Morgunblaðið - 05.03.2011, Síða 56
LAUGARDAGUR 5. MARS 64. DAGUR ÁRSINS 2011
Á morgun kl. 14 heldur Skóla-
hljómsveit Kópavogs árvissa vor-
tónleika sína í Háskólabíói og verður
henni skipt í þrjár hljómsveitir eftir
aldri. Um 150 ungmenni
koma fram á tónleik-
unum og er efnisskráin
fjölbreytt, m.a. syrpa
úr kvikmyndunum Pir-
ates of the Caribbean,
lög eftir Bítlana og
Led Zeppelin.
Stjórnandi hljóm-
sveitanna er Öss-
ur Geirsson.
Vortónleikar í
Háskólabíói
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. FBI maður á lífi eftir 4 ár í haldi
2. 12 ára drengur handtekinn
3. Síminn stoppaði ekki
4. Stöðvaðir á Gardermoen
Í dag verður haldin tískusýningin
Fashion with Flavor á Höfn í Horna-
firði. Viðburðurinn kallar fram ís-
lenska náttúru með nýstárlegum
hætti, þar sem hráefni tengd land-
búnaði og sjávarútvegi verða fléttuð
saman á mjög áhrifaríkan hátt bæði í
mat og tísku. »18
Tískusýning sem
bragð er að
Í tengslum við
HönnunarMars
sem fram fer í
Reykjavík 24.-27.
mars stendur
Hönnunarmiðstöð
Íslands fyrir sér-
stakri fyrirlestra-
dagskrá þar sem
erlendir fyrirles-
arar velta fyrir sér hlutverki hönnuða
á tímum breytinga. Vöruhönnuðurinn
Jersey Seymour og Winy Maas arki-
tekt (á mynd) munu m.a. halda
erindi.
Heimsfrægir hönn-
uðir á HönnunarMars
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 15-23 m/s, heldur hægari austantil. Slydda
eða snjókoma, fljótlega rigning sunnan- og vestanlands. Allhvöss eða hvöss sunnanátt.
Á sunnudag og mánudag Suðvestanátt, víða allhvöss eða hvöss og éljagangur, en yf-
irleitt þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti um frostmark, frost 0 til 5 stig á mánudag.
Á þriðjudag Snýst í norðanátt, með snjókomu eða éljum fyrir norðan en úrkomulítið
annars staðar. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
Rut Jónsdóttir, landsliðskona í hand-
knattleik, og félagar hennar í danska
úrvalsdeildarliðinu Team Tvis Holste-
bro tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úr-
slitakeppninni um danska meistara-
titilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Sex efstu lið deildarinnar fara í úr-
slitakeppnina. Lið Örnu Sifjar Páls-
dóttur, Team Esbjerg, á sæti í úrslita-
keppninni næsta víst. »1
Rut fer með Tvis Holste-
bro í úrslitakeppnina
Stjarnan, sem tapaði fyrir
ÍR í síðustu umferð úrvals-
deildar karla í körfuknatt-
leik, sneri heldur betur við
blaðinu í kvöld þegar hún
vann Íslandsmeistara Snæ-
fells, 94:80, á heimavelli í
Iceland Express-deildinni.
Keflavík lagði leikmenn
KFÍ að hólmi, 123:87, í
Keflavík í kvöld og Njarðvík
vann Hauka á Ásvöllum,
80:72. »2
Stjarnan vann
meistarana
Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í
handknattleik og fyrirliði þýska liðs-
ins N-Lübbecke, fær ekki nýjan
samning hjá félagi sínu. „Auðvitað er
ég fúll þar sem ég er búinn að standa
mig vel undanfarin ár og vera fyrirliði
liðsins. Það finnst flestum þetta
mjög skrýtið, félagarnir eru undr-
andi og flestir í kringum
félagið,“ segir Þórir. »1
„Flestum finnst þetta
mjög skrýtið“
Ágúst Ingi Jónsson
Víðir Sigurðsson
Rúmlega hálfa ævi sína hefur Katrín
Jónsdóttur átt fast sæti í íslenska
kvennalandsliðinu í knattspyrnu. Í
gær náði hún þeim merka áfanga að
jafna met Rúnars Kristinssonar,
sem lék á sínum tíma 104 landsleiki
með karlalandsliðinu. Kvennalands-
liðið lék þá gegn Kína í Algarve-
bikarnum og vann glæsilegan sigur,
2:1. Líklegt má telja að Katrín
landsliðsfyrirliði slái landsleikja-
metið á mánudag er Ísland mætir
Danmörku á mótinu í Portúgal en
eftir sigra á tveimur af sterkustu
landsliðum heims, Svíum og Kín-
verjum, nægir Íslandi jafntefli í
þeim leik til að spila um gull-
verðlaunin á mótinu gegn liði
Bandaríkjanna.
