Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 38
- Og heimur mun fœðast við fœtur þér
Orðin, sem standa undir mynd, er nú
prýðir forsíðu ,,Húsfreyjunnar“, las ég í
fyrsta sinn austur á Indlandi. Þröng var
í salnum, þar sem ljósmyndasýningin
„Fjölskylda þjóðanna“ var til sýnis. Við
útgöngudyrnar var þessi mynd af börn-
unum tveimur. Telpan er ekki hávaxnari
en svo, að stráin á götubrúninni ná henni
í öxl, en bróðirinn Heldur föstu taki um
heitan lófann og ótrauð feta þau götuna
inn í sólgullið skógarrjóður, áfjáð í að
kynnast dásemdum heimsins.
Mér varð litið til hliðar, þar sem ég
stóð og skoðaði myndina. Þeldökk, ind-
versk kona stóð hjá mér og lét lítið barn
hvílast á mjöðm sér. Litli anginn brá
fingri í munn sér og sperrti berar tærnar
út í loftið, er hann tók eftir þessari
skrítnu, útlendu konu, sem horfði á hann.
En móðirin brosti við mér. Við litum
báðar á myndina og aftur á barnið henn-
ar. Hún hló lágt, strauk mjúklega hendi
um svarthærðan koll barnsins, brosti til
mín á ný og hvarf í mannþröngina.
FÆRIÐ
HEIMILISREIKNIN G A
Frh. af bls. 32.
leiðanda, verzlana og neytanda. Ennfrem-
ur er í þessum bæklingi lögð áherzla á
það, að kaupendur fái upplýsingar í verzl-
unum um gæði varanna, húsmæður og
aðrir kaupendur eiga að spyrja verzlunar-
fólkið ítarlega um gæðamerki á vörum
og krefjast þess, að það geti gert grein
fyrir, hvaða vörur það hafi að bjóða,
hvaða efni sé um að ræða í hverri vöru-
tegund, hvernig hún sé heppilegust í notk-
un, hverja meðferð hún þurfi o. s. frv.
Þetta eru aðeins sjálfsagðar upplýsingar,
sem seljendur eiga að geta gefið, en hús-
mæður þurfa svo að vera dómbærar á,
hvort þeim sé gefin rétt vitneskja um
Við þurftum ekki orð til að skilja hvor
aðra, hin indverska og íslenzka kona.
Báðar munu hafa óskað þess, að svo
örugg og indæl mætti verða æska allra
barna, hvort sem þau eru fædd undir
bragandi norðurljósum norðursins eða
sólarbruna suðursins, meðal smáþjóða
eða milljónaþjóða. Og hjá öllum þjóðum
er hlutverk móðurinnar hið sama: Að
veita barninu öryggi og styrk, til að það
geti vonglatt þrætt brautina inn í hinn
óþekkta heim framtíðarinnar.
Mannlegar tilfinningar eru alls staðar
þær sömu. Ást og söknuður, harmur og
huggun, skortur og velsæld orka alls
staðar eins á mennina. Því ætti að vera
auðvelt að skilja meðbróðurinn, hvar
sem hann býr, og skilningurinn er leiðin
til vináttu og friðar. Þann boðskap flutti
ljósmyndasýningin ,,Fjölskylda þjóðanna"
hverjum þeim, sem hana sá.
S. Th.
hvern hlut. Því miður er mikill misbrest-
ur á því í mörgum verzlunum hér á landi,
að góðar upplýsingar um vöruna séu fá-
anlegar, oft fást engin svör, ef spurt er
um, hvers konar vara sé þar á boðstól-
um, og stundum eru gefin röng svör. Hef
ég rekið mig á, að afgreiðslufólk gefur
jafnvel allt aðrar upplýsingar en gefnar
eru á prentuðum merkimiðum, sem fylgja
sumum vörum frá þekktum verksmiðjum
og gera þá grein fyrir notkun vörunnar
og jafnvel meðferð. Á þessu þyrfti að
verða skjót og gagnger breyting. En ár-
angur í þessum efnum er fyrst og fremst
kominn undir vilja hvers einstaklings, og
hver húsmóðir gæti gert sitt til þess með
skjótum aðgerðum og góðum vilja.
S. Kr.
38 HÚSFREYJAN