Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 5

Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 5
sem sá kom og verk þessa snillings hafa verið stolt okkar og hvöt til að hugsa á heimsvisu og þó jafnframt íslenzkar en annars. Við sem höfum stundum snapað okkur skild- ing með því að fara með evrópufólk að sýna þeim landið (stundum á örfáum klukkutímum) höfum ekið framhjá lotísi skáldsins þaðan sem sólin sést fegurst vakna uppúr og sofna í flóann — og bent þeim á húsið og sagt þeim hver þar byggi með því stolti eins og við hefðum sjálf hjálpað honum að skapa verk sín. Nú er það orðið sem við höfum spáð án þess að trúa því œvinlega að þeir sem ráða þessu hefðu vit á því: að veita Laxness Nóbelsverðlaunin sem við vissum svo lengi hann eiga kröfu á. Og þeir komust ekki hjá því. Þetta er cevintýrið um gáfur sem verða ekki bceldar og sterkan vilja sem ekkert stöðvar, um rnanninn sem sigrar eingöngu á verðleikum, býð- ur hcettum heim, storkar þeim mönnum hvencer sem fceri gefst sem sumir halda ekki sé ráðlegt að styggja. Manninn, sem sigrar af því að það er ekki hcegt að standa á móti yfirbmðum hans hversu mjög sem sumir vildu: snillinginn. Og við sjáum enn hvernig ýmsir geta ekki eitt augnablik afneitað smceð sinni gagnvart sigri þessa manns sem hefur hlotið ceðstu staðfestingu sem til er opinber. Þeir eru til sem þykir þeir eigi mjög Laxness að þakka örvun viðleitni sinnar til orka verulegu umfram nauðsyn virkra daga hvort sem ncest eða nœst ekki — því dcemi hans hefur heimtað af okk- ur dirfsku og krafizt þess að við þyldum ekki það sem okkur virtist smátt og auðvirðilegt en leituðum eftir því stóra. Hvernig sem það vinnst sem er annar hand- leggur. í dag fagnar ísland snillingi sínum sem kemur heim krýndur lárviðarsveig heimsins. Thor Vilhjálinsson. Enginn íslendingur er betur kominn að bók- menntaverðlaunum Nóbels en Halldór Kiljan Lax- ness. Hann er eitt Ijósasta dcemi þess hvernig stór- brotnir hæfileikar og þrotlaust starf skapa séníið. Hinn mikli og verðskuldaði sigur snillingsins á Gljúfrasteini vekur ekki aðeins hjá mér djiipa gleði, hann hlýtur einnig að eggja okkur öll, sem fáumst við Ustir, til nýrra átaka. Þorvaldur Skúlason, listmálari. Halldór Kiljan Laxness hefur öðrum núlifandi íslendingum fremur hafizt af sjálfum sér. Vegna persónulegra verðleika flytur hann bókmennta- verðlaun Nóbels fyrstur manna heim til Islands. Astæða er til að taka það fram af því að vart hefur orðið viðleitni — að vísu fjarska upþburðarlítillar — að drepa þeirri staðreynd á dreif. Hann hlaut snilligáfu í vöggugjöf, og honum hefur veitzt það sem mig minnir hann hafi sjálfur talið listamanni dýrmætara en flest annað: góð heilsa. Þess vegna hefur hann getað risið undir þeim ofurþunga ver- aldlegra erfiðleika sem- jafnaðarlega hvíla enn þyngra á listamönnum en öðru fólki, getað aflað sér hámenntunar á heimsvísu og ritað þar að auki ódauðlegar bækur svo miklar að vöxtum að skrif- stofustúlka þættist varla ofhaldin af Nóbelsverð- laununum fyrir að vélrita þær í hendur setjurunum. Af stórhug og heilbrigðum metnaði fyrir sjálfs sín hönd og þjóðar sinnar setti hann snemma markið hátt, og hann hefur þrætt einstigið alla tíð án ótta eða hiks. Með áræði sínu og andans snilli hefur hann unnið hugi allra sem eru nógu stórir í sniðum til að gleðjast yfir hverjum sigri fullhug- ans eins og sínum eigin, ekki sízt þeim síðasta og stærsta — og eins og vænta má um mann sem stýrir jafn flugbeittum penna hefur hann einnig eignazt svarna andstæðinga og öfundarmenn. Þess vegna hefur aldrei verið þögn um Halldór Ktljan. Það er fágætt að jafn miklir og margvíslegir hæfileikar og Halldóri eru gefnir sameinist hjá einum manni, enn sjaldgæfara að forsjónin sendi lítilli þjóð svo mannvænlegan sonltil fósturs, enda 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.