Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 14
Staðarfellsskólinn
Húsraœðraskóli frú Herdísar Benediktsson
Sigurborg Kristjánsd.
Þegar ég var unglingur, heyrði ég
Ólafíu Jóhannsdóttur oft ræða um nauð-
synina á að koma upp húsmæðraskóla
í sveit. Þar skyldi kennd meðferð
mjólkur og smjörs, þar átti að kenna
mjaltir, meðferð kúa og hirðingu fjósa.
Ólafía ræddi þessi mál við marga mæta
menn, og helzti möguleikinn var, að slík-
ur skóli skyldi vera í sambandi við bún-
aðarskólana. Þá voru fjórir búnaðarskól-
ar á landinu, einn í hverjum fjórðungi.
Ekkert varð úr þessum bollaleggingum.
Það næsta, sem mér er minnisstætt í
sambandi við þessi mál er, að sagt var,
að frú Herdís Benediktsson frá Flatey
hefði gefið eftirlátnar eigur sínar til stofn-
unar húsmæðraskóla við Breiðafjörð.
Mun nokkur reipdráttur hafa staðið um
hvar skólinn skyldi staðsettur. Vildu Flat-
eyingar, að skólinn væri þar, sumir nefndu
Stykkishólm og aðrir Staðarfell —
kannske hafa allar sveitir við Breiðafjörð
viljað hýsa skólann. En víst er það, að
framkvæmdir og staðsetning drógust.
Maður frú Herdísar var Brynjólfur
Bogason Benediktssonar frá Staðarfelli.
Hafði sú ætt búið þar mann fram af
manni. Nú bjó á Staðarfelli bændahöfð-
inginn Magnús Friðriksson með sinni
fjölskyldu. Þetta var á fyrsta tug tuttug-
ustu aldar. Þau hjón ráku stórt bú og um-
fangsmikið. Þá vildi það til að bátur með
heimafólki fórst og þar á meðal sonur og
fóstursonur þeirra. Þetta mikla sorgar-
efni varð til þess, að þau hjón hættu bú-
skap og gáfu jörðina með húsum og lönd-
um til staðsetningar hugsuðum hús-
mæðraskóla frú Herdísar Benediktsson.
Fallegri stað var ekki hægt að kjósa fyrir
skólasetur.
Húsmæðraskólamál frú Herdísar lá nú
ekki lengur í þagnargildi. Magnús beitti
sér nú af miklum dugnaði fyrir því, að
skólinn yrði stofnaður og húsakostur
bættur.
Nú kom vandinn að finna forstöðu-
konu. Þá um ára bil hafði fr. Sigurborg
Kristjánsdóttir frá Múla í N-lsafjarðar-
sýslu verið á vegum Búnaðarfélags Is-
lands umferðakennari í matreiðslu og
heimilismenningu. Til hennar var leitað,
hvort hún vildi koma á stofn húsmæðra-
skóla á Staðarfelli. Tók hún það að sér
með skyldum og kvöðum. Hún rak bú-
skap um nokkurt s'keið, en eftir nokkur
ár var skólinn rekinn sem skóli frú Her-
dísar Benediktsson, hætti fr. Sigurborg
þá búrekstrinum og sleppti öðrum kvöð-
um, sem honum fylgdu.
Ég átti því láni að fagna að koma um
vor að Staðarfelli. Þar var inndælt að
koma! Skólalífið bjart og skemmtilegt,
eins og skólalíf á að vera — stjórnsamt
og vel unnið, hvar sem litið var.
Forstöðukonan kenndi eldhúsverkin,
matreiðslu alla og geymslu matvæla. Þeg-
14 HÚSFREYJAN