Birtingur - 01.01.1955, Qupperneq 33

Birtingur - 01.01.1955, Qupperneq 33
ALBERT EINSTEIN: TRÚAR3ÁTNING MÍN Undursamleg er tilvera vor á þessari jörð. Sér- hvert okkar kemur hingað sem gestur um stutta stund, án þess að vita hvers vegna, og þó virðist stundum eins og það sé í guðlegum tilgangi. Samt sem áður er eitt atriði sem vér þekkjum frá sjónar- miði daglegs lífs, og það er það að maður er hér vegna annarra manna, einkum þeirra sem með brosi sínu og vellíðan vekja og vernda gleði manns, og einnig vegna hinna óteljandi sálna, sem for- lögin binda mann við með böndum samúðarinnar. Margsinnis daglega kemur það upp í hug mínum hve mjög mitt ytra og innra líf byggist á erfiði minna lifandi og látinna meðbræðra og hversu al- varlega ég verð að leggja mig fram til þess að gefa eins mikið og ég þigg. Mín hugarró verður oít fyrir óþægilegum árásum af þeirri tilfinningu að ég hafi tekið of mikið til láns af vinnu annarra. Ég get ekki litið svo á að vér getum haft nokkurt frelsi í heimspekilegum skilningi, vegna þess að vér vinnum ekki aðeins fyrir ytri knýjandi ástæður heldur einnig af innanaðkomandi nauðsyn. Orð Schopenhauers þar sem hann segir: Maðurinn get- ur vissulega gert það sem hann vill, — þau orð hafa ávallt veitt mér huggun, þegar ég hef lent í hrakningum lífsins eða séð aðra verða fyrir harð- rétti þess. Þessi sannfæring getur af sér stöðugt umburðarlyndi, því hún leyfir ekki að taka oss sjálf né aðra of hátíðlega, hún stefnir í þá átt að skapa kímniskenndan geðblæ. Að brjóta heilann látlaust yfir orsök tilveru sinnar eða tilgangi lífsins yfirleitt, virðist mér frá hlutrænu sjónarmiði mjög barnalegt. Samt á hver maður einhverjar sérstakar hugsjónir, er leiða og stjórna löngun hans og skoðun. Þær hugsjónir sem lýst hafa mér sífellt og fyllt líf mitt fögnuði, eru: gæzkan, fegurðin og sannleikurinn. Það, að gera þægindin og glaðværð að markmiði sínu hefur aldrei fengið neinn fangstað á mér og siðgæðis- reglur, reistar á slíkum grunni, myndu aðeins nægja nautgripahjörð. Líf mitt mundi hafa orðið óttalega tómlegt án kenndarinnar um samvinnu við mér andlega skyld- ar verur, í eftirsókn hins vinsamlega í listum og vísindalegri rannsókn. Ætíð síðan ég var barn hefi ég fyrirlitið hinar venjulegu hömlur sem svo oft eru settar á mannlegan metnað. Eignarráð, ytri heppni, oflátungsskapur og mun- aður hefur alla tíð verið andstyggilegt í mínum augum. Ég hygg að hinir óbrotnu og hæversku lífs- hættir séu beztir fyrir sérhvern mann hvað líkama og sál snertir. Hinn ástríðuþrungni áhugi minn fyrir borgara- legri réttvísi og borgaralegri ábyrgð hefur stöðugt verið í kynlegri mótsögn við ómannblendni mína, eða óvilja til að umgangast mikið menn og konur. Ég er einækisskepna, ónothæf í samæki. Ég hefi aldrei óskorað, heilhuga getað tilheyrt landi eða þjóð eða vinahóp mínum, eða jafnvel minni eigin fjölskyldu. Þessum vináttu- og tryggðaböndum hefur ávallt verið samfara óljós fjarstaða og með aldrinum hefur tilhneiging mín til einangrunar farið vaxandi. Þessi einangrun er stundum beiskju blandin, en mig iðrar þess samt ekki, þó ég sé fráskilinn skiln- ingi og samúð annarra manna. Ég veit vel, að slíkt er mér nokkurt tjón, en bætur fyrir það öðlast ég í því að vera óháður venjum, skoðunum og fordómum annarra, að iosna með þeim hætti við þá freisting, að láta minn sálarfrið hvíla á þeim óhrjálega grundvelli. Hin stjórnarfarslega hug- sjón mín er lýðræði. Sérhver maður ætti að vera virtur sem einstaklingur, en enginn tignaður. Það er kaldhæðni forlaganna að yfir mig skuli hafa verið hellt svo mikilli, en óþarfri og óverðskuld- aðri aðdáun og virðingu. En ef til vill er þessi fag- urgali fjöldans sprottinn af hinni óuppfylltu ósk fjöldans um það, að skilja hinar fáu hugmyndir, sem ég hefi borið fram. Mér er það vel ljóst, að til þess að ná einhverju ákveðnu marki er það nauðsynlegt að einhver einn annist hugsunarstarfið, skipi fyrir og beri að mestu leyti alla ábyrgðina. En það á ekki að reka þá sem verið er að leiða, þeir ættu ætíð að hafa leyíi til að velja leiðtoga sína. í mínum augum er mann- virðingar aðgreining þjóðfélagsflokkanna fölsk: í sannasta skilningi er mátturinn meginstoð þeirra. Og ég er þess fullviss að spilling fylgir sérhverju einveldiskenndu ofbeldi, því ofbeldið dregur stöð- ugt að sér lághneigðir og siðleysi. Tíminn hefur sannað að nafnkenndir harðstjórar hafa komið sínu fram með liðstyrk þorpara. Fyrir þessa sök hef ég ætíð verið eindregið mót- fallinn því stjórnarfyrirkomulagi sem á sér stað 29

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.