Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 52

Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 52
ekki hefur enn komið fram vilji sambandanna úti um land í því máli. IX. Ályktun um þátttöku í Landssambandi gegn áfengisbölinu. í framhaldi af ályktun síðasta landsþings um þátttöku í stofnfundi Landssambands gegn áfengisbölinu samþykkir þingið, að K. í. skuli vera aðili að samtökum þessum. B. Áskoranir og ályktanir til kvenfélaga og héraðssambanda. I. Ályktun um heimilisiðnaðarmál. Þingið beinir þeirri áskorun til allra kven- félaga innan sambandanna, að þau stofni heim- ilisiðnaðarnefnd innan hvers kvenfélags, sem hafi svo samband við Heimilisiðnaðarfélag ís- lands, sem mun lána fyrirmyndir til að vinna eftir. II. Áskorun um handavinnukennslu barna og unglinga. Landsþingið skorar á kvenfélög víðs vegar um landið að taka til rækilegrar athugunar og um- ræðu handavinnukennslu barna og unglinga í smáskólum og dreifbýli (farskólum). Telur þing- ið nauðsynlegt, að konur fylki sér fast um það að fá þvi framgengt, að öll börn og ungmenni njóti lögboðinnar tilsagnar í handavinnu eigi síð- ur en bóklegum fræðum. III. Ályktun um fjárstyrk til garðyrkjunámskeiða. Þingið beinir því til kvenfélaga og kvenfélaga- sambanda, að þau leiti eftir fjárstyrk hjá bún- aðarfélögum, hvert á sínu svæði til stuðnings garðræktar á heimilum, þar sem ræktunarmálin og fjárveiting til þeirra eru algerlega í höndum búnaðarfélaganna. C. Ályktanir og áskoranir um ýmis almenn mál. I. Tillögur og ályktanir um orlof húsmæðra. 1. Landsþing Kvenfélagasambands íslands leggur áherzlu á það, að öllum, sem vinnu stunda, sé nauðsynlegt að fá árlega hvíld frá störfum sínum: orlof, og telur, að þeir, sem ekki fá ákveðinn orlofstíma árlega, ættu að kappkosta að veita sér orlof einhverntíma ársins. Sérstaklega vill þingið beina því til heimil- anna, að þau reyni að koma því svo fyrir, að húsmóðirin geti átt kost á orlofi árlega. Til þess að orlof, sem veitir hvíld og tilbreyt- ingu, geti orðið almennt, telur þingið nauðsyn- legt, að komið sé upp hvíldar- og gististöðum, þar sem fólk getur dvalizt við sanngjörnu verði og bendir í þessu sambandi á skólabyggingar landsins til reksturs gistiheimila um lengri eða skemmri tíma. Þingið telur, að K. í. eigi að taka húsmæðraorlofsmálið á starfsskrá sína og vinna að því með félagsdeildum sínum. Vill þingið hvetja héraðssamböndin til þess að koma á fót húsmæðraorlofsnefndum, sem hefji undirbúning málsins hver á sínu svæði. 2. Þingið ákveður að kjósa nefnd, sem vinnur áfram að málinu ásamt stjórn K. í. Sé málið lagt fyrir næsta formannafund og landsþing K. í. til frekari umræðna og athugunar. 3. Þingið leggur áherzlu á það, að skilyrði þess, að önnur starfsemi vegna húsmæðraorlofa komi að gagni, sé það, að lögin um heimilis- hjálp í viðlögum komist almennt til fram- kvæmda. 4. Þingið beinir því til væntanlegrar milli- þinganefndar, að hún veiti húsmæðraorlofsnefnd- um, sem kynnu að komast á fót, þær upplýs- ingar, sem unnt er. II. Áskorun um námskeið fyrir handavinnukennara. Þingið skorar á fræðslumálastjórn að halda árlega námskeið fyrir handavinnukennara í hin- um ýmsu landshlutum, eins og þegar hefur verið byrjað á. III. Áskorun um húsmæðrakennaraskóla íslands. Þar sem jafnan er skortur á lærðum hús- mæðrakennurum og engir nýir kennarar geta bætzt við á næsta vori, beinir landsþingið þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnarinnar að koma því til leiðar, að Húsmæðrakennaraskóli íslands hefji starf á ný sem allra fyrst og eigi siðar en haustið 1958. Jafnframt álítur þingið, að í sambandi við væntanlegan húsmæðrakennaraskóla sé óhjá- kvæmilegt að hafa heimavist fyrir nemendur. IV. Áskorun um stofnun uppeldisskóla fyrir ungar stúlkur. Samkvæmt 37. gr. laga, sem sett voru fyrir 10 árum, er ríkinu skylt að setja á stofn og reka uppeldisskóla fyrir ungar stúlkur. Telur lands- þingið með öllu óviðunandi, að ríkisstjórnin skuli 52 HÚSFREYJAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.