Birtingur - 01.01.1955, Side 24

Birtingur - 01.01.1955, Side 24
um landsins nýríkan segja að Vatnsberinn væri luralega vaxinn og hann skyldi þess vegna sjá til þess að hann yrði malaður mél- inu smærra ef settur yrði upp og svo langt gekk það að félag var stofnað með þvílíkum óhappamönnum og höfðu í heitingum að brjóta myndina ef hún yrði sett á almanna- færi. Nú skyldi maður ætla að þá kæmi lög- gæzla borgarinnar til skjalanna af svo átak- anlegu tilefni og segði: Stop! Ætla mætti að ástæða fyndist lögreglunni til að taka málið til athugunar og láta þá menn sæta ábyrgð og refsingu, hljóta múlktir og tugt- hús sem hóta opinberlega að fremja skemmd- arverk og spilla sameign borgaranna Ef ég lýsti því yfir í Morgunblaðinu að ég hefði hugsað mér að handleggsbrjóta mann ef hann gengur Bankastræti en ekki tiltek- inn fáfarinn stíg á leið í fyrirtæki sitt: ætli væri ekki ástæða til að hafa gát á mér og jafnvel biðja glöggan lækni að líta á mig. En þegar ruddalega innrættir menn hóta að eyðileggja listaverk fyrir bæjarfélaginu ef það er geymt á stað sem samir og vinna and- legum verðmætum grand sem við eigum öll saman: þá gugnar bæjarstjórnin og búkkar sig fyrir dólgunum og þorir ekki að hafa hina veglegu gjöf til sýnis fyrir þá sem hún er ætluð: okkur. Þessi mynd var að lokum afhjúpuð dag- inn áður en kaupmenn reistu sína mynd í hjarta bæjarins. En þessari var 'fundinn stað- ur í jaðrinum á garði sem listamaðurinn á sjálfur í úthverfi þar sem fáir fara um nema þeir eigi beinlínis og brýnt erindi þangað til að sjá list. Það var kyrrlát athöfn og fáir við- staddir og ekkert sungið af þjóðkvæðum hvað þá ort ný af þjóðskáldum og þar var engin bumba t:l að berja og ekki var þar básúna. En þó gerðust góð tíðindi og merk. Þann dag var loksins stofnað til samtaka til að sýna í verki viðurkenningu þeirrar stað- reyndar að Ásmundur Sveinsson er okkar öndvegishöfundur á sínu listsviði og nokkrir megandi menn gerðu þá félag um fjárhags- legan stuðning við þennan sríjalla síunga listamann sem hefur barizt um langa ævi fyrir fyllri og skírari sannleik í list sinni í hörðu stríði við fátækt og skilningstregðu, svívirðingar og úthrópanir og fásinnu í litlu landi þar sem mönnum veitist stundum svo ósköp erfitt að þekkja dalaskáldin og dúllara leirburðarins frá þeim sem rísa í sannleik upp í heiðríkjuna. En Ásmundur Sveinsson hefur aldrei gefizt upp — hann mun aldrei gefast upp. Maestro Rostropovitsj í Reykjavík Hverjir skyldu vera betri sendimenn fyrir þjóð sína en listamenn sem fara um löndin og sameina hjörtu áheyrenda sinna og hugi ofar þjóðerni og takmörkum landabréfsins og hagfræði hvaðan sem þeir koma og hverj- um kjörum sem þeir sæta frá degi til dags — og hefja upp yfir allt dægurþras og deilur og öngþveiti sem ríkir í þjóðfélaginu okkar. Rostropovitsj sellóleikari kom og við heyrð- um hann og hann sigraði okkur öll. Hann hóf hlustendur sína upp af sviði hins dag- lega lífs og hreif okkur með sér og leiddi um lönd sem okkur hefur kannski dreymt en voru allt í einu orðin okkar. Og þegar við komum aftur út á götu vissum við varla hvað var upp og hvað niður og allt var ilmur og músík. Og ég er alveg hissa á okkar elskulega Ragnari í Smára að vera að fetta fingur út í sellókonsertinn eftir Dvorák. Þökk sé Rostropovitsj og hans félögum að koma til okkar og boða það bræðralag sem lætur ekki við sitja að veita líkamlega og jarð- 20

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.