Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 5. M A R S 2 0 1 1
Stofnað 1913 54. tölublað 99. árgangur
LOPABRÆKUR
TIL VERNDAR
DJÁSNINU
BJÖSSI
BOLLA OG
PRINS PÓLÓ
EKKERT PLÁSS
FYRIR SAKLEYSI
Í LEIKRITINU
SUNNUDAGSMOGGINN MH SÝNIR LJÓTLEIK 48
KARLMANNLEG
KLÆÐI 10
Félagar í MC Iceland eru orðnir fullgildir meðlimir í glæpa-
samtökunum Vítisenglum, eins og skilti sem sett var utan á
húsnæði MC Iceland í Hafnarfirði í gær, á meðan átta félagar
í hópnum voru í haldi lögreglu á Gardermoen-flugvelli, ber
með sér. Áttmenningunum var vísað úr landi í gær en alls er
talið að vel á annan tug sé í Vítisenglum - MC Iceland.
Fullgilding MC Iceland og fleiri nýleg mál sem tengjast
skipulögðum glæpum, m.a. af hálfu erlendra glæpahópa, hafa
leitt til þess að innanríkisráðuneytið hefur flýtt vinnu við að
rýmka heimildir lögreglu til rannsókna. Nú er erfitt fyrir lög-
reglu að rannsaka starfsemi glæpasamtaka þar sem aðal-
skipuleggjendur koma ekki að brotunum sjálfum. »14
Vítisenglar koma sér fyrir á Íslandi
Morgunblaðið/Golli
MC Iceland fullgildur aðili að alþjóðlegu glæpasamtökunum Átta Vítisenglum vísað frá Noregi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hækkandi verð á matvælum, elds-
neyti og öðrum nauðsynjum hefur
þrengt að hag öryrkja og er nú svo
komið að hluti þeirra á ekki lengur
fyrir brýnustu nauðsynjum. Eru
dæmi um að einstæðar mæður hafi
hríðhorast vegna matarskorts.
Nauðsynjar hækka í verði
„Margir treysta sér ekki í matar-
biðraðirnar. Þeir svelta frekar. Þeir
skammast sín. Aðrir láta sig hafa
það vegna barna sinna. Svo eru aðrir
sem búa einir og kjósa frekar að
neita sér um mat en að þiggja slíka
aðstoð. Þessi hópur hefur stækkað í
kreppunni. Matur, lyf og eldsneyti,
allt hefur þetta hækkað í verði,“ seg-
ir Halla B. Þorkelsson öryrki um
kjör bágstaddra öryrkja.
Rætt er við einstæða móður á
Akureyri í Morgunblaðinu í dag sem
sagði frá kjörum sínum í trausti
nafnleyndar. „Ég get ekki keypt mat
handa stráknum mínum í framhalds-
skólann. Þetta er ekkert líf … Það
hefur ekki verið keyptur matur á
heimilinu síðustu tvær vikurnar. Ég
var 55 kíló í haust en nú er ég 48
kíló,“ segir konan um heilsufar sitt.
Flýr út á land
Ragnheiður Jónsdóttir öryrki
segir svipaða sögu. „Ég er að flýja út
á land með vinkonu minni til að fá að
borða það sem eftir er mánaðarins,“
segir Ragnheiður sem kveðst hafa
lést um 20 kíló síðan kreppan hófst.
Saga þessara tveggja er ekkert
einsdæmi, að sögn Guðmundar
Magnússonar, formanns Öryrkja-
bandalags Íslands. „Fólk sem er án
vinnu en er með bíl heldur í við sig
með mat síðustu daga mánaðarins til
þess að geta þá að minnsta kosti átt
við og við fyrir bensíni heim til
mömmu í mat,“ segir hann. »12
Svelta sig til að
eiga mat fyrir börnin
Einstæð móðir hefur ekki átt fyrir mat í hálfan mánuð
Bankasýsla ríkisins átti frumkvæðið
að viðræðum um sameiningu á rík-
isbönkunum NBI og SpKef spari-
spjóði. Síðarnefnda fjármálafyrir-
tækið er í afar slæmri stöðu eftir
hrun fjármálakerfisins, en rætt hef-
ur verið um að ríkissjóður þurfi að
leggja sparisjóðnum til að minnsta
kosti 14 milljarða króna í beinhörð-
um peningum til að halda starfsem-
inni gangandi. Þegar innlán og
eignir voru færðar yfir í nýtt félag,
SpKef sparisjóð, var um sjö millj-
arða halli á efnahagsreikningi sjóðs-
ins. Staðan var raunar svo slæm að
slitastjórn gamla sparisjóðsins hef-
ur nú þegar klárað þær 100 millj-
ónir sem fengust úthlutaðar til að
slíta sparisjóðnum og þarf fjárveit-
ingu til að halda slitameðferðinni
áfram.
Fjármálaráðuneytið sendi frá sér
tilkynningu um málið í gær, þar
sem segir að unnið sé að fjármögn-
un á þeirri starfsemi SpKef. Ekki
fylgdu með útskýringar í tilkynn-
ingu í hverju sú vinna fælist. Jafn-
framt fylgdi áminning um að inni-
stæður væru tryggðar í samræmi
við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá október 2008. Talinn er mögu-
leiki á því að SpKef verði með-
höndlaður líkt og SPRON, en við
gjaldþrot þess sparisjóðs var inn-
lánum rennt inn í Arion banka, sem
fékk í kjölfarið ákveðna lausafjár-
tryggingu frá ríkinu. Samkomulag
var gert við kröfuhafa SpKef í nóv-
ember sl. um greiðslu fyrir yfirtöku
á innlánum og rekstri. thg@mbl.is
»Viðskipti 26 og 2
Sameining
banka líkleg
Bankasýslan stakk upp á sameiningu
SpKef Unnið að lausn mála.
„Ég myndi segja að fólk sem
þarf að kaupa nauðsynleg lyf
hafi engan afgang … Það er
verslað einu sinni í mánuði og
síðan eru þessar tvær síðustu
vikur mánaðarins alltaf erfiðar.
Þá tekur við hafragrautur til að
draga fram lífið,“ segir Halla B.
Þorkelsson öryrki um matar-
skort hjá hluta öryrkja.
„Maður hefur séð fólk hríð-
horast … Neyðin er sár hjá
mörgum. Margir hafa ekki efni á
að fara með börnin sín til tann-
læknis,“ segir hún.
Mánuðurinn
er of langur
HAFRAGRAUTUR Í ÖLL MÁL