Birtingur - 01.01.1955, Page 13

Birtingur - 01.01.1955, Page 13
Landakotskirkja andi í vegi fyrir eðlilegri framrás menningarlífs. Enda kemur það í ljós að kirkjan hættir einmitt um þessar mundir að setja svip sinn á menn- ingarlíf þjóðanna, hún er hætt að draga til sín gáfuðustu og mikilhæfustu mennina, hvort sem það eru byggingarsmiðir eða aðrir, hún staðnar eða skreppur saman. Við skulum ekki velta því fyrir okkur hvers vegna, það yrði of langt mál eins og sagt er, staðreyndin er okkur nóg. Frum-forsenda hvers húss, að það sé knýjandi þörf fyrir það, að það spretti úr jarðvegi sínum andlegum sem líkamlegum líkt og urt eða tré, virðist vera horfin í þessu tilfelli. En segjum nú að samhliða þessum aðal- einkennum aldarinnar hafi samt verið einhver trúarþörf og að hún hafi skapað þessa kirkju. Að hve miklu leyti er hún þá vottur tilfinninga og hugsana þeirra sem byggðu hana? I fyrsta lagi vekur það efa um gildi þessa húss sem sannrar byggingar- listar að það ber ekki megineinkenni tímans í dag, og við nánari ath. kem- ur í ljós, — og það getur hver maður séð, sem gengur upp Túngötu í góðu skyggni og einhverja nasasjón hefur af listasögu, þó ekki sé nema þeirri sem kennd er í menntaskóla, að húsið er stælt eftir gotneskum stíl. Þó með 9

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.