Morgunblaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
Gunnar Rögn-valdsson skrif-
ar:
Nú er að gerastþað sama og
gerðist þegar for-
ingjar í ríkisstjórn
Samfylkingarinnar og Sjálfstæðis-
flokksins hófu erlenda áróðurs-
herferð fyrir þrem rosalega sterk-
um íslenskum bönkum; Glitni,
Landsbankanum og Kaupþingi. Þá
þurfti bráðnauðsynlega að sækja sér
fjármagnið erlendis.
Engar líkur voru á að bankarniryrðu gjaldþrota. Samfylkingin
vissi þá svo vel hvað hún var að segja
og ég horfði á hana segja það í
danska sjónvarpinu. Hún sá nefni-
lega um eftirlitið með þessum bönk-
um öllum. Fjármálaeftirlitið var
hennar.
Það sem er að gerast í ríkisstjórnÍslands í dag er það sama og
gerðist í þeirri síðustu. Samfylk-
ingin er þó ekki alveg sú sama – orð-
in mörgum sinnum verri – og situr
enn í ríkisstjórn. Það eina sem hefur
breyst er að nú verður ríkisstjórnin
að sækja sér fjármagnið innanlands;
hjá börnum, gamalmennum, vinn-
andi og líka veiku fólki. Til þessa
notar ríkisstjórnin einn fremsta
kosningasvikara Íslandssögunnar til
að villa um fyrir þjóðinni. Hann
kann það fag fram í alla fingur-
góma. Hér er kominn á vígvöllinn
sjálfur Steingrímur J. Sigfússon,
gamall en þvottekta kommúnisti.
Liturinn fer aldrei úr honum.
Ríkisstjórnina vantar bráðnauð-synlega peninga til að fylla aft-
ur á bankana sem engar líkur voru á
að tæmdust né færu í gjaldþrot.
Hana vantar peninga sem hægt er
að flytja út og gefa í útlöndum svo
hún sjálf geti setið hér aðeins leng-
ur. Aftur er stuðst við líkindareikn-
inginn. Eða ætti ég að segja út-
reikninginn fyrir líkin.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Nánast allar líkur
STAKSTEINAR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
05
71
Styrkir úr Menningar- og
framfarasjóði Ludvigs Storr
Stjórn Menningar- og framfarasjóðs Ludvigs Storr hefur
ákveðið að veita styrki samtals allt að 15 milljónum króna
í tilefni af 30 ára afmæli sjóðsins og 100 ára afmæli
Háskóla Íslands.
Tilgangur sjóðsins er samkvæmt skipulagsskrá að stuðla
að framförum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnaðar
og skipasmíða með því að styrkja vísindamenn á sviði
jarðefnafræða, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga
og iðnaðarmenn til framhaldsnáms, svo og að veita styrki
til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum
greinum.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2011.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er hægt að
nálgast á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands,
www.sjodir.hi.is, og á vefslóðinni www.ludvigstorr.is.
Umsóknir skulu sendar í ábyrgðarpósti til Menningar- og
framfarasjóðs Ludvigs Storr, Laugavegi 15, 101 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður P. Gíslason
í síma 861 3173.
Veður víða um heim 4.3., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri 1 léttskýjað
Egilsstaðir -1 skýjað
Kirkjubæjarkl. 2 léttskýjað
Nuuk 0 snjókoma
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 0 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 10 heiðskírt
Brussel 7 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 7 heiðskírt
París 8 heiðskírt
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg -1 skýjað
Berlín 5 heiðskírt
Vín 6 heiðskírt
Moskva -1 skýjað
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 5 skúrir
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Róm 8 súld
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -13 skýjað
Montreal -8 alskýjað
New York 2 heiðskírt
Chicago 7 alskýjað
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:22 18:57
ÍSAFJÖRÐUR 8:31 18:58
SIGLUFJÖRÐUR 8:15 18:41
DJÚPIVOGUR 7:53 18:26
„Þetta gekk mjög vel. Það er nóg-
ur fiskur þarna og hann er stór og
fallegur,“ sagði Björn Jónasson,
skipstjóri á Málmey frá Sauðár-
króki, sem er að koma úr Barents-
hafi með um 900 tonn af þorski og
ýsu.
Nokkur skip hafa verið við veið-
ar í Barentshafi síðustu vikurnar,
en auk Málmeyjar hafa togararnir
Venus, Þór Gnúpur og Sólbakur
verið þar við veiðar. Björn sagði
að öll skipin hefðu fengið mjög
góðan afla.
Björn er ánægður með túrinn,
en skipið kemur í land á morgun.
Eina sem skyggi á er að verð á
þorski sé ekkert sérstaklega hátt.
Túrinn skili sér hins vegar alveg
vegna þess hversu mikið magn af
fiski sé í lestum skipsins.
Málmey var um 20 daga að veið-
um og er núna á heimleið. Björn
sagði að siglingin heim væri búin
að vera erfið, SV-stormur allan
tímann. Venjulega tekur sigling úr
Barentshafi þrjá sólarhringa, en
að þessu sinni tekur siglingin
fjóra og hálfan sólarhring.
Eftir Smugudeiluna svokölluðu
var gert samkomulag um að Ís-
land fengi kvóta í Barentshafi og
hafa nokkur íslensk skip farið ár-
lega í norska og rússneska lög-
sögu á grundvelli samningsins.
Málmey með 900 tonn úr Barentshafi
Nokkur íslensk skip hafa verið við
veiðar í Barentshafi síðustu vikurnar
Morgunblaðið/RAX
Fyrrverandi forstöðumaður fang-
elsisins á Kvíabryggju var hand-
tekinn í gær. Hann er grunaður
um að hafa misfarið með fjármuni
stofnunarinnar og er rannsókn
málsins í höndum lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Húsleit var
jafnframt framkvæmd á heimili
mannsins á Grundarfirði í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu stóð einnig til að rætt
yrði við starfsmenn Kvíabryggju í
tengslum við málið og að forstöðu-
manninum yrði sleppt að lokinni
skýrslutöku.
Umfangsmiklar aðgerðir
Aðgerðir lögreglu voru um-
fangsmiklar og hófust þær í gær-
morgun. Sex starfsmenn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu tóku
þátt í þeim, en þeir nutu aðstoðar
lögreglunnar á Snæfellsnesi. Lagt
var hald á ýmis gögn og muni, að
sögn lögreglu.
Forstöðumaðurinn, sem var
skipaður í stöðuna snemma árs
2006, var leystur tímabundið frá
störfum vegna rannsóknar máls-
ins.
Í vetur vakti Fangelsismála-
stofnun athygli dómsmála- og
mannréttindaráðuneytisins á að-
finnslum sem hún gerði við fjár-
reiður og bókhald fangelsisins á
Kvíabryggju.
Ráðuneytið ræddi við forstöðu-
mann fangelsisins og var í fram-
haldi óskað eftir því að Ríkisend-
urskoðun færi yfir bókhaldið.
Að sögn lögreglu var skýrslu
Ríkisendurskoðunar bætt við
ákæruna sem var gefin út á hend-
ur forstöðumanninum.
Handtekinn vegna
gruns um misferli
Húsleit gerð á heimili fyrrv. for-
stöðumanns fangelsisins á Kvíabryggju
Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns
Kvíabryggja Lögregla lagði hald á
ýmis gögn og muni.