Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 45

Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 45
að pabbi Mömmu hafði alltaf þorsk og grjónagraut þetta kvöld á sínu heimili. Víða í Noregi helzt sú kaþólska venja enn að hafa ekki kjöt á borðum á jóla- nótt, þótt nú séu liðnar fjórar aldir, síð- an lútersk trú gekk þar í garð. En óvenju- legur hátíðablær er yfir öllu. Fólkið kem- ur að borðinu í sparifötunum, rafljósin eru slökkt, því að á jólanóttina eiga að- eins að brenna blaktandi kertaljós, og þau loga í hverjum krók og kima. Borðið var skreytt blómum, og kertin voru í gömlu, ensku stjökunum, og í kringum þá hafði Thea lagt sveig úr greni- og furugreinum og kornöxum. Og þegar öllu var á botninn hvolft, reyndist grjónagrauturinn, með sykri og kanel- berki og stórum smjörbita á miðjum diski, alls ekki sem verst. Svo var alltaf í honum ein mandla, og sá, sem hreppti hana, átti heilt hamingjuár í vændum. Áður fyrr var venjan sú, að sá, er hlaut möndluna, fékk sérstaka jólagjöf. En Afi vildi ala börn sín upp í þeim anda, að sælla væri að gefa en þiggja, og breytti þessu svo, að sú af stúlkunum hans, er hneppti hnossið, skyldi fá að afhenda jólagjafirnar sínar á undan hinum. En Mamma sagðist ekki geta munað eftir, að þessi fallega hugsun Afa gamla hefði nokkurn tíma mælzt vel fyrir hjá henni eða systrum hennar, svo að hún ákvað, að mandlan skyldi blátt áfram færa eig- andanum hamingju á nýja árinu. Og Tulla sat og var svo glöð, að hún skellihló í sífellu, og allir voru glaðir „hennar litlu vegna“, eins og Hans komst að orði. Tullu þótti góður grauturinn, en þó var enn betra að fá að horfa á kerta- ljósin og sjá þau flökta og blossa, ef hún blés á þau. Og það var Tulla, sem fyrst hóf höfuðið, hlustaði og sagði: „Ding, dong, ding, dong.“ . . . Tulla varð fyrst til að heyra kirkjuklukkurnar hringja jólin í garð. Og nú tóku allir rauðvínsglösin og gengu út á stétt. Klukkurnar hljómuðu, og léttur and- varinn bar greinilega hljóðið frá litlu klukkunni í kapellunni á Vingrum hin- um megin við stöðuvatnið. Nóttin var stjörnubjört, og ljós skein úr hverjum glugga í nágrenninu. Yfir skógi þaktar hæðirnar bar ljósaþyrpingar bændabýl- anna. Allir stóðu hljóðir, horfðu og hlust- uðu. Svo lyftu þeir glösunum, og hver bauð öðrum gleðileg jól. Hans svelgdi rauðvínið í einum gúlsopa, eins og það væri beiskasta lyf, því að honum þótti það ærið súrt, þótt ekki vildi hann kann- ast við annað en að vín væri gott. Nú var kominn tími fyrir Mömmu að fara niður í dagstofu og kveikja á jóla- trénu. Og þá fyrst hófst nú sjálf hátíðin. Undravert, að alltaf er það jafn há- tíðlegt ár eftir ár, hugsaði Mamma. Það skíðlogaði á stóra arninum. Kvoðukennd- ir furudrumbar snörkuðu í eldinum. Flöktandi, rauðri birtu brá á þiljurnar, sléttar eins og silki, ef um þær var strok- ið, og mýktar af elli, og um gamla, brúna bókakili með gylltu, fölnuðu letri. Kerta- ljósin frá jólatrénu og tveimur stóru, gömlu stjökunum, sem einu sinni höfðu staðið úti í kirkju, spegluðust í gluggun- um, en úti hjúfraði dökkbrýnd nóttin sig upp að rúðunum. Loftið var þrungið un- aðslegum ilmi frá lifandi furugreinum og bræddu vaxi, liljum og rósum. Mamma flutti stólinn til Tullu, og Andrés las jóla- söguna fyrir þær. 1 miðjum lestrinum gerði Neri uppþot, ýlfraði og vældi og heimtaði upp í fangið á Andrési. Aum- ingja hvolpurinn var hræddur við öll þessi undur . . . Eftirlætisskepnum er jafnan illa við allar breytingar á dag- legum venjum. Báðir kettirnir hurfu úr húsinu um kvöldið. Þeim leizt ekki á þessa bliku . . . Og Neri var sífellt órór. Njörður einn lét sér hvergi bregða. Hann HÚSFREYJAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.