Vera - 01.12.1983, Síða 15
— Heldur þú að það séu margar stelpur á þfnum aldri sem
fara til læknis að ná sér í getnaðarvarnir?
„Nei, engin sem ég þekki hefur gert það og ég held að það séu
mjög fáar sem þora það. Það er svo óþægilegt og svo þarf líka
samþykki foreldra ef maður er ekki orðinn 16 ára.“
— En hvaða getnaðarvarnir nota krakkar sem eru farnir að
sofa saman?
„Ég veit það ekki. Strákarnir kaupa örugglega smokka eða láta
þann sem er þornastur kaupa þá fyrir sig. Ég þekki enga stelpu sem
notar getnaðarvarnir en samt hugsa ég að hettan sé kannski al-
gengust."
— Hettan? Hún var nærri óþekkt fyrirbæri fyrir nokkrum ár-
um. Af hverju heldur þú að hún sé mikið notuð?
„Ég veit það ekki. Konan sem kenndi okkur líffræði sagði okkur
hvernig ætti að nota hettuna og ráðlagði okkur hana frekar en
pilluna."
— Talið þið krakkarnir saman um kynlíf og getnaðarvarnir?
„Vinkonur tala auðvitað oft um þetta, en strákar og stelpur tala
ekki um þetta saman. Ef þau gera það, þá er það bara í gríni.“
— En strákur og stelpa sem eru saman. Tala þau um þetta sín
á milli?
„Nei, ég held ekki. Kannski ef sambandiðámilli þeirraer búið að
standa lengi en ekki í svona skyndisamböndum."
— Hvenær byrja unglíngar að sofa saman?
„Það er svo misjafnt. Það er kannski ein og ein stelpa í 7. bekk
sem er farin að sofa hjá og þá er hún yfirleitt kölluð mellan. Krakkar í
7. bekk eru farin að vera saman en ekki að sofa hjá. Margar stelpur
eru farnar að hleypa upp á sig (því miður stelpur, við höfum ekki náð
meiri árangri! - aths. VERU) þegarþæreru 15-16áraog þábyrja
þær að spá í getnaðarvarnir."
— Heldur þú að strákarnir tali sín á milli um þær stelpur sem
eru farnar að sofa hjá?
„Já. Það var t.d. stelpa í 7. bekk sem allir vissu að hleypti upp á
sig og það töluðu allir um það. Hún var algert viðundur bæði frá
okkar og strákanna sjónarhorni. Annars reyna strákarnir að kom-
ast yfir þessar stelpur og kalla þær svo mellur. Þeir eru auðvitað
ekkert betri sjálfir og geta í rauninni ekki gagnrýnt þessar stelpur."
— Gerist þetta ekki gjarnan óvart hjá þessum stelpum þegar
þær eru drukknar?
„Stelpa sem ætlar sér ekki að sofa hjá strák fyrr en hún er orðin
VEISTU. . .
að fóstureyðingar sem fram-
kvæmdar eru á stulkum vegna
æsku og þroskaleysis eru flokk-
aðar sem fóstureyðingar af „fél-
agslegum ástæðum“.
að í hinu árvissa frumvarpi um að
skerða réttinn til fóstureyðinga
er lagt til að fóstureyðingar af
félagsiegum ástæðum verði
bannaðar!
að samkvæmt núgildandi lögum
ber yfirvöldum skylda til að veita
fræðslu um kynlíf og barneignir í
skólum landsins en þau sinna
henni lítið sem ekkert!
að við viljum ekki hverfa aftur til ó-
löglegra fóstureyðinga — við
viljum ekki skerða þann rétt sem
konur hafa!
eldri, hún gerir það ekki hvort sem hún er full eða edrú.“
- En hvað með strákana? Reyna þeir að þrýsta á stelpurnar
og fá þær til að sofa hjá sér?
„Jú, jú en það er samt alveg hægt að segja nei við þá. Ég myndi
t.d. ekki sofa hjástrák núna. Mérfinnst engin ástæðatil að flýta sér.
Ef strákarnir geta ekki sætt sig við það þá geta þeir bara farið
annað. Vinkona mín var með einum 16 ára í 6 mánuði og hann var
alvanur en hún bannaði honum að sofa hjá sér og hann sætti sig við
það. Ef þeir geta það ekki, þá eru þeir ekki þess virði.“
— Að lokum. Hvað finnst þér um kynfræðsluna í skólanum?
Finnst þér að hún mætti vera meiri?
„Já, ég veit það ekki. Ég hef ekkert saknað hennar. Það hefur
ekki verið mikið talað um kynferðismál heima hjá mér en mér finnst
ég samt vita þetta nokkuð vel. Ég hefði nú haldið að flestir vissu
a.m.k. aðalatriðin í þessu. Ef maður vill fá að vita eitthvað þá fer
maður bara á bókasafnið eða til vinkonunnar og talar um það við
hana.“
-isg.
15