Vera - 01.12.1983, Qupperneq 52
Fréttir frá
Jafnréttisráði
Jafnréttisráð hefur gefið út ritið
„Konur og stjórnmál“ eftir Esther Guð-
mundsdóttur. í ritinu eru að finna upp-
lýsingar sem varða stjórnmálaþátttöku
íslenskra kvenna og er samantekt
upplýsinganna hluti af samnorrænu
verkefni. Jafnframt því sem þetta rit
kemur út á íslensku, hefur útkomið á
norsku bókin „Ófullkomið lýðræði",
sem fjallar um hlut kvenna í pólitík á
Norðurlöndunum yfirleitt.
Bókinni „Konur og stjómmál“ er
skipt í tíu kafla og eru þeir þessir:
Kosningaréttur og kjörgengi, Forseta-
kosningar, Alþingiskosningar, Sveitar-
stjórnarkosningar, Stjórnmálaflokkar,
Konur í Stjórnarráði Islands, Konur í
nefndum, stjórnum og ráðum á vegum
ríkisins og í félagasamtökum, Kvenna-
ár Sameinuðu þjóðanna 1975,
Kvennahreyfingar, Jafnréttisumræða
á Alþingi, en sá síðasti kafli er skrifaður
af Bergþóru Sigmundsdóttur. Tvö
fylgiskjöