Birtingur - 01.07.1955, Page 46

Birtingur - 01.07.1955, Page 46
Fjöldafram- leiðsla Fossvogskapellu (rómanskur stíll), Landakotskirkju (gotneskur) og Landsbankann (renesans). Hús í barokkstíl eigum við ekki, en eftir fyrra stríð var mikið flutt inn af gömlum dönskum barokkhúsgögnum. Öll þessi draugsmennska hafði þó einn kost: Menn f óru að gef a gaum ýmsu í fortíðinni sem þeir höfðu ekki veitt athygli áður eða litið niður á af furðulegum hroka; t. d. hafði verið litið niður á gotneska tímabilið sem hálfgert barbarí, að maður tali ekki um list frummannsins eða negra- list; ekki eru nema 50 ár síðan Botticelli, sá undursamlegi meistari, varð heimskunnur málari, enda þótt hann lifði og starfaði á 15 öld. Sum verk frá þessum tímum lágu á 18. og 19. öld í skúmaskotum, og lá við borð að þeim yrði á eld kastað sem einskis nýtu rusli, svo sem altaristöflu Duuccio í Dómkirkjunni í Siena. Um sömu mundir og þessi bylting ríður yfir missa kirkja, aðall og kóngar, sem um aldir höfðu verið verndarar lista, völdin í hendur nýríkum kaupmönnum og iðjuhöldum með vafasamt uppeldi, takmarkaða menntun og lélegan smekk. Sjálfir kunnu þeir ekki að greina kjarnann frá hisminu í listum, en hins vegar sáu þeir sér leik á borði að nota vélarnar til að stæla ýmsa fortíðargripi í gróðaskyni. Til þeirra má rekja þau firn ósmekklegra stílstælinga sem við rekumst á hvarvetna í heiminum í dag: hús, húsmuni, húsgögn, klæðnað, vefnað, áhöld o. fl., sem átt hefur hvað drýgstan þátt í að spilla smekk almennings. Byggingartækni hefur ávallt ráðið miklu um útlit og gerð húsa, sbr. burstina og griska hofið, hvolfþakið rómverska og rómanska stílinn, hinn gotneska burðarstöpul. Nútímabyggingarlist er sömu lögum háð. Þó hefur hvorki stálbitinn né járnbenta steinsteypan jafn mikil áhrif á mótun hinnar nýju listar og verksmiðjuframleiðslan. Þar er um algjöra nýjung að ræða. Fjöldaframleiðsla á byggingarhlutum þekktist ekki áður fyrr. Þá komu húsasmiðir með verkfæri sín og hráefni á staðinn þar sem húsið átti að rísa. Allir hlutir, svo sem gluggar, hurðir, lamir, lásar voru smíðaðir fyrir þetta hús og ekkert annað. 1 dag eru þessi verk unnin í / nútimabyggingum hvllir þungi húss- ins d súlum. Þcssvegna cr hrcgt aÖ opna húshliðina fyrir birtunni að utan. 44

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.