Birtingur - 01.07.1955, Síða 14

Birtingur - 01.07.1955, Síða 14
Hinsvegar þykir mér fangelsislýsingin orka tvímælis. Það sem hér var kallað siðferði- legur nihilismi en mætti líka kalla samúð, það snýst í fangelsisþættinum í einskonar dýrkun, helgisagnarkennda upphafningu fangans þar sem morðinginn fær að leika eins- konar konung í krafti glæpsins. Þetta upp- hafningarbragð verður til þess að gera það of óraunverulegt. Svo er ekki um meginþáttinn í skáldsög- unni, þróun Ólafs. Þar er líkingatæknin fallin til þess að gefa mannlýsingu dýpt sem virðist á ytra borðinu aðeins eiga að vera um íslenzk- an sveitalim sem kastar lífi sínu á glæ á fullorðinsárum til þess að fylgja flogaveikri konu af einskærri meðaumkun og reynir af öllum mætti að vera ekki aðeins þorpsskáld. Þessi líkingatækni er engin ný bóla í Ljós- víkingnum. f Sölku Völku verður hennar vart. En í Sjálfstæðu fólki gætir hennar mjög svo sem þegar var sýnt í sambandi við lýsinguna á Bjarti: þátturinn um Kólumkilla, persónu- gerfing illra afla sem mergsjúga fólkið í sveit Bjarts, er að vissu leyti lýsing þess fjárhagslega vægðarleysis sem knésetur Bjart. í Ljósvíkingnum er líkingatæknin á- þreifanleg í lýsingunni á aðalpersónunni og í ástarlýsingunum. Undarlega skrumskæld vera, leifar þess sem verið hafði einhverju sinni kona, er sveitin hefur lokað inni og þorir ekki að sýna yfirvöldunum, verður nokkurs konar táknmynd þess lífs sem lifað er í Svið- insvík. Mál Laxness verður loks svo mettað hugmyndatengslum og inntaki að eitt hvers- dagslegt orð getur tekið á sig óvæntustu merkingar í þeim heimi sem hann skapar. 5. „Við ein takmörk hættir maðurinn að skipta skapi, en í stað þess vex honum annar hæfi- leiki, í senn hagnýtara vopn og öflugri hlíf: hæfileikinn til að þola.“ Þegar Laxness skrif- ar þetta er hann að gefa margþætta lýsingu á því hvað heldur skáldi þessu upp úr. Har hefur framið nauðgun á ófullveðja unglings- stúlku sem þó er fyllilega mannbær og er fluttur að lokinni fyrstu yfirheyrslu bundinn aftan í hest. Hvað veldur því að hann þrauk- ar? Svarið er: „Ólafur Kárason á ósýnilegan vin, sem engum mun nokkru sinni takast að nefna —Hljómurinn, Röddin sem hefur fylgt honum frá bernsku er orðin að fögnuði vegna þess að hann á fegurðina, enda þótt menn hafi tekið allt frá honum. í fangelsinu er hann nærri því að láta bugast en í svart- asta myrkrinu kemur Sigurður Breiðf jörð til hans og segir þrjú orð „Hún heitir Bera“. Það er margrætt svo jaðrar við meiningar- leysu. Þess má minnast sem sagt var um Sigurð Breiðfjörð, fyrirmyndina og verndar- ann, nefnilega að hann væri „ef til vill byggj- ari efri heima en fyrr, þar sem hvorki ríkir litur né form.“ Hið margræða öðlast merk- ingu í ástarlýsingunni sem á eftir fer. Stúlk- una sem Ólafur hittir á skipinu á heimleið kallar hann Beru. Þau orð sem burgu honum í fangelsinu bentu kannski til fegurðarinna sem hins frelsandi afls. En þegar Bera deyr gengur skáldið í átt til jökulsins til að finna hana og Fegurð Himinsins. Þetta er á morgni upprisunnar. En það er ekki Kristur sem rís upp frá dauðum, það er hann sjálfur, segir Ólafur, þegar hann yfirgefur húsið. Sá sem sjálfur sagði það hlutverk skáldins að vera tilfinning heimsins hlýtur dauða píslarvott- arins. Honum varð ofraun að lifa fegurðina á jörðinni. Það er tilfinning sem er vakin í hinni dýpstu niðurlægingu, hinni sárustu raun. Þetta verður ákæra á hendur lífinu sem ekki getur hýst slíka kennd. Laxness vogar í sambandi við fegurðina það sem hann vildi ekki gera þegar um hugsjónina var að ræða: að tefla henni fram móti fátækt lífsins. Skáld- ið ferst, en það gerist á því sviði, sem liggur 12 J

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.