Húsfreyjan - 01.09.1957, Side 11

Húsfreyjan - 01.09.1957, Side 11
sem hann gæfi pening í pottinn. „Viltu vinna þér fyrir jólaglaðningu?“ Tierney hleypti brúnum og hélt áfram að hringja bjöllunni. „Ég er vant við látinn. Ef þú vilt það ekki, þá fæ ég dólginn við næstu búð.“ Röddin var hvöss, eins og svipur manns- ins. „Það er smádót í húsi hérna uppi í götunni, sem mig vanhagar um. Ég þekki húsaskipun og kann á læsinguna á pen- ingaskápnum. Þú þarft ekki annað en labba inn og sækja dótið. Fólkið verður allt í hinum enda hússins að skreyta jóla- tréð, eins og vant er á Þorláksmessu. Krakkarnir sofa uppi. Þetta er leikur! 1 þessum skrúða grunar þig enginn — ef þú sést, þá ertu með jólagjafir, skilurðu? Færðu mér dótið og þú færð fimm þúsund fyrir.“ „Fimm þúsund —“ „Einmitt! Hvað segirðu, lagsi?“ Því ekki? Auðvelt og svo til áhættu- laust. Þessi náungi myndi vísa honum leið- ina inn í rétta herbergið. Þá var ekki ann- að en að ganga yfir gólfið, opna peninga- skápinn og fara aftur út. „Allt í lagi. Ég er búinn hér klukkan átta.“ „Ágætt,“ sagði maðurinn. „Ég er búinn að fylgjast með þér í tvo daga. Hittu mig klukkan níu á næsta horni hérna megin götunnar." Tierney kinkaði kolli. „Ég skal koma.“ Maðurinn fór. Hríðin jókst. Nick Tierney horfði um stund löngunaraugum á stóra, gráa húsið, sem Mið-Borgarsjúkrahúsið var í. Svo leit hann í aðra átt. Brátt fengi hann hærri laun en hann hafði nokkru sinni fengið fyrir uppskurð. Ef þú gerir þetta, þá geturðu aldrei snúið aftur, aldrei! Hann hló lágt, sárt. „Mig langar ekki heim aftur. Ég læt þau flytja hingað.“ Stefnumótsstaðurinn var ekki langt frá hinu ódýra fjölbýlishúsi, sem Nick bjó í og hann ákvað að fara heldur þangað, en að borða á veitingahúsi, eins og hann var vanur. Hann gat hitað sér súpudós og hvílt sig stutta stund. Á leiðinni heim lagði hann niður fyrir sér hvað hann skyldi gera, þegar þessu væri lokið. Hann ætlaði að fá sér glas af víni og notalega máltíð, fara svo og verzla, kaupa jólagjafir handa Maríu, Nicka litla og móður sinni. Hver veit nema hann sendi þeim strax fargjaldið, svo þau gætu verið hjá honum á jóladag- inn, jafnvel ílengst í borginni. Einhvern veginn vakti þessi tilhugsun litla gleði með honum og þegar hann kom heim, var hann alveg orðinn afhuga því að láta fjölskylduna koma, þó ekki væri nema einn dag. Hann hélt á bjöllunni og hreindýrasvip- unni í annarri hendi, en opnaði dyrnar með hinni. Bjallan klingdi, er hann gekk inn ganginn. Við stigann stóð húsfreyjan og ræddi við ungan mann með gleraugu. „Nei, — hún er verri, frú McCarthy," heyrði Nick að ungi maðurinn sagði þreytulega. „Ég er búinn að gera allt, sem ég get. Nóttin í nótt ræður úrslitum. Ef við gætum komið henni í svefn, þá væri meiri von til að hún hefði það af.“ „Ósköp eru að heyra þetta,“ andvarp- aði húsfreyjan. „Hún er bæði gott og fallegt barn. Stundum sýnist manni himnafaðirinn .... Gott kvöld, herra Temple og gleðileg jól.“ „Gleðileg jól,“ tuldraði Nick og þramm- aði upp stigann, sem glumdi undir þung- um stígvélunum, en bjallan klingdi við. Hann tók af sér belgvettlingana, skott- húfuna og skeggið og þvoði sér á meðan súpan var að hitna á gasloganum. Það vafðist fyrir honum, að einhvers staðar myndi vera veikt barn í húsinu og þá hafði ungi maðurinn með gleraugun sjálf- sagt verið læknir. Innflúensa — lungnabólga að öllum lík- indum. Já, svefninn, vær og rór svefn, réði oft úrslitum í slíkum tilfellum. Hann var að ljúka við súpuna, þegai barið var að dyrum. „Kom inn,“ sagði hann og í dyrunum birtist ungi maður- inn með gleraugun. „Ég er Morton læknir.“ Rödd hans var þreytuleg. „Ég hef stundað telpuna Jen- HÚSFREYJAN 11

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.