Húsfreyjan - 01.09.1957, Side 54
Hægðarauki fyrir
húsmæður.
Smáskúffuskápurinn „Easylux“.
Oft er á það drepið, bæði í ræðu og
riti, að margar húsmæður hérlendis eigi
allt annað en næðissama daga og að
þeirra daglegi vinnutími sé mun lengri en
annara stétta þjóðfélagsins. Mun þetta
eigi ofsagt vera. Að vísu mun staða hús-
freyjunnar seint verða vandalítil né erfið-
islaus, en mála sannast er það, að á síð-
ari tímum hefur mikil áherzla verið á
það lögð, að auðvelda starf þeirra með
vinnuvélum og hagkvæmum smááhöld-
um. Munu íslenzkar húsmæður kannast
við ýmislegt af þessu tæi, þó að ætla
mætti að þær væru enn betur á verði um
slíka framleiðslu innlenda en raun ber
vitni.
Alkunna er, hve tafsamt húsmæðrum
reynist tíðum að finna sitthvað smávegis
til matargerðar, þegar þær þurfa að hafa
hraðan á við slík störf. Talsverða fyrir-
höfn getur það einnig kostað að sjá, hvort
ýmis konar smávarningur, svo sem krydd,
er fyrir hendi eða þrotið, en slíks þarf
einkum að gæta fyrir helgidaga og há-
tíðir. Til þess að auðvelda þetta, hefur
að minnsta kosti í Noregi og Svíþjóð ver-
ið fyrir alllöngu síðan hafin gerð sér-
stakra skápa til þess að geyma svona
vöru í, svo nefnda smáskúffuskápa. Hitt
mun eigi vera á hvers manns vitorði, að
hér á landi er fyrir nokkrum árum hafin
framleiðsla samskonar skápa. Er það
Ofnasmiðjan hf. í Reykjavík, sem for-
göngu hefur um þetta og munu þeir skáp-
ar í engu standa að baki þess háttar fram-
leiðslu erlendri. Vill ,,Húsfreyjan“ vekja
athygli lesenda sinna á þessu, þvi að vert
er hverri húsmóður að fylgjast með og
afla sér, ef unnt er, hverra þeirra tækja,
er létta störf hennar, hvort sem um er
að ræða vélar eða smærri og ódýrari tæki.
Raunar mun ,,Easylux“, smáskúffu-
skápurinn, ekki vera hið eina tæki fyrir
f-------------------------------------%
HÚSFREYJAN
KEMUR ÚT 4 SINNUM A ÁRI
Ritstjórn:
Svafa Þórleifsd., Framnesv. 56a, sími 16685
Elsa E. Guðjónsson, Laugateig 31, sími 33223
Kristjana Steingrímsd., Hringbr. 89, s. 12771
Vara-ritstjórn:
Sigríður Thorlacius, Bólsstaðahlíð 16, s. 13783
Sigríður Kristjánsdóttir, Stigahlið 2
Afgreiðslu og innheimtu
annast Svafa Þórleifsdóttir, Framnesveg 56a,
sími 16685
Verð
árgangsins fyrir áskrifendur er framvegis
25 kr. í lausasölu kostar hvert hefti þá 7 kr.
Gjalddagi er fyrir 1. október.
IIVJA JÍNS HKLGASSNAR
EFNI: Bls.:
EFNI: Bls.:
Himingjöfin, ræða, sr. Árelíus Níelsson .. 3
Ávarp frú Guðrúnar Pétursdóttur (Landsþ.) 6
Hrúthagi, kvæði, Margrét Jónsdóttir ......... 7
Okkar á milli sagt .......................... 8
Á Þorláksmessu, saga, Walter Livingstone 10
Staðarfellsskólinn (2 myndir) .............. 14
Forn kynni, e. Sigríði Thorlacius .......... 18
Erindi Steinunnar Ingimundard. (Landsþ.) 20
Daginn, sem ég varð fullorðinn, saga, L. F. 21
Vetrarvísa, Halla Loftsdóttir .............. 25
Orðsending ................................. 26
Manneldisþáttur, Kristjana Steingrímsdóttir 27
Heimilisþáttur, Sigr. Kristjánsd., E. E. G. 31
,,Og heimur mun fæðast". Um forsíðumynd 38
Heilög jól, saga, Sigrid Undset ............ 44
„Þá ég heyri góðs manns getið ....“......... 48
12. landsþing K. í.......................... 50
Hægðarauki fyrir húsmæður .................. 54
húsmæður, sem Ofnasmiðjan hf. fram-
leiðir. Að minnsta kosti er „Húsfreyj-
unni“ kunnugt um, að þar eru smíðaðir
smekklegir og hentugir spaðar, ryðfríir,
til notkunar við að steikja fisk og annað
það, sem steikt er á pönnu. Væri æski-
legt, að íslenzkar húsmæður gerðu sér
far um að kynnast hverju því, sem fram-
leitt er hér innanlands og samkeppni þol-
ir við hið erlenda, nota svo það innlenda
og styrkja með því og hvetja þá, sem
slíka framleiðslu stunda. Með því gætu
þær sýnt þjóðrækni sína og ástundun í
að styrkja þjóðarbúskapinn í heild.
54 HÚSFREYJAN