Morgunblaðið - 05.03.2011, Qupperneq 52
AF GRÁTI
Birta Björnsdóttir
birta@mbl.is
Það er fátt meira frelsandien að gráta hressilega yfirbíómyndum eða sjónvarps-
þáttum. Frelsandi er kannski ekki
rétta orðið, fari gráturinn fram í
kvikmyndahúsum. Þá getur verið
vandasamt að koma sér og sínum
rauðbólgnu hvörmum óséðum út
úr kvikmyndahúsinu. En ef áhorf
fer fram heima í stofu er fátt því
til fyrirstöðu að leyfa ekkasog-
unum að flæða fram að vild.
Ég á tvær minningar semflokkast myndu undir fyrr-
greinda lýsingu á grátbólgnum
kvikmyndahúsaferðum. Annars-
vegar var það þegar ég fyrir
nokkrum árum sá mynd sem nefn-
ist Simon Birch, mynd um ungan
fatlaðan dreng sem sér lífið svo
ljómandi fallegum augum. Hann
endar svo á að bjarga fjölda skóla-
barna frá drukknun þegar skóla-
rúta þeirra sekkur í sæ. Simon
veikist svo af volkinu að hann
deyr skömmu síðar! Það er
skemmst frá því að segja að ég
grét næstum úr mér augun, svo
hressilega að ég var enn með
ekka í bílnum á leiðinni heim.
Í hitt skiptið sem ég grét
ótæpilega í bíói var það einnig yf-
ir örlögum ungs drengs. Það var
þegar aðalpersóna Pay It Forward
var stungin til bana eftir að hafa
reynt að hafa góð áhrif á um-
hverfi sitt með heimatilbúnum
góðverkaleik.
Reyndar fer þetta eftir dags-forminu. Augu mín hafa
fyllst af tárum þegar tilkynnt er
um sigurvegara á Óskarsverð-
launahátíðinni. Og þá er ég ekki
bara að tala um þegar Heath heit-
inn Ledger vann eftir dauða sinn
og fjölskylda hans tók við verð-
laununum. Nei nei, það er alveg
jafn áhrifaríkt þegar hinn sprell-
lifandi Colin Firth fær Óskarinn.
Þá kemst ég helst ekki grátandi í
gegnum heilan þátt af Brothers
and Sisters, enda þar annar hver
maður með krabbamein eða stend-
ur í skilnaði, nema hvort tveggja
sé.
Þess á milli get ég setið stein-runnin yfir ýmsum hörm-
ungum sem á manni dynja gegn-
um viðtækið án þess að votti fyrir
tári á hvörmum. Ég horfði til
dæmis bæði á La Vita E Bella án
þess að blikna og ég grét ekki
baun yfir Schindler’s List. Dags-
forminu er því greinilega að ein-
hverju leyti um að kenna þó að ég
minnist þess ekki að hafa verið að
ganga í gengum neinar andlegar
hremmingar í áðurtöldum bíóferð-
um.
Að lokum má geta þess að einsorglegasta mynd allra tíma
verður sýnd í Sjónvarpinu í kvöld.
Það er myndin um Joseph Mer-
rick, sem gekk undir nafninu Fíla-
maðurinn. Góðhjörtuð sál í van-
sköpuðum líkama sem
almenningur traðkaði á líkamlega
sem andlega. Dragið fram vasa-
klútana, gott fólk!
birta@mbl.is
Grenjað í bíói
» Góðhjörtuð sál ívansköpuðum lík-
ama sem almenn-
ingur traðkaði á lík-
amlega sem andlega.
Dragið fram vasa-
klútana, gott fólk!
Fílamaðurinn Sorglegasta mynd allra tíma er í Sjónvarpinu í kvöld.
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MARS 2011
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SPARBÍÓ 3D á allar sýningar merktar með grænu950 kr..
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
ATH. NÚMERUÐ SÆ
TI
Í KRINGLUNNI
„MYNDIN ER Í ALLA STAÐI
STÓRBROTIN OG STENDUR FYLLI-
LEGA UNDIR LOFINU SEM Á HANA
HEFUR VERIÐ BORIÐ.“
- H.S. - MBL.IS
HHHHH
„ÓGLEYMANLEG MYND SEM ÆTTI
AÐ GETA HÖFÐAÐ TIL ALLRA.
BJÓDDU ÖMMU OG AFA MEÐ,
OG UNGLINGNUM LÍKA.“
- H.V.A. - FBL.
HHHHH
GAGNRÝNENDUR OG ÁHORFENDUR UM ALLAN HEIM ERU SAMMÁLA
UM AÐ THE KING'S SPEECH SÉ EIN BESTA OG SKEMMTILEGASTA
MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í ÁRARAÐIR
FRÁBÆR SKEMMTUN
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
„EIN BESTA MYND
ÞEIRRA COEN BRÆÐRA“
- EMPIRE
„MYNDIN BÝÐUR ÞVÍ UPP
Á ENDURTEKIÐ ÁHORF OG
ÓGLEYMANLEGA SKEMMTUN.“
- H.S. - MBL
7 BAFTAVERÐLAUN
BESTI LEIKSTJÓRI - TOM HOOPER
BESTI LEIKARI - COLIN FIRTH
BESTA HANDRIT4
ÓSKARSVERÐLAUN
BESTA MYND
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM Á EFTIR
AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI
FRÁ FARRELLY BRÆÐRUM, ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SOMETHING ABOUT MARY OG DUMB AND DUMBER!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
FÓR BEINT Á TO
PPINN Í USA
- ROGER EBERT
HHHH
HALL PASS kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 GEIMAPAR 2 ísl. tal kl. 2 - 4 L
HALL PASS kl. 1:30 - 3:40 - 8 - 10:20 VIP YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 1:20 L
RANGO ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L I AM NUMBER FOUR kl. 10:30 12
RANGO enskt tal kl. 10:30 L TRUE GRIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 16
JUSTIN BIEBER kl. 1:30 - 3:40 - 5:40 - 8 L THE KING'S SPEECH kl. 3 - 5:30 - 8 L
THE RITE kl. 8:10 - 10:30 16 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 L
/ ÁLFABAKKA
HALL PASS kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 TRUE GRIT kl. 10:20 16
RANGO 3D ísl. tal kl. 1 - 3:20 - 5:40 L YOGI BEAR 3D ísl. tal kl. 1 - 3:20 L
JUSTIN BIEBER 3D ótextuð kl. 3:20 - 5:40 - 8 L GEIMAPAR 2 3D ísl. tal kl. 1 - 3:20 L
I AM NUMBER FOUR kl. 8 - 10:30 12 THE RITE kl. 10:30 16
THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 L ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D ísl. tal kl. 1 L
/ EGILSHÖLL