Teningur - 01.05.1990, Síða 26
24 / MYNDLIST
Amboð 1987 stál 80x27x20 cm.
res er sú róttækasta. Sjálfur nota ég
bæði veggi og gólf og legg með því
áherslu á muninn.
Annað sem þeir hafa gert er að
vinna með orð. Serra í sambandi við
merkingu þeirra og Andre í sambandi
við form þeirra, hljóm, stafsetningu
og merkingu. Þau verk sem ég hef
unnið í tengslum við orð voru inn-
blásin af konkret ljóðlist og tilhneig-
ingu minni til að vinna með kerfi.
Ég vann með orð í sambandi við
merkingu og form þeirra.
Mér finnst sýningar Rockenschaubs
mjög áhugaverðar fyrir það að þar
renna hlutirnir saman við umhverfi
sitt. Hann sýnir ekki aðskilin verk
heldur skapar heild. Síðustu stál-
verkin sem ég gerði, nálarnar, féllu
inn í umhverfið, þær drógu fram
geislandi sérkenni gólfsins, eða
afnám þessarar útgeislunar, þar sem
gólfið endar og veggir taka við. Og
veggverkin munu leggja áherslu á
þetta afnám með því að draga fram
sérkenni veggsins sem takmörkun.
Og nú erum við komnir að allt ann-
arri reynslu en af handverki.
Málverkin sem ég gerði fram til
1983 voru öll gerð með límbandi til
að forðast handbragð. Fyrstu grafík-
verkin voru gerð með skapalónum,
skornum úr pappa, upphaflega var
það ekki til að fjölfalda verkin,
heldur til að komast hjá pensilförum
og expressionisma. Þessi verk sýndu
form og þeirra plastísku eiginleika.
Og að sjálfsögðu var þetta allt vand-
lega unnið því allir ágallar yrðu trufl-
andi.
Af sömu ástæðu voru stálverkin
unnin af nákvæmni og góðu hand-
verki. Þegar stálbiti rís uppréttur
verður hann að hafa 90° horn en ekki
89°. Hringur verður að vera fullkom-
lega hringlaga. Þess vegna var brota-
járnið sem ég sankaði að mér fyrir
fyrstu verkin tilvalið. Það hafði allt