Katrín er 33 ára gömul og lék sinn
fyrsta landsleik fyrir Ísland gegn
Skotum ytra árið 1994 er hún kom
inn á sem varamaður og lék í fimm
mínútur. Þá var hún 16 ára og hefur
sagt frá því að hún var kölluð krakk-
inn í allri þeirri keppnisferð.
„Það er alltaf jafnmikill heiður að
spila fyrir Íslands hönd og mér hef-
ur liðið eins þegar þjóðsöngurinn er
spilaður, hvort sem það var í fimmta
leiknum eða þeim hundraðasta. En
sem betur fer var enginn að velta
þessum 104. leik fyrir sér þegar
hann var að hefjast, fókusinn var all-
ur á leiknum sjálfum og að vinna
hann, sem skiptir mestu máli. Svona
áfangar verða án efa dýrmætari
seinna meir þegar maður horfir til
baka yfir ferilinn. En það er
mikill heiður að vera komin
við hlið Rúnars Kristins-
sonar, leikmanns sem ég
fylgdist að sjálfsögðu mikið
með og var magnaður íþrótta-
maður,“ sagði Katrín við
Morgunblaðið eftir sigurinn á
Kínverjum í gær.
»Íþróttir
Hálfa ævina í landsliðinu
Katrín jafnaði
landsleikjamet
Rúnars í gær
Ljósmynd/Algarvephotopress
Skallar Katrín Jónsdóttir er jafnan aðgangshörð við mark andstæðinganna í föstum leikatriðum og hér skallar hún
að marki Kínverjanna í leiknum í gær. Katrín hefur skorað 19 mörk í 104 landsleikjum fyrir Íslands hönd.
„Ferill Katrínar er einstakur, hún
er margfaldur meistari, mennt-
aður læknir, leiðtogi og mikil
fyrirmynd,“ sagði Rúnar
Kristinsson í gær, en hann er
núna við stjórnvölinn hjá KR.
„Ég býð hana velkomna í
hópinn og óska henni inni-
lega til hamingju með áfang-
ann og frábæran árangur.“
Rúnar sagði margt
athyglisvert við feril Katrínar
Jónsdóttur. Hún hefði til dæmis
náð að mennta sig sem læknir og
starfað á því sviði samhliða knatt-
spyrnunni. Þá hefði hún verið mjög
sigursæl, en tvívegis hefur Katrín
orðið Noregsmeistari og er marg-
faldur meistari á Íslandi með Val
og Breiðabliki. Árið 2008 var hún
kjörin íþróttamaður Reykjavíkur.
„Það þarf karakter, vinnusemi,
dugnað, gæði og eitthvað af
heppni í bland til að ná svona
árangri. Ég fagna hverjum þeim
sem hlotnast sá heiður að spila
svona marga landsleiki og óska
þess að sem flestir fái að upplifa
það sama og við Katrín höfum gert
með landsliði Íslands.
Katrín er afrekskona í íþróttum
og mikill karakter,“ sagði Rúnar
Kristinsson.
Leiðtogi, meistari, fyrirmynd, læknir
RÚNAR KRISTINSSON BÝÐUR KATRÍNU VELKOMNA Í HÓPINN
Rúnar Kristinsson