Teningur - 01.05.1990, Side 63
KVIKMYNDIR / 61
-Þannig að þú byrjaðir bara að gera
þínar eigin kvikmyndir?
- Já, ég var óður í kvikmyndir á
þessum tíma og bróðir minn sem þá
var í Þýskalandi skrifaði mér og sagð-
ist ætla að breyta til í námi sínu og
fara í kvikmyndaskóla. Hann lærði í
Miinchen. Við ákváðum báðir sinn í
hvoru lagi á sama tíma að fara út í
þetta. Ég lék síðan í hans fyrstu
mynd, Lygaranum (1980) og samdi
síðan mitt fyrsta handrit. Við notum
enn í dag sama kvikmyndatökumann,
sama hljóðmann o.s.frv. en vinnum
þó hvor í sínu lagi. Við erum á leið í
ólíkar áttir. Hann var á leið til Osló,
en ég er á leið til Reykjavíkur.
- Hver var þín fyrsta mynd?
- Ég gerði mína fyrstu mynd árið
1981, það var tveggja tíma löng heim-
ildamynd um rokkhljómsveitir á tón-
leikaferð. Fyrsta leikna mynd mín var
síðan „Glæpur og refsing" eftir sögu
Dostójevskís (1983).
- Var ekki erfitt að afla fjár til þess-
ara mynda?
- Nei það hefur aldrei verið vanda-
mál fyrir mér.
- Hvaðan færðu peninga?
- Ég fæ þá frá kínverskum búgí-
manni í New York.
- Engir styrkir frá finnska ríkinu?
- Jú, jú ég fæ styrki þegar ég þarf.
Síðustu fimm kvikmyndir mínar gerði
ég í samvinnu við Sænsku kvik-
myndastofnunina.
- Þannig að peningar eru aldrei
vandamál?
- Jú auðvitað, en ég leysi þau alltaf
hratt og vel. Auðvitað er aldrei auð-
velt að afla fjár en það er alltaf erfitt
að stöðva mig, ég fæ alltaf mitt fram,
ég er harður kall.
- Hvað þarftu mikið til að gera
bíómvnd?
- Eg þarf ekki mikið, mínar myndir
eru alltaf mjög ódýarar í framleiðslu.
Ég þarf minnst 100.000 dollara (U.þ.b.
6 milljónir) og aldrei meira en 800.000
dali. (U.þ.b. 48 milljón krónur).
- Og þannig eiga smáþjóðir líka að
gera kvikmyndir eða hvað?
- Já þær eiga að gera margar kvik-
myndir en allar mjög ódýarar. Nú
veit ég ekki hvað er að gerast á ís-
landi, en ef einhver vill gera þar stór-
mynd uppá 5 milljónir dala (u.þ.b.
300 millj. kr.) þá gengur það ekki
upp, þar sem markaðurinn er ekki
fyrir hendi, kvikmyndaiðnaður ekki
til. Þá er betra að gera ódýra mynd
sem er rík að innihaldi. En þetta hafa
þeir þó gert í Finnlandi og fleiri nor-
rænum löndum.
- Hvað eru framleiddar margar
myndir í Finnlandi á hverju ári?
- Það veltur á því hvað við bræð-
umir gerum margar. Við gemm helm-
inginn af öllum kvikmyndum í Finn-
landi, bæði sjálfir og svo framleiðum
við líka fyrir aðra. Við gerum yfirleitt
svona fimm myndir á ári, reyndar
gerði ég nú fjórar sjálfur í fyrra, skrif-
aði, leikstýrði og framleiddi.
- Er ekki erfitt að gera þetta allt
sjálfur?