Teningur - 01.05.1990, Blaðsíða 34
32 / TIMOTHY MO: SÚRSÆTT
þanið þindina. Hann vissi að hæfileiki
hans til að slaka á mundi vega upp á
móti því hve sterkir og snöggir ungu
mennirnir voru. Á bak við þá heyrð-
ust óp, ryskingar og málmhljóð. Af
og til æpti einhver.
Járnplankinn gekk hratt fram, steig
dansspor og hringsneri litlu sverð-
unum svo hratt að þau líktust
fiðrildavængjum. Jackie sveiflaði
öxinni þunglamalega en Járnplankinn
klemmdi hana á milli sverðanna. En
höggið var greitt til að lokka hann og
hann rankaði við sér á teppinu. Fung
hafði fellt hann með því að sparka
léttilega í ökkla hans. Hann hélt enn
á sverðunum. Jackie Fung hljóp
gegnum opið sem myndaðist á
hringnum. Hann fór í loftköstum
með hnén upp að brjóstkassanum.
Með sjöfaldri hnútasvipunni hæfði
Rauði Lurkurinn hann í hnén. Vegna
þess hve öxin var þung hélt Fung ekki
jafnvægi þegar hann lenti og þá gafst
eldri manninum færi á að stinga hann
í lærið. Jackie Fung skjögraði áfram,
náði jafnvæginu og með bitlausu
axarblaðinu hæfði hann manninn
með sveðjuna í hnakkann. Annar
maður sló til hans. Sverðsoddurinn
sneið af enni Jackie Fungs, þannig að
skinnpjatla lafði niður og hann
blindaðist í blóðflaumnum. Maður-
inn hjó aftur en í æsingi hans snerist
blaðið á hlið í loftinu. Flatt blaðið
rakst öðrum megin í höfuðið á Jackie
Fung. Þriðji árásarmaðurinn reyndi
að stinga hann í hliðina en blaðið bor-
aði sig inn í upphandleggsvöðvann.
Jackie Fung reyndi að greikka sporið,
særður og sljór. Heilahristingurinn
frá högginu olli því að ælan steig upp
úr hálsi hans. Maðurinn vék til hliðar.
Jackie Fung gat ekki séð hann lengur.
Þrjár bílflautur sungu í kór.
Járnplankinn gekk fram til að ljúka
við Jackie Fung en tveir af banda-
mönnum hans stumruðu yfir honum.
Rauði Lurkurinn sagði: „Búið.
Þessu er lokið.“
Járnplankinn hélt aftur af sér.
Rauði Lurkurinn hrópaði: „Komið
særðu mönnunum okkar út.“ Óvinur-
inn gerði enga tilraun til að stoppa þá
þar sem þeir hálfdrógu, hálfbáru hina
særðu út og inn í bílana sem biðu.
Einn rann í frosnu krapinu. í fjarska
blikkuðu blá ljós.
Það voru ekki þrjár mínútur frá því
að fyrstu höggin dundu en nú ók Cítr-
óen bíllinn í broddi fylkingar upp
götuna.
Súrsœtt, 18. kafli
Þýðing: Einar Már Guðmundsson
Timothy Mo er fæddur árið 1950, af
ensku og kínversku bergi brotinn.
Hann bjó í Hong Kong til tíu ára
aldurs en fluttist þá til Englands.
Hann hefur gefið út þrjár skáldsögur:
The Monkey King, Sour Sweet og An
Insular Possession. Timothy Mo er
með þekktari og vinsælli höfundum á
Englandi í dag, hefur hlotið fjöldann
allan af verðlaunum og allar bækur
hans hafa verið prentaðar í fjöl-
mörgum upplögum. Sú vinsælasta er
þó að öllum líkindum Sour Sweet sem
hér er þýtt úr. Hún gerist í hinu lok-
aða kínverska samfélagi í London og
greinir á víxl frá átökum leynireglna,
sem berjast um völdin í undirheimun-
um, og lífi venjulegrar innflytjenda-
fjölskyldu sem kemur sér áfram í
veitingarekstri. Hvernig þessir tveir
pólar skarast er forvitnum og fróð-
leiksfúsum lesendum Tenings látið
eftir að kynna sér upp á eigin spýtur.
Pýð.