Húsfreyjan - 01.09.1957, Qupperneq 51
sér störf heimilisráðunauta í Noregi og Dan-
mörku, en hóf svo störf sín í janúarmánuði sið-
astliðnum. Hefur hún heimsótt 23 kvenfélög víða
um landið, haldið sýnikennslu og vinnunámskeið
og flutt húsmæðrum ýmiss konar fræðslu og ráð.
Þá voru lagðir fram endurskoðaðir reikningar
sambandsins fyrir árin 1955 og 1956 og sam-
þykktir.
Svafa Þórleifsdóttir flutti skýrslu um útgáfu
tímarits sambandsins, ,,Húsfreyjuna“. Fer kaup-
endum sífellt fjölgandi, þótt hægt fari. Er það
í frásögur færandi, að Kvenfélag Lágafellssóknar
kaupir nú ritið handa öllum félagskonum sínum.
Tvær milliþinganefndir höfðu starfað frá því,
er síðasta landsþing var haldið: félagsmálanefnd
og orlofsnefnd. Lögðu þær báðar fram tillögur
og ályktanir fyrir þingið. Hafði skv. tillögu hinn-
ar fyrrnefndu og samþykkt formannafundar, er
haldinn var í sept. 1956, verið hafinn bréfaskóli
á vegum K. í. til leiðbeininga við fundastörf.
Hér fara á eftir ályktanir þær og tillögur, er
samþykktar voru á þinginu.
A. Félags- og framkvæmdamál K. í.
I.
Ályktanir og tillögur um námskeið.
1. Að fenginni reynslu litur landsþingið svo á,
að garðyrkjunámskeið séu of dýr til þess, að
K. í. geti styrkt þáu svo að gagni komi og ákveð-
ur því að hætta styrkveitingum til þeirra.
2. Þingið telur sjálfsagt, að styrkir til nám-
skeiða haldist eftir sömu reglum og verið hefur
(sjé tímar. ,,Húsfreyjuna“, 3. tbl., 6. árg.).
II.
Ályktanir og samþykktir um „Húsfreyjuna",
rit K. f.
12. landsþing K. í, lýsir ánægju sinni yfir
tímaritinu ,,Húsfreyjunni“ í þvx formi sem ritið
er nú og þakkar útgáfustjórn og ritstjórum ágæt
störf.
Vegna síaukins útgáfukostnaðar telur þingið
nauðsynlegt að hækka áskriftargjaldið við næstu
áramót úr kr. 20.00 í kr. 25.00.
III.
Ályktun og áskorun til stjórnar K. í. um
heimilisráðunauta sambandsins.
Landsþingið beinir þeirri áskorun til stjórnar
K. f. að gera allt, sem unnt er, til þess að búa
<---------------------------------------------
Leiðrétting.
Á bls. 50, fremri dálk, 13. línu að neðan, les:
Guðríður Sigurðardóttir. í sama dálk, 3. línu
að neðan, les: Kvennabandið, V.-Hún.
v_____________________________________________>
heimilisráðunautum sambandsins þau kjör, að
þeir sjái sér fært að starfa í þjónustu K. í. Felur
landsþingið stjórn K. í. að fara þess á leit við
ríkisstjórn og Alþingi, að ríkið greiði framvegis
laun slíkra ráðunauta, og að þeir verði aðnjót-
andi lífeyrissjóðsréttinda.
IV.
Ályktun um bréfaskóla K. f.
12. landsþing K. í. lýsir ánægju sinni yfir
bréfaskóla sambandsins, er hóf starfsemi sína á
síðastl. ári. Telur þingið æskilegt að framhald
verði á starfi þessu með sama sniði og áður,
þannig að send verði út 2 bréf á ári.
V.
Ályktun um sögu kvenfélaganna.
Landsþingið lýsir ánægju sinni yfir þeim ár-
angri, sem náðst hefur við söfnun að sögu kven-
félaganna. Jafnframt felur þingið stjórn K. í. að
hlutast til um, að unnið verði úr þeim gögnum,
er fyrir liggja og undirbúið handrit til prentunar.
VI.
Tillögur um samræmingu á lögum héraðssam-
banda og kvenfélaga.
1. Þingið samþykkir að gerðar verði breyting-
ar á lögum allra héraðssambanda innan K. í. til
samræmis skv. tillögum þeim, er félagsmálanefnd
lagði fram á formannafundinum að Laugarvatni
8. sept. 1956 (sjá „Húsfreyjuna" 4. tbl. 7. árg.
bls. 32, 1,—4. tölulið).
Jafnframt felur þingið stjórn K. í. að sjá um að
héraðssamböndin breyti lögum sínum samkvæmt
ofangreindum tillögum.
2. Fyrir næsta landsþingi liggi tillögur um
samræmingu á lögum kvenfélaga innan K. í.
VII.
Ályktanir um birtingu á tilkynningum og álykt-
unum, er sambandið varða.
Landsþingið beinir því til stjórnar K. í. að
birta tilkynningar og ályktanir, sem sambandið
varða í ,,Húsfreyjunni“ eingöngu, þegar öruggt
er, að þær berist félögunum nægilega snemma
með því móti.
Þar sem K. í. styður útgáfu „Húsfreyjunnar"
finnst þinginu eðlilegt og sjálfsagt, að allar til-
kynningar ásamt fundargerðum landsþings og
formannafunda séu birtar í ritinu.
VIII.
Ályktun um þátttöku í Alþjóðasambandi
húsmæðra.
12. landsþing K. I. telur ekki tímabært að ger-
ast aðili að Alþjóðasambandi húsmæðra, þar sem
HÚSFREYJAN 51