Morgunblaðið - 05.03.2011, Page 36

Morgunblaðið - 05.03.2011, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011 ✝ GunnlaugurKalman Stef- ánsson var fæddur 28. mars 1935 í Kalmanstungu í Borgarfirði. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. febr- úar 2011. Foreldrar hans voru Stefán Schev- ing Ólafsson, f. 14. júlí 1901, d. 18. september 1977 og Kristín Valgerður Ein- arsdóttir, f. 30. nóvember 1901, d. 27. febrúar 1988. Stefán ólst upp í Kalmanstungu og var bóndi þar, síðar þingvörður í Reykjavík. Valgerður lærði hjúkrun í Skotlandi og starfaði síðan í nokkur ár á sjúkra- húsum í Bandaríkjunum en flutti til Íslands árið 1930 og gerðist húsfreyja í Kalmans- tungu. Systkini Kalmans eru Ólafur lögfræðingur, sem er látinn og Jóhanna Helga Lind, búsett í Orlandó í Bandaríkj- unum. Börn hennar og Róberts Ibarguen, sem er látinn, eru Stefán, Siri, og Sylvía. Kalman kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Bryndísi Jónu Jónsdóttur 22. nóvember 1959. Bryndís er fædd 27. maí 1939 í Reykjavík þar sem hún ólst foreldrar Stefán Guðnason og Anna Þórarinsdóttir. Synir þeirra eru Tryggvi Kalman, f. 1994 og Stefán Gunnlaugur, f. 1995. Kalman ólst upp í Kalman- stungu, tók landspróf frá Reyk- holti árið 1951, starfaði við bú- störf í Kalmanstungu og var tvo vetur við nám í Kennaraskóla Íslands. Einnig fór hann á síld- arvertíð og stundaði aðra vinnu utan heimilis um tíma. Hann gerðist bóndi í Kalmanstungu árið 1957 og þar áttu þau Bryn- dís heimili frá árinu 1959. Kalmanstunga er stór fjallajörð og auk sauðfjárbúskapar var silungur, rjúpnaveiði og grenja- leit á Arnarvatnsheiði, í Hall- mundarhrauni og Strútnum hluti af búrekstrinum. Kalman var framkvæmdasamur og hafði ánægju af því að byggja upp á jörð sinni, bæði húsakost og ræktarland. Á sínum yngri árum tók Kalman virkan þátt í starfsemi Sjálfstæðisflokksins, meðal annars í Félagi ungra sjálfstæðismanna og Félagi sjálfstæðismanna í Mýrasýslu, með setu á framboðslistum og sem fulltrúi á landsfundum þar sem hann var kjörinn í mið- stjórn árið 1969. Kalman tók jafnframt virkan þátt í störfum björgunarsveita í Borgarfirði um árabil. Útför Kalmans fer fram frá Reykholtskirkju í dag, laug- ardaginn 5. mars 2011 kl. 14. upp, dóttir Jóns Ásgeirs Brynjólfs- sonar frá Hlöðu- túni í Stafholt- stungum og Kristínar Ólafs- dóttur frá Flateyri. Systkini Bryndísar eru Ásta, séra Ólaf- ur Oddur, sem er látinn og Margrét. Börn Kalmans og Bryndísar eru: 1) Stefán Valgarð, f. 9. febrúar 1961. Maki Kristín Finndís Jónsdóttir, foreldrar Jón Magn- ús Finnsson og Sólveig Gutt- ormsdóttir. Barn Stefáns og Kristínar er Jóhanna Katrín, f. 2001. Kristín var áður gift Kristjáni Arndal Eðvarðssyni sem lést árið 1997. Börn þeirra eru Ingvar Arndal, Ómar Arn- dal og Anna Ólöf. Sambýliskona Stefáns var Þórunn Liv Kvaran. Börn þeirra eru Inga Val- gerður, f. 1988, sambýlismaður Alexander Þór Crosby og Kal- man, f. 1992. 2) Kristín, f. 9. maí 1962. Maki Marcelo Luis Audi- bert Arias, foreldrar Pedro Audibert og Adriana Arias Audibert. Börn þeirra eru Bryndís Margrét, f. 1994 og Marcelo Felix, f. 1998. 