðir í Hlíðardalsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON aðfangadagskvöld á jóladagskvöld í staðinn, með jólamat, gjöfum og hátíðarstemningu við jólatréð. „Í fyrra mættum við klukk- an þrjú á Herinn til að undirbúa kvöldið sem best áður en gestir streymdu að og fórum ekki heim fyrr en að frágangi loknum að nálgast miðnætti á aðfangadags- kvöld. Í jólamat Hjálpræðishers- ins kemur breið flóra fólks, mikið af einstæðingum og útlendingum en einnig barnafjölskyldur. Hátt í helmingur heldur heim að loknu borðhaldi en hinir dansa í kring- um jólatréð og allir fá jólagjöf,“ útskýrir Rebekka sem hefur upp- skorið hlýleg viðbrögð vina við þessum ráðahag fjölskyldunnar. „Nokkrir vina minna urðu smá- vegis öfundsjúkir og þótti harla ólíklegt að geta fengið til liðs við sig alla fjölskylduna úr viðjum fastbundins jólahalds, en öllum þykir þetta lofsvert framtak og skemmtilegt,“ segir Rebekka, sem nú upplifir jólin upp á nýtt. „Jólin hafa breyst mikið því nú snúast þau meira um það sem þau eiga að snúast um; að fylla allt af kærleika því það er svo yndis- lega gaman, en áður snerust þau um jólagjafir og jólafrí. Ég gef ekki af sjálfri mér af trúarlegum ástæðum heldur fyrir mannkynið allt og sjálfa mig. Hjá Guði snúast jólin um að elska náungann og hjá mér snúast þau líka um að elska náungann. Við Guð erum því mjög sammála um jólin.“ - þlg Kærleiksríkar systur Þóra Katrín og Rebekka Þórsdætur í jólalegum hátíðasal Hjálpræðishersins. FRAMHALD AF FORSÍÐU Akureyringar og nærsveitungar ættu að komast í jólaskap á laugardagskvöld því þá verða tvennir tónleikar á jólalegum nótum í Hofi. Það er Baggalútur sem sér um fjörið, en tónleikar sveitarinnar eru löngu búnir að festa sig í sessi sem órjúfanlegur hluti af jólaundirbúningnum. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. 20% afsláttur helgina 9.-10. des. Ný sending beint frá London.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.