Birtingur - 01.07.1955, Qupperneq 18
í ísafold, 3- okt. 1924 segir svo: „Síðastliðinn sunnudag gerðust þau tíðindi í kaþólsku kirkjnnni í
Landakoti, að Stefán skáld frá Hvítadal, sem fyrir skömmu hefir gerst kaþólskur maður, var sleginn
til riddara Krists, eða biskupaður.
Athöfnin fór fram að sunginni messu og framdi hana prefekt kirkjunnar hér á landi, Meulen-
berg, klceddur kórkápu, með mítur á höfði, aðstoðaður af tveim prestum. Athöfnin sjálf felst í því,
að lesnar eru latneskar bcenir, síðan er sá smurður úr Chrysam, sem á að biskupa. Þá er honum
sleginn léttur kinnhestur meðan sögð eru orðin Pax Tecum. — Þótti athöfnin áhrifamikil og fögur.
— Guðfaðir Stefáns eða patrínus, var Halldór Kiljan Laxness."
Myndin hér að ofan er tekin hjá Olafi Magnússyni þennan eftirminnilega dag, hinn 28. sept. 1924.
Standandi eru: Jón Pálsson tónskáld frá Hlíð og Björn Björnsson teiknikennari. Sitjandi: Halldór
Kiljan Laxness, Lúðvíg Guðmundsson skólastjóri, Stefán frá Hvítadal og Asgeir Bjarnþórsson,
(Nokkrum dögum áður hafði „Halldór Kyljan (svo) Laxness rithöfundur" fengið leyfi stjórnarráðs-
ins til að ganga undir stúdentspróf, sbr. frétt í Isafo/d 26. sept. sama ár).
16