Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 3
Reykjavík,
Sept.—des. 1957
tJtgefandi: Kvenfélagasamband íslands
8. árgangur,
3.—1. tölublað
ÁRELÍUS NÍELSSON:
tt • • • •• i»* r
Himingjoiin gooa
Ræða flutt í upphafi landsþings K. í.
9. sept. 1957.
Sérhver góð gjöf, sérhver fullkomin
gáfa er ofan að og kemur niður frá
föður ljósanna.
Jakob postuli.
Hver er áhrifamesta og æðsta gjöf ör-
laganna ?
Spurningunni er vandsvarað, þvi að
gjafir lífsins eru svo óendanlega margar
og margvíslegar. Sumir myndu vafalaust
nefna einhverja efnislega auðsuppsprettu
í ætt við peninga, frægð og völd. Aðrir
teldu fremur að gjöfin væri einhver snilli-
gáfa, sem aftur gæti veitt veröldinni mik-
ið af unaði og gleði, þroska og hagsæld.
Eins væri hægt að hugsa sér, að slík gjöf
væri gott heimili, vel gefin börn og trygg-
ir, traustir vinir. Og sumir gætu sagt, að
þessi gjöf væri lífið sjálft, en það er of
vítt svið, þótt til sanns vegar mætti færa.
Hér er sem sagt um að ræða eina af gjöf-
um lífsins, eina af þeim gjöfum, sem okk-
ur er valin, án nokkurrar tilhlutunar af
okkar eigin hálfu. Þar er engu hægt um
að þoka, fremur en með fæðingu og
dauða, sem allt er mótað og ákveðið í
alvitundarhæðum. Ég svara spurningunni
áliveðið með tveim orðum: Góð móðir.
Hún er áreiðanlega himinsins og örlag-
anna æðsta gjöf, til mótunar öllu ævi-
skeiði manns, hvort sem hann er karl eða
kona, ríkur eða fátækur, gáfaður eða fá-
kænn. Þess vegna ætti ekkert að vera of
dýrt né dýrmætt til þess að móta og
mynda þessa himingjöf mannlífs.
En hvernig er þá góð móðir? Hvað þarf
kona að gera og hvernig þarf hún að
breyta til að verðskulda slíkt tignar-
heiti?
Fyrst mætti ef til vill taka það fram,