Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 112
10. desember 2011 LAUGARDAGUR84
folk@frettabladid.is
Íslensk nýsköpun, hugvit og
www.sifcosmetics.is
R\
PI
PA
R\
W
A
TB
W
A
•
S
ÍA
A
•
1
13
0
2
11
3
0
2
0
2555
fram slið ale
Ein forvitnilegasta nýja stjarna
ársins 2011 er bandaríska söng-
konan Elizabeth Grant, sem kall-
ar sig Lana Del Rey. Sú sló í gegn
með laginu Video Games
fyrr á þessu ári, en lagið
situr enn á vinsældalista
Rásar 2.
Lítið er vitað um
stúlkuna og snerist
fjölmiðlaumfjöllun í
fyrstu aðallega um
þrýstnar varir
söngkonunnar,
henni til mikils
ama. Nú hefur
L a n a h i n s
vegar snúið
umræðunni að
öðru því hún
hefur gefið upp
að tónlistar-
maðurinn sem
hafi veitt henni
mestan inn-
blástur sé Kurt
Cobain. „Þegar ég var 11 ára sá
ég Cobain syngja Heart Shaped
Box á MTV sjónvarpsstöðinni,
og ég fraus algjörlega. Mér
fannst hann vera falleg-
asta manneskja sem ég
hafði nokkru sinni séð, og
þótt ég væri svona ung
tengdi ég strax við dep-
urð hans,“ sagði söngkon-
an í útvarpsviðtali.
Hún hlustaði svo
ekki á tónlist Nirvana
fyrr en hún varð 17
ára, en hún segir að
allt til dagsins í dag
haldi Cobain áfram
að vera henni inn-
blástur í því að vilja
ekki gera neinar mála-
miðlanir í laga- og
textasmíð sinni.
Fékk innblástur frá
Kurt Cobain
EFNILEG Lana hefur hvorki
viljað neita né staðfesta að
varir hennar séu þrýstnar af
mannanna völdum.
Paris, þrettán ára dóttir popparans
sáluga Michaels Jackson, hefur
fengið hlutverk í sinni fyrstu kvik-
mynd. Hún heitir Lundon´s Bridge
and the Three Keys og er ævin-
týramynd þar sem bæði raunveru-
legar og teiknaðar persónur koma
við sögu.
Fjölskylda Parisar vildi ekki að
hún byrjaði í skemmtanabransan-
um fyrr en hún væri orðin átján
ára. Blaðið Sun heldur því fram
að hún hafi getað sannfært ömmu
sína Katherine um að leyfa sér að
leika í myndinni og sagði henni
að pabbi hennar hefði orðið hrif-
inn af boðskapnum. Þar er vænt-
umþykja ungrar stúlku gagnvart
föður sínum mest áberandi. Mynd-
in er byggð á bókaröð eftir Dennis
H. Christen og fjallar um höfrung
sem breytist í manneskju.
Paris fetar þar með í fótspor
föður síns, sem var mikil barna-
stjarna. Hann sló í gegn átta ára
í hljómsveitinni The Jackson 5 og
lék í sinni fyrstu kvikmynd, The
Wiz, þegar hann var tvítugur.
Paris gerist leikkona
FYRSTA HLUTVERKIÐ Paris hefur fengið
fyrsta kvikmyndahlutverk sitt.
Jólasýning Mið-Íslands með finnska uppistandaranum André Wickström fór
fram á fimmtudagskvöldið. Fjöldi fólks sótti sýninguna og að venju var hlegið
dátt að bröndurum piltanna. Wickström fór einnig á kostum með túlkun sinni á
skandinavískum „dansböndum“ og gerði jafnframt góðlátlegt grín að frændum
okkar Dönum.
ENN OG AFTUR TROÐ-
FULLT HJÁ MIÐ-ÍSLANDI
FÉLAGAR Leikstjórinn Ragnar Bragason mætti á sýninguna ásamt vini sínum og samstarfsmanni, Jóhanni Ævari
Grímssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
7 ár
GLAÐLEGAR Ása María Guðbrandsdóttir og Guðríður
Jóhannsdóttir voru á meðal áhorfenda.
KAMPAKÁTIR Félagarnir Sveinbjörn Fjölnir Pétursson og
Jens Jensson skemmtu sér stórvel á fimmtudaginn.
GÓÐIR GESTIR Þau Eva Demireva, Kolbrún Harðardóttir
og Sævar Ólafsson voru á meðal gesta.
James Taylor, einhver þekktasti
söngvari og lagahöfundur tuttug-
ustu aldarinnar, stígur á svið í
Hörpunni 18. maí.
Taylor er margfaldur Grammy-
verðlaunahafi og eitt vinsælasta
söngvaskáld sem komið hefur
fram. Hann varð frægur á átt-
unda áratugnum með lögum eins
og You´ve Got A Friend og Fire
and Rain. Taylor var vígður inn
í Frægðarhöll rokksins árið 2000
og hafa plötur hans selst í tugum
milljóna eintaka. Miðasala á tón-
leikana hefst á Harpa.is og í
síma 528-5050 mánudaginn 19.
desember.
James Taylor
til Íslands
TIL ÍSLANDS James Taylor er á leiðinni til
Íslands í maí á næsta ári.
NORDICPHOTOS/GETTY
ERU LIÐIN frá því að Dimebag Darrell var myrtur á sviði.
Þungarokksaðdáendur heiðruðu minningu hans í vikunni.