Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 28

Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 28
SIGFÚS DAÐASON: ÞRJÚ LJÓÐ BEKNSKA Sendiferðabílstjóri sem stóð hjá bílnum sínum einhversstaðar ekki langt frá Piccadiliy Circus vék sér að inér og spurði mig til vegar þar í grenndinni. Því miður ég er ókunnugur hér . . . ég man ekki lengur nákvæmlega hvar þetta var en mér varð skyndilega ljóst að gatan var að öðru leyti auð þó undarlegt mætti virðast. Ég mundi ekki hvernig á því stóð að ég var staddur í dalnum, á innsta bænum . . . undir bröttum fjöllum, og vegurinn suður lá um túnið . . . né hvenær það var, stríðið hefur þó líklega verið byrjað. Ég átti þar ævilangt kvöld og horfði á hina frægu vegavinnumenn, nánar tiltekið ungan mann og konu sem komu hjólandi með kornungt barn sitt utan frá tjöldunum og þáðu kaffi . . . ég hugsaði með mér að barnið væri mjög brothætt, en það svaf. Mér var vísað til sængur í lítilli stofu þar sem var bókaskápur með glerhurð, og þau ætluðu suður morguninn eftir. Þá var lika haust. GUÐRÆKNISTUND í PÍSA Hérna megin við Písa streittust arðuruxarnir um akrana í sólarhitanum. Það var mikil hvíld og ógleymanleg náð að staldra við í túngrænkunni og ganga síðan í svala kirkjuna. Nokkrir illa rakaðir prestar sungu messu. Ég minntist þess að ég hafði ekki farið til kirkju í tíu ár. Þeir brenndu reykelsi og ekki veit ég hvað kom að mér eða hvort augun brugðust mér, nema ég gat ekki betur séð en að einn prestanna væri ekki sem alvarlegastur í bragði við þá athöfn. En ég stóð fram undir miðri kirkju upp við eina súluna. Hópur ferðamanna, flestir vopnaðir full- komnustu myndavélum, hafði tekið sér stöðu fyrir framan kórinn; þeir fylgdust með athöfninni af áfergju trúðleiksáhorfenda. Við máttum ekki vera að bíða eftir prósessíunni því vagninn hélt áfram klukkan tíu mínútur fyrir fjögur. Ó forláta- rammi hrunins heims, ó brostnu bönd, ó miskunnarlausi tími! Einnig sú stund kom: þú varst á gangi í borg þar sem enginn þekkti þig, staðnæmdist á torginu fyrir framan hátíðarlýsta kirkjuna sem er eldri en borgin, hallaðir þér upp að skál gosbrunnsins. Þér bar í grun annarlega hluti; var það gutlandi vatns- niðurinn, kirkjan sem ber vitni um að mennimir eru stærri en þeir sýnast, voru það hinir hispurslausu kumbaldar reistir á sprengjurústunum kringum torgið og róandi kliður vegfarenda á fáförnum götum eftir eril hvíldardagsins? eða hvað hafði skyndilega veitt þér örugga vissu um ágæti þess lífs sem Iifað var, einmitt hér, þetta kvöld? 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.