Fréttablaðið - 10.12.2011, Síða 96
10. desember 2011 LAUGARDAGUR68
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Haraldur Þórir
Theodórsson
fv. verslunarmaður,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 28. nóvem-
ber síðastliðinn verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 12. desember kl 13.00.
Guðjón Haraldsson Sigríður Siemsen
Þórir Haraldsson Mjöll Flosadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
and lát og útför ástkærrar móður okk-
ar,tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristjönu Þórhallsdóttur
Reykjaheiðarvegi 6, Húsavík.
Sérstakar þakkir til alls þess góða fólks á
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga fyrir frábæra
umönnum. Einnig til yndislegra nágranna á
Torginu á Húsavík.
Þórhallur Björnsson Sigríður Björg Sturludóttir
Þorkell Björnsson Hulda Guðrún Agnarsdóttir
Arnar Björnsson Kristjana Helgadóttir
ömmubörn, langömmubörn og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæra
Lilja Margrét
Oddgeirsdóttir (Lillý)
Hólmgarði 33,
lést á heimili sínu sunnudaginn 4. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristjana Gisela Herbertsdóttir
Sveinn Oddgeir Paulsson Mariann Koudal Oddgeirsen
Anna Þóra Paulsdóttir Páll Þór Pálsson
Paul Ragnar Kummer Ðao Thi Phuong
Helena Alma Ragnarsdóttir Jón Ingvar Ragnarsson
Sigurður Egill Ragnarsson Bryndís S. Halldórsdóttir
Sonja Valdemarsdóttir
Elskulegur faðir okkar, afi,
langafi, bróðir og vinur,
Brynjar Gunnarsson
lést á Landeskrankenhaus sjúkrahúsinu í Salzburg
þann 6. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Benjamín Brynjarsson
Innilegar þakkir fyrir allan þann
stuðning og hlýhug sem við höfum notið
við andlát og útför
Baldurs Jóhannessonar
verkfræðings,
og einnig þakkir til þeirra mörgu lækna og hjúkrunar-
fólks sem komu að veikindum hans gegnum árin og
fram á síðasta dag.
Elínborg Kristjánsdóttir
og fjölskylda.
Elskuleg frænka okkar,
Klara Klængsdóttir
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju þriðjudaginn
13. desember klukkan 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Gunnar K. Gunnarsson
Vegleg útiljósmyndasýning verður
opnuð í Austurstræti í dag klukkan
14 á alþjóðadegi mannréttinda. Það
er NPA-miðstöðin sem að sýningunni
stendur en hún er samvinnufélag fatl-
aðs fólks um persónulega aðstoð og
sjálfstætt líf.
Einnig kemur út metnaðarfull ljós-
myndabók sem nefnist Frjáls og hefst
sala á henni að aflokinni opnun sýn-
ingarinnar. Boðið verður bæði upp á
eyrnakonfekt í formi tónlistar og heitt
kakó í kroppinn. „Markmið bókarinn-
ar er að sýna að fatlað fólk er venju-
legt fólk sem lifir í samfélaginu eins
og aðrir og að ef hindrunum er rutt úr
vegi getur það lifað sjálfstæðu lífi,“
segir Freyja Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastýra NPA-miðstöðvarinnar.
„Það skiptir fólkið öllu máli að vera í
umhverfi þar sem það nýtur virðing-
ar líkt og allir aðrir, hefur aðgang að
samfélaginu og fær aðstoð sem það
getur stýrt sjálft og þannig mótað
sinn eigin lífsstíl.“ Hún segir öllum
þingmönnum þjóðarinnar boðið til
hátíðarinnar. Einn þeirra, Guðmund-
ur Steingrímsson, muni veita viðtöku
kröfuskjali fatlaðs fólks til sjálfstæð-
ara lífs.
Ljósmyndir bókarinnar eru teknar
af Hallgrími Guðmundssyni en hann
er einn af eigendum NPA-miðstöðvar-
innar fyrir hönd sonar síns Ragnars
Emils, sem er fjögurra ára leikskóla-
strákur og eðaltöffari. Texti er bæði á
íslensku og ensku og hefur NPA-mið-
stöðin stofnað Facebook-síðu í tilefni
af útkomu bókarinnar og sýningunni
undir notendanafninu Frjáls/Free. Þar
má panta bókina auk þess sem hún
verður til sölu í verslunum Hagkaups
í Kringlunni. Ágóðinn rennur til MTA
miðstöðvarinnar. - gun
AÐ LIFA SJÁLFSTÆÐU LÍFI
FREYJA HARALDSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTÝRA „Þetta er ekki svona: „Komið og sjáið grey þau
á myndunum. Þetta er allt annað,“ segir hún.
Okkar ástkæri
Ingólfur Guðnason
bóndi frá Eyjum I í Kjós,
verður jarðsunginn frá Reynivallakirkju í Kjós
laugardaginn 10. desember kl. 14.00.
Anna Ingólfsdóttir Kristinn Helgason
Hermann Ingólfsson Birna Einarsdóttir
Páll Ingólfsson Marta Karlsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir
Valborg Ingólfsdóttir Ómar Ásgrímsson
afabörn og langafabörn.
Sjötta og síðasta bókin í röð Ópus-bók-
anna, kennslubóka í tónfræðum, kom út
nú í haust. Höfundar bókanna eru tón-
menntakennararnir Marta E. Sigurðar-
dóttir og Guðfinna Guðlaugsdóttir en
þær gefa bækurnar út sjálfar.
Sú fyrsta kom út árið 2008 en hug-
myndin kviknaði þó árið 1997 þegar
Marta og Guðfinna lásu yfir drög
að nýrri námskrá í tónfræðum frá
mennta- og menningarmálaráðuneyt-
inu. „Okkur var ljóst að þörf væri á
breytingum í kennslunni og að þörf
væri á skilvirkara námsefni,“ segir
Marta en í Ópus- bókunum er lögð
áhersla á myndræna framsetningu
efnisins. „Það er vel þekkt að myndræn
framsetning eykur bæði skilning og
áhuga hjá nemendum,“ útskýrir Marta.
„Okkur vitanlega hefur ekkert tón-
fræðaefni verið sett fram á sambæri-
legan hátt hér á landi né annars stað-
ar svo bækurnar eru nýjung hvað það
varðar,“ segir Marta. Rán Flygen ring,
grafískur hönnuður, myndskreytti
allar bækurnar. „Bækurnar hafa feng-
ið frábærar viðtökur bæði af nemend-
um og kennurum og voru meðal annars
kynntar á Bókamessunni í Frankfurt
nú í haust,“ segir Marta en þær stöll-
ur eru að vonum ánægðar með að hafa
lokið verkinu. „Allt efnið kenndum við
til reynslu og völdum úr það sem fékk
besta svörun. Þetta hefur verið mikil
vinna í öll þessi ár og varla liðið sá
dagur að ekki fór fram einhver hug-
myndasmíð eða önnur vinna við gerð
bókanna.“ - rat
Gáfu sjálfar út sex bækur
HRINGNUM LOKAÐ Tónmenntakennararnir
Marta E. Sigurðardóttir og Guðfinna Guð-
laugsdóttir hafa gefið út sex kennslu-
bækur í tónfræðum á þremur árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN