Vera - 01.12.1983, Side 17

Vera - 01.12.1983, Side 17
4 finnst þaö heldur ekkert voðalegt þótt fleiri stelpur en strákar falli í stærðfræöi í menntaskólum landsins. Mér finnst það hins vegar mjög alvarlegt mál að umönnun sjúkra, uppeldi barna, hreingerningar og fjöldamörg önnur störf, sem konur annast og sem eru undirstaða þess, að menn þríf- ist í umhverfi sínu, skuli vera svo lágt metin sem raun ber vitni. Fyrsta málsgrein 4. greinar frumvarpsins hljóðar svo: „Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf.“ Það er ekki tekið fram hver eigi að verðmeta störfin og allir vita hvaða verðmætamat er í gildi í dag. Hefðbundin kvennastörf hafa löngum lent á botninum þegar á að fara að meta þau til launa. Það er eitthvað meira en lítið rangt við þjóðfélag, sem ætíð og ævin- lega metur ábyrgð á peningum og öðrum veraldlegum verðmætum hærra en ábyrgð á lifandi fólki. En hætta er á, að nýtt mat á störfum verði ekki gert fyrr en konur fá þar eitthvað til málanna aö leggja. Síðasta málsgrein 3. greinar er mjög lýsandi fyrir þann hugsunarhátt, sem tíðk- ast í þjóðfélaginu: „Það telst ekki mismun- un að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar eða bamsburðar." Hvert stefnir þjóðfélag, sem telur viðhald lífsins sér óviö- komandi og einkamál framleiðandans? Mannskepnan ásamt flestum öðrum dýra- tegundum skiptist í tvö kyn til þess að tryggja viðhald lífsins, en þessi mikilvægi liður í öllu sköpunarverkinu kemur þjóð- félaginu svo lítið við, að það telst nauð- synlegt að taka það fram í lögum, að taka beri tillit til hans. Barneignir hafa verið stjórnunartæki til að halda konum niðri en það mætti segja mér að ef konur tækju sig saman og færu í barneignaverkfall í nokkur ár, færi að koma annað og huggulegra hljóð í strokkinn. Kvenfrelsiskonur hafa á undanförnum árum notast við hugtakið „jöfn staða“ í umræðu sinni, einmitt vegna þess að jafnréttishugtakið hefur þá merk- ingu sem hér hefur verið lýst, þ.e. ekki þá, sem kvennahreyfingarnar leggja aðal- áherslu á. Nefnilega, að kynin standi jafn- fætis og hafi sömu möguleika til að hafa áhrif á þróun þess þjóðfélags, sem þau búa í. Að bæði kynin geti gengið til leiks á sínum eigin forsendum og með sína kynbundnu reynslu sem bakhjarl og með það verð- mætamat, sem mismunandi reynsluheimur og menning hefur þróaö hjá hverjum og einum. Ef við gefum okkur, að framangreind túlkun á hugtökunum jafnrétti og jafnstaða sé rétt, hvernig fara þau þá saman í einni og sömu lagagreininni? Hvernig má túlka þá lagagrein? Við fyrstu sýn virðist hún rök- leysa og óneitanlega var mér oft hugsað til þess hversu langt frá raunveruleikanum þessar hugmyndir eru. Gat verið að þessi lög þjónuðu helst þeim tilgangi að fegra yfirborðið á soranum? Ef hins vegar þessar fjórar fyrstu greinar frumvarpsins yrðu túlkaðar á þá leið, að forréttindaaðstaða karla verði afnumin með öllu og rétturinn til að ráðskast með þjóð- félagið eftir eigin hentisemi verði af þeim tekinn: að það verði tryggt að reynsla kvenna, verðmætamat og viðhorf endur- speglist í raun í þjóðfélaginu öllu; að í þessu fælist að störf kvenna yrðu endurmetin og nýtt verðmætamat yrði ofaná; að hæfileiki kvenna til að viðhalda lífi mannkynsins verði vitur og álitinn eðlilegur þáttur í upp- byggingu þjóðfélagsins, já, þá yrði gaman að lifa, enda þyrftu jafnréttislögin þá ekki að vera lengri en þær fjórar greinar. Ingibjörg Hafstað 17

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.