Birtingur - 01.07.1955, Side 2
HISGOGN
SEM UPPFYLLA KRÖFUR NÚTÍMANS
GÓLFTEPPI
FINNSKUR KRISTALL
LJÓSATÆKI ALLSKONAR
Kristján Siggeirsson h.f.
Laugavegi 13 — Reykjavík — Sími 3879 - 7172
Frá ritstjórninni
Hausthefti Birtings er seinna á ferðinni en ráð var fyrir gert.
Stafar Það að nokkru af Því að ritstjórnarmennirnir hafa verið
sinn í hverri áttinni um sumarmánuðina, sumir úti í löndum,
aðrir á þeysingi um landsbyggðina vegna atvinnu sinnar. Annir
hafa verið miklar í prentsmiðjunum, og loks seinkaði hefttnu
vegna þess að þegar það var nser fullbúið barst hin gleðile>?a
frétt um að Laxness hefðl fengið bókmenntaverðlaun Nóbels. Var
þá gerð skyndibreyting á efni til að fagna því. Þess vegna urðu
margar greinar, sem áttu að birtast í þessu hefti, að biða jóla-
heftisins. Mun það koma um miðjan desember. Lýkur með því
fyrsta árgangi Birtings, og verður hann mun stœrri en lofað var
í upphafi — eða 12 arkir í stað 10 arka — án þess að árgjald
eða lausasöluverð hafi verið hœkkað af þeim sökum.
Árgjald fyrsta árgangs er nú fallið í gjalddaga, og vœri rit-
stjórninni kœrt, ef kaupendur sem enn eiga eftir að greiða vildu
létta af henni fyrirhöfn og aukakostnaði með Því að borga
áskriítargjaldið — kr. 60 -- ótllkvaddir í Bókabúð Braga Brynj-
ólfssonar eða senda Það í pósti (eða á annan hátt) til einhvers ur
ricstjórninni. Fjárvana menningarrit á mikið undir skilvísi og
hollustu kaupenda sinna, ekki sízt á frumbýlisárunum.
Birtingi hefur verið svo vel tekið að fyrstu tvö heftin eru
algjörlega uppseld í bókabúðum, og útgefendur eiga í fórum
sínum aðeins fáein eintök er Þeir munu hreppa, sem gerast
fastakaupendur nú þegar og óska að eignast ritið frá upphaíi.
Upplagið hefur nú verið stækkað, og verður hafin öflug sókn
fyrir auknum áskrifendafjölda. Við heitum á alla kaupendur
Birtings að gera sitt ýtrasta til að efla útbrelðslu hans. Þá er
okkur sérstakt kappsmál að fá ötula útbreiðslumenn sem við-
ast úti um land.
Vegna þess að mikilvægt efni barst ekki í tæka tíð,
ákvað ritstjórnin að fresta því til næsta blaðs að minnasc
afmælis Jóhannesar S. Kjarvals, en sendir hinum óvið-
jafnanlega meistara kveðju sína og heillaóskir. í jóln-
heftinu mun m. a. birtast grein um Kjarval og verk hans
eftir Björn Th. Björnsson listfræðing.
LEIÐRÉTTING
Af vangá var skýring með mynd á bls. 19 í 2. heífci
Birtings tekin óþýdd úr erlendri bók. Rétt er skýringin
þannig: Kirkjuskip: Saintes-Maries de la Mer, Frakklandi.
Eru lesendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum.
BIRTINGUR
Rilstjórn: Einar Bragi (áb.), Suðurgötu 8, Geir
Kristjánsson, Tjarnargötu 10A, Hörður Ágústsson,
I.augavegi 135, Jón Óskar, Blönduhlíð 4, Thor
Vilhjálmsson, Karfavogi 40.
Kemtir út fjórum sinnttm á ári. Árgangur til áskrif-
enda kr. 60.00. Lausasöluverð kr. 20.00 heftið.
Efni í ritið sendist einhverjum úr ritnefndinni.
Hörður Ágústsson gerði kápuna — litur: Hjör-
leifur Sigurðsson — Birgir Eydal prentaði ritið.
Afgreiðsla: Veghúsastfg 7 — simi 6837.
Myndamót: Litróf h.f.
PrentsmiÖja ÞjóÖviljans h.f.
V_____________________________________
J