Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 50

Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 50
KVENFÉLAGASAMBAND /1 ID ISLANDS 12. landsþing Kvenfélagasambands íslands var haldið í Reykjavík dagana 9.—12. september 1957. Þingið sátu 39 fulltrúar, auk stjórnar sam- bandsins og nokkurra gesta. Viðstaddar þing- setningu voru forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir og félagsmálaráðherrafrú Sólveig Ólafsdóttir. Var þingið sett með guðsþjónustu, er sr. Árelíus Níelsson flutti. Að guðsþjónustu lokinni flutti forseti sambandsins, frú Guðrún Pétursdóttir, ávarp og setti þingið. Þingið sóttu þessir fulltrúar: Bandalag kvenna í Reykjavík: Aðalbjörg Sigurðardóttir Guðlaug Narfadóttir Sigríður Eiríksdóttir Kristín Halldórsdóttir Kristín Ólafsdóttir Gunnfríður Rögnvaldsdóttir Ragnhildur Þorvarðardóttir Valgerður Gísladóttir Svafa Þorleifsdóttir Hallfríður Jónasdóttir Guðrún Pétursdóttir Sigurbjörg Guðmundsdóttir Jóhanna Egilsdóttir Sigríður Friðriksdóttir Samband kvenna I Gullbringu- og Kjósarsýslu: Helga Magnúsdóttir, Blikastöðum Vilborg Ámundadóttir, Keflavík Samband borgfirzkra kvenna: Ásta Sighvatsdóttir, Akranesi Guðrún Sigurðardóttir, Borgarnesi Samband breiðfirzkra kvenna: Elinbet Jónsdóttir, Fagradal Kristjana Hannesdóttir, Stykkishólmi Samband vestfirzkra kvenna: Sigríður Guðmundsdóttir, ísafirði Elísabet Hjaltadóttir, Bolungarvík Solveig Kristjánsdóttir, Reykjaskóla Samband kvenna í Strandasýslu: Anna Sigurðardóttir, Guðlaugsvik Kvennasambandið, Vestur-Húnavatnssýslu: Jósefína Helgadóttir, Laugabakka Sambund austur-húnvetnskra kvenna: Þuríður Sæmundssen, Blönduósi Samband skagfirzkra kvenna: Jórunn Hannesdóttir, Sauðárkróki Samband eyfirzkra kvenna: Guðrún Björnsdóttir, Siglufirði Ingibjörg Stefánsdóttir, Hrísey Kvennasamband Akureyrar: Ingibjörg Halldórsdóttir, Akureyri Héraðssamband eyfirzkra kvenna: Solveig Kristjánsdóttir, Munkaþverá Samband ausfirzkra kvenna: Sigurrós Oddgeirsdóttir, Reyðarfirði Samband austur-skaftfellskra kvenna: Anna Þorleifsdóttir, Hólum Samband vestur-skaftfellskra kvenna: Gyðríður Pálsdóttir, Seglbúðum Samband sunnlenzkra kvenna: Halldóra Guðmundsdóttir, Miðengi Magðalena Sigurþórsdóttir, Hvoragerði Kristín Sigfúsdóttir, Hellu Kvenfélagið „Líkn“, Vestmannaeyjum: Jóna Vilhjálmsdóttir, Vestmannaeyjum Kvenfélög í Hafnarfirði: Jakobína Mathíesen, Hafnarfirði. Vegna forfalla gátu fulltrúar frá Kvenfélaga- sambandi S-Þingeyinga og Kvenfélagasambandi N-Þingeyinga eigi sótt þingið. Annar fulltrúi Samb. austf. kvenna gat heldur eigi mætt. Þingforsetar voru kjörnar þær Rannveig Þor- steinsdóttir og Aðalbjörg Sigurðardóttir og þing- ritarar Kristín Halldórsdóttir og Sigurrós Odd- geirsdóttir. Rannveig Þorsteinsdóttir flutti skýrslu stjórn- arinnar fyrir tvö undanfarin ár. í sambandinu eru nú 210 félög með 13.126 félagskonum. Á þossum tveimur árum hefur sambandið styrkt 136 námskeið á vegum félaganna víðs vegar um landið, en námskeiðin hafa sótt 2170 k»nur. Þá hefur sambandið ráðið í þjónustu sína ráðunaut skv. samþ. síðasta landsþings. Ráðunautur þessi cr Steinunn Ingimundardóttir frá Akureyri, hús- mæðrakennari. Flutti hún síðar á þinginu skýrslu og erindi um störf sín. Dvaldi hún fyrst um nokkurra mánaða skeið erlendis til þess að kynna 50 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.