3) Jón Ásgeir, f. 11. febrúar 1966. Maki Ástríður Stefánsdóttir, Að eiga Kalman Stefánsson fyrir pabba, tengdapabba og afa eru mikil forréttindi sem verða aldrei fullþökkuð með orðum. Kalmanstunga verður ekki söm án hans né tilvera okkar sem söknum hans svo mikið. Kalman Stefánsson, bóndi í Kalmans- tungu, var engum líkur. Minn- ingin um hann lifir og veitir gleði, huggun og styrk. Kristín, Marcelo, Bryndís og Marcelo Felix. „Og hverra manna ertu?“ Þannig heilsaði Kalman nýrri stúlku sem kom á bæinn og átti síðar eftir að verða tengdadóttir hans. Kalman hafði einlægan áhuga á fólki, á ætt þess og upp- runa. Ég þurfti því lítið að segja áður en hann gat rakið ætt mína og ættir okkar beggja saman. Við vorum fimmmenningar. Það- an í frá var ég frænka hans. Við nánari kynni okkar leyndi sér ekki að Kalman var bæði óvenju skarpur í hugsun og minnugur. Í viðræðum við hann hafði ég iðu- lega á tilfinningunni að hann hefði hlustað á alla fréttatíma frá seinna stríði og myndi þá alla með tölu. Því fljótt rak mig iðulega í vörðurnar; ég mundi ekki hver hafði verið forsætis- ráðherra eða hvenær atburðir höfðu gerst en Kalman mundi það. Hann var vel að sér bæði í innlendri og erlendri stjórn- málasögu enda þar hans áhuga- svið. Ef aðstæður hefðu verið aðrar hefði hann án efa sótt sér meiri menntun. Þangað stóð hugurinn þegar hann var yngri. En ábyrgðartilfinningin var líka rík, hann átti að taka við jörð- inni og búskapur varð hans ævi- starf. Kalman var óvenjustór maður og fangaði athygli manns. Hann lagði mikið upp úr því að vera sjálfum sér nógur. Mér er minn- isstætt þegar hann hafði á orði við mig að hann vildi helst bara borða það sem hann fengi af eig- in jörð. Hann nýtti líka afurðir jarðarinnar og var stoltur af þeim gjöfum sem hún gaf af sér. Hann sótti silung upp á Arn- arvatnsheiði, fékk kjöt af eigin fé, ræktaðar voru kartöflur heima og tínd ber. Vitanlega er það mikið ríkidæmi að búa í slíkri matarkistu. En það þurfti að hafa fyrir matnum. Ferðir upp í Reykjavatn gátu verið erf- iðar sem og smalamennska og leitir, vetur voru oft harðir og samgöngur torfærar. Í raun var ekkert pláss fyrir meðal- mennsku í Kalmanstungu, bændur þar þurftu að vera stór- ir og þrautseigir, annars nýttust þeim ekki gæði landsins. Kalmanstunga er stór jörð, hún er hrjóstrug en hún er líka fegurst allra jarða, með sitt hraun, sinn jökul og sínar ynd- islegu gróðurvinjar. Kalman var eins og landið sem hann bjó á. Hann var samofinn jörð sinni, ekki einungis að hann bæri nafn jarðarinnar, hann var hluti af henni. Hann var skapmikill en hann var líka hlýr. Hann var ekki að flíka eigin tilfinningum en hann stóð með sínu fólki og það var svo augljóst af öllum hans gjörðum og tali að fjöl- skyldan, fólkið hans, var það sem skipti hann mestu máli. Hann elskaði fólkið sitt, hann hafði metnað fyrir þess hönd og var stoltur af því. Stuðning hans átti maður ávallt vísan. Það hef- ur verið ómetanlegt veganesti fyrir fjölskylduna okkar og fyrir það verð ég ævarandi þakklát. Ástríður Stefánsdóttir. Mitt ríki