Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 30

Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 30
mig, hann kippir fram fyrir mig og alveg er það sama. Og enn kippir hann og nú á bak- borða rétt svona færafrítt. Svo ég segi við Júlla minn: Nú hann ætlar bara að taka af okkur rekið skrattinn sá arna, ætlar að reyna að ná honum undan okkur. En það tókst nú ekki samt, þarna stóðum við í asfiski, en þeir hrista sig og skaka og verða ekki lífsvarir, nei, ekki lífsvarir, þangað til honum leiðist nuddið og potar sér inn landnorður. Jú hann urgaði eitthvað, en við, blessaður, hlóðum á skammri stund og vorum komnir heim uppúr miðjum degi. Þá líkaði Júlla minum lífið. Hann hefur löngum verið brellinn sá guli, segi ég. Er Júlli ekki þrælfiskinn? Jú, hann er seigur, fjandi leikinn, en dynt- óttur í landi, og gamli maðurinn kiprar nefið glettnislega. Þú ert nú færafantur, það vita nú allir. Maður er ekkert orðinn. Ég var dálítið glúr- inn hér fyrr meir, og hann lætur eins og hann megi ekki heyra á það minnzt að hann sé einn færasti skakmaður hér á miðum. — En nú er Júlli minn illa farinn. Nú? Hann á svo bágt með að pissa greyið, það ætlar líklega að fara með hann. Mér bregður við, við höfum nú dinglað saman í fjórtán vertíðir. Karlskinnið. Svo þú ert þá einn á báti. Það er ógaman, það vilja flestir taka sitt á þurru nú til dags, það er hlýrra trú ég, segir gamli maðurinn, en mér er bölvanlega við að skrölta þetta einn. Það var þennan morgun sem ég réði mig á handfæri með gamla manninum. Þó að ég hafi ekki stundað mikið skak um dagana, veit ég þó þetta: veiðarfærið sem þú hefur í höndunum verður að vera þannig útbúið að þú getir sagt: Hann er ekki til ef ég fæ hann ekki á þetta. Þegar ég var búinn að nostra við tvær sökkur svo að ég gat ekki betur, fór ég í búðina til Jakobs til að kaupa mér hæfilegan streng. En Jakob er sjálfum sér líkur. Þegar hann var búinn að selja mér strenginn dró hann fram einkenni- legt verkfæri og rak upp að andlitinu á mér. Þetta var einskonar málmfiskur á að gizka tíu tommu langur og úr öðrum enda hans hékk þríkrókur skreyttur blóðrauðu gúmmi. Hvað er nú þetta? Nýjasta nýtt, agn, sjáðu til, þeir moka hon- um upp á þessu við Lófótinn, sagði Jakob og bauð mér í nefið úr almenningskrukkunni. Og hvernig ætlarðu að fá þetta til að lóða, spurði ég. Það er nú kúnstin. Þú hefur ekki fimm- punda dræsu í þessu lagsmaður, heldur þetta hérna, nýjasta nýtt, nælonþráður. Þetta var þráður margbrugðinn úr örmjóum þáttum og þó ekki digurri en lóband, grænn að lit. Sjáðu nú til, sagði Jakob, sakkan sú arna flögrar í sjónum og skín eins og lýsigull og af því þráðurinn er grænn, ja þá sér fiskur- inn hann ekki og heldur að þetta glitrandi agn sé síld eða þessháttar hnossgæti og gleyp- ir allt saman. Hefur nokkur reynt þetta? Ekki ennþá, ég er alveg nýbúinn að fá það, en það veiztu að svona ginna þeir laxinn lags- maður, leggja fyrir hann alskonar gildrur og gyllingar sem hann steypir sér á og er þó sagður vitrastur fiska. Og hvernig ætlarðu að draga þennan blá- þráð, spurði ég og hélt nú að ég hefði snúið prangarann af mér. En Jakob hló stórkalla- lega, tók fram gúmmívettlinga og sagði: Taktu á því með þessu. Og kaupin voru gerð. Það var norðangjóla og morgunsvalt.* Þegar ég kom á bryggjuna hafði gamli mað- urinn sett vélina í gang og beið mín óþreyju- fullur. Svo var lagt af stað. Það var ekki orðið dagljóst, en þegar við runnum út höfn- 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.