er heiðin; mýrarflákar og móar, mosaþembur, veiðitjarnir og flóar, og þar eru kynni þursa og álfabarna, og þaðan er opin leið til sólar og stjarna. (Davíð Stefánsson.) Nú hafa heiðarnar upp af Kalmanstungu opnað faðm sinn fyrir einum af sínum bestu son- um, Kalmani Stefánssyni, og greitt honum leiðina til stjarn- anna. Hann er vel að hvíldinni kominn að loknu drjúgu dags- verki. Við sem eftir stöndum syrgjum og þökkum góða leið- sögn og gefandi samfylgd. Tengdafaðir minn tók á móti mér kíminn á svip þegar ég hitti hann fyrst og það fór notalega á með okkur frá fyrstu stundu. Ræddum oft um lífið og til- veruna. Ef um einhvern var rætt var hann með ættartölurn- ar á hreinu. Við sem njótum gæða nútímalífsins metum lík- lega ekki sem skyldi framlag þeirra sem ruddu brautina, bjuggu í haginn fyrir okkur. Þess vegna er það hollt og nær- andi að eiga samneyti við fólk eins og Kalman sem þekkti tím- ana tvenna. Hann stóð sína plikt og eltist ekki við hégóma. Jarð- sambandið var traust og óhagg- að á hverju sem gekk. Samband hans við Jóhönnu Katrínu, dótt- ur okkar Stefáns, var fallegt. Hann kallaði hana blómið sitt og sagði að hún yrði örugglega for- maður kvenfélagsins seinna meir. Bryndís tengdamamma var óþreytandi við að hlúa að honum og gera allt til að hann gæti verið heima. Á sinn hljóð- lega hátt hafði hún ákveðið það. Ég dáðist að þeirri virðingu og kærleika sem á milli þeirra var. Hann sagði mér eitt sinn að í Kalmanstungu hefði hann fæðst og lifað og þar vildi hann deyja. Svo fór að það rættist næstum því hann var rétt kominn suður í nýju íbúðina þeirra þegar hann var lagður inn á spítala mjög veikur rétt fyrir jólin og kom þá í ljós að fyrir honum átti ekki að liggja að lifa annars staðar en í sveitinni sinni kæru. Hann kvaddi mig með blessun á vörum nokkrum dögum fyrir andlátið. Í gegnum lífsins æðar allar fer ástargeisli, Drottinn, þinn í myrkrin út þín elska kallar, og allur leiftrar geimurinn, og máttug breytast myrkraból í morgunstjörnur, tungl og sól. (Matthías Jochumsson.) Ég sé kæran tengdaföður minn fyrir mér standandi á fag- urgrænum hól í Kalmanstungu hvar hann teygir úr sér mót heiðbláum himni, laus úr veik- indaviðjum og kominn á fund horfinna ættingja sem baða hann í mildi sinni og umhyggju. Al- máttugur Guð verndi og blessi minningu Gunnlaugs Kalmans Stefánssonar og umvefji með styrk elsku Bryndísi og aðra ættingja á erfiðum tímum. Þín tengdadóttir, Kristín Finndís. Elsku afi minn, ég sakna þess að fá að tala við þig og heyra röddina þína og sakna þess líka að koma heim til þín og þú segir við mig halló litla blómið mitt, en ég veit að núna ertu alltaf að fylgjast með mér. Mér þótti og þykir óskaplega vænt um þig og ég veit að þér þótti vænt um mig og ég veit að þér þykir enn vænt um mig. Þetta er bænin sem þú og amma kennduð mér: Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Blómið þitt, Jóhanna Katrín. Það er ósk mín að segja nokk- ur orð í minningu Kalmans bróður míns. Betri bróður er ekki hægt að hugsa sér. Þegar við vorum að alast upp fann ég þann styrk, sem það veitir að eiga stóran bróður. Á seinni árum ævinnar þegar við vorum aðskilin vegna veru minnar í Bandaríkjunum, þá var hann mér alltaf jafnkær. Nú er hann horfinn á braut en skilur eftir svo margar góðar minningar. Konu hans, Bryndísi, börnum og barnabörnum sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Jóhanna. Kær mágur og svili er fallinn frá, allt of fljótt. Kalman var hjálpsamur athafnamaður og mikill vinur. Það var gott að vera í návist hans og ánægjulegt að ræða við hann hin ýmsu mál lífsins. Minningar úr Borgarfirð- inum, sveit Kalmans, eru líka of- arlega í huga, Arnarvatnsheiði, Strútur, hellarnir og Tungan. Hvað hann var umhyggjusamur við þrettán ára mágkonu, sem naut þess að annast yndisleg börn hans. Einnig gleymist seint útivera í heyskap, smala- mennsku og að birkja tré í girð- ingu. Þar lærði margur ungling- urinn að vinna undir stjórn þeirra hjóna Kalmans og Bryn- dísar. Sú ánægjulega minning endist þeim ævilangt. Að vera lítil perla í vinakeðju er dýrmæt reynsla. Síðustu árin sat at- hafnamaðurinn Kalman á frið- arstóli, hljóður en athugull. Jafnt um það sem lesa mátti í dagblöðum gærdagsins eða það sem stóð í gömlum bókum eins og Sturlungu. Æðruleysi, bros og vinar- kveðja þegar við komum í Kal- manstungu verður okkar minn- ing. Innilegar samúðarkveðjur. Þökkum góða samfylgd. Margrét og Torfi. Frændi okkar og vinur, Kal- man Stefánsson, hefur kvatt okkur. Kalman var örlagavaldur í lífi okkar og fráfall hans hleyp- ir af stað skriðu tilfinninga og minninga. Minninga frá dvöl okkar í Kalmanstungu sem börn og unglingar. Þetta var mótun- artímabil í lífi okkar og þó að hálf öld sé liðin er þetta tímabil ljóslifandi enn þann dag í dag. Í Kalmanstungu var allt stórbrot- ið, þar gustaði um mikla per- sónuleika og fjöllin rísa hátt á þessum þá afskekkta stað. Það var ómetanlegt fyrir okkur að upplifa stórbrotið mannlíf og stórkostlega náttúrufegurð Kal- manstungu á uppvaxtarárum okkar. Kalman var einstakt glæsi- menni, hæfileikaríkur á allan máta og fæddur með leiðtoga- hæfileika. Með framkomu sinni og glaðværð var hann foringi í starfi og leik. Fólk sóttist eftir samneyti við hann og enda var hann skemmtilegur maður. Ekki fór hjá því að hitt kynið liti hann hýru auga, en eftir að hann sá Bryndísi sína í fyrsta sinn á Snorrahátíð í Reykholti komst ekki framar önnur kona að í huga hans. Þetta var ást við fyrstu sýn. Ást sem hafin var yf- ir allan vafa og varði alla ævi. Þessi djúpa ást og vinátta hjónanna var gagnkvæm. Nám lá vel fyrir Kalmani og vinna lék í höndum hans. Hann átti auðvelt með að virkja ung- viðið í sveitinni og var næmur á hvað mátti bjóða hverjum og einum í verkum sem vinna þurfti. Kalmani voru í raun allir vegir færir og hefði hann auð- veldlega getað valið sér hvern þann vettvang sem honum sýnd- ist. Hann kaus þó mjög ungur að taka við ættaróðalinu af for- eldrum sínum og var síðar bóndi í Kalmanstungu alla sína starfs- ævi. Hann valdi að rækta jörð- ina og feta í fótspor feðra sinna. Ekki er ólíklegt að hugsjón hafi stýrt ferð og að blóðið hafi runn- ið til skyldunnar með það nafn sem hann bar. Frammámenn í stjórnmálum sóttust eftir þátttöku hans í landspólitík og um skeið var hann virkur í stjórnmálum. Það var þó hans ákvörðun að helga sig búskapnum alfarið og í Kal- manstungu lifði hann til dauða- dags. Bryndís var ætíð stoð hans og stytta og undir lokin gerði hún honum kleift að dvelja jafnlengi á ættaróðali sínu og raun bar vitni. Í minningu okkar verður Kal- man glæsimennið sem alla heill- aði upp úr skónum með fram- komu sinni og glaðværð. Það er sannarlega sjónarsviptir þegar stórmenni eins og Kalman hverfur af sviðinu. Við sem kveðjum hann hér erum full þakklætis fyrir það að hafa átt með honum samleið og að hafa fengið að tengjast þeim einstaka stað sem Kalmanstunga er. Við færum Bryndísi og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur og óskum þeim bless- unar um alla framtíð. Ingólfur, Ingibjörg og Árni Björn. Elskulegi frændi og vinur. Okkar vinátta hefur staðið lengi og alltaf jafnánægjulegt að heimsækja ykkur Bryndísi, sem var oft í gegnum árin. Börnin okkar á svipuðum aldri. Nú þjá- ist þú ekki lengur. Ég efast ekki um að þú hafir fengið góðar móttökur. Þú hafðir líka alltaf gaman af er Jón tók í píanóið og hafðir sérstakar mætur á Svana- söng á heiði. Þið Jón náðuð vel saman. Það var toppurinn á tilver- unni þegar við fórum fram á Heiði að veiða. Ég tala nú ekki um er við gengum á Strútinn – vorum rígmontin er við stóðum á toppnum. Þú talaðir um að þig hefði alltaf langað að ganga á Bauluna. Kannski eigum við það eftir. Mér fannst sérlega ánægjulegt er ég kom í Kalmanstungu að koma á gamla baðstofuloftið. Þar fann ég hvað þetta hús hafði mikla sál. Ég kveð þig með söknuði og votta Bryndísi og allri ykkar fjölskyldu innilegustu samúð. Þú átt að vernda og verja þótt virðist það ekki fært allt sem er hug þínum heilagt og hjarta þínu kært. Vonlaust getur það verið þótt vörn þín sé djörf og traust. En afrek í ósigrum lífsins er aldrei tilgangslaust. (Guðmundur Ingi Kristjánsson) Hvíl í friði, kæri frændi. Hafðu þökk fyrir allt. Ída Sigurðardóttir. Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt en jörðin fær hlutdeild í himn- inum (Halldór Laxness) Þessi tilvitnun úr Heimsljósi kemur mér í hug þegar ég hugsa til æskustöðvanna þar sem nú hefur einn máttarstólp- inn fallið frá. Það fer ekki á milli mála að margs er að minnast þegar ná- inn vinur og frændi fellur í val- inn. Við Kalman vorum bræðra- börn og bæði fædd og uppalin á sama bæjarhlaðinu í Kalman- stungu þar sem foreldrar okkar bjuggu. Æskan leið eins flestra sveita- barna á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar.Við lékum okkur mikið saman, einkum við þrjú, Kalman og Nanna (Jóhanna) og ég. Leiksvæðið var óendanlega stórt og fjölbreytt og margt var brallað. En árin liðu og fyrr en varði voru skylduverkin farin að segja til sín. Kalman var mjög bráðger unglingur, sterkur og óhræddur við flest eða það fannst okkur stelpunum. Heimili Stefáns og Valgerðar foreldra Kalmans og Nönnu var sannkallað menningarheimili þar sem tónlist og bækur áttu öruggan sess við hliðina á bú- störfunum og þetta nýtti unga fólkið sér vel. Ég man Kalman ungan og bjartsýnan bónda sem tók við föðurleifð sinni, fullan hug- mynda og kjarks, nýlega kvænt- an sinni frábæru konu Bryndísi. Þá var bjart yfir staðnum. Börn- in þeirra þrjú urðu kærkomnir leikfélagar minna barna þegar þau hittust. Síðustu árin voru Kalmani ef- laust mjög erfið þegar líkamlegt þrek fór þverrandi en alltaf var jafngaman og fræðandi að spjalla við hann því minnið var trútt og hann var fróðleiks- brunnur hinn mesti og hafði ákveðnar skoðanir. Allar þessar góðu minningar verða í huga mínum sem minn- isvarði um frábæran mann og góðan ferðafélaga á lífsleiðinni. Ég bið Bryndísi, börnum þeirra og öðrum afkomendum allrar blessunar. Ég og mín fjöl- skylda kveðjum Kalman frænda minn og vin með þakklæti og virðingu. Ólöf Kristófersdóttir. Tvívegis hef ég tekið sérstöku ástfóstri við sveitir landsins. Í fyrra skiptið var það árið 1976 þegar ég réðst sem kaupakona í sveit austur á fjörðum á innsta bæinn í Berufirði. Síðara skiptið var um tíu árum síðar þegar skólasystir mín úr háskólanum, Kristín Kalmansdóttir, bjó svo um hnútana að foreldrar hennar, þau hjónin Kalman og Bryndís, buðu mér til dvalar í Kalman- stungu. Tilefnið var að gefa mér kost á að kúra yfir fræðibókum við próflestur, ein og ótrufluð í stórbrotinni umgjörð efsta bæj- arins í Borgarfirði þar sem Ei- ríksjökull vakir yfir. Kalmans- tunga er stórbýli, bærinn sjálfur er reisulegur og engum sem þangað kom blandaðist hugur um þann myndarbrag sem ein- kenndi búrekstur þeirra hjóna. Á meðan á dvöl minni stóð átti ég því láni að fagna að kynnast nánar Kalmani og Bryndísi, en þau voru einkar samrýnd eftir áratuga farsælan búskap. Kalman var hár og myndarlegur á velli, stórbóndi og framsýnn maður, hann var til að mynda einn þeirra bænda sem reistu rafstöð á landareign sinni. Fáa hef ég hitt jafn víð- lesna, minnuga og fróða, hvort sem um var að ræða málefni líð- andi stundar eða um ættfræði Íslendinga. Ég minnist þeirra skemmtilegu og oft á tíðum mannmörgu samverustunda í hlýlegri stofunni í Kalman- stungu þar sem fjörugar um- ræður um landsmálin fóru fram og lífleg skoðanaskipti um það sem efst var á baugi. Kalman var miðpunkturinn og nærvera hans fór ekki framhjá neinum. Það var litið upp til hans og hlustað þegar hann tók til máls á sinn yfirvegaða hátt. Hann þurfti ekki að hafa mörg orð um hlutina. Hann velti fyrir sér þjóðmálunum, var sjálfstæðis- maður og hafði fastmótaðar skoðanir í pólítík. Kalmani var afar umhugað um fjölskyldu sína en þau hjónin eignuðust þrjú börn sem öll hafa gengið menntaveginn en haldið mikilli tryggð við heimahagana. Ég á Kalmani og Bryndísi margt að þakka. Ekki aðeins fyrir að tryggja það forðum að próflesturinn skilaði árangri heldur einnig fyr- ir alla þá gestrisni sem við hjón- in og dætur okkar höfum fengið að njóta í sveitinni. Fjölskyldur okkar Stínu hafa bundist vin- áttuböndum, ekki síst fyrir ógleymanlegar stundir í Kal- manstungu þar sem yngsta kyn- slóðin fékk að komast í tæri við Kalman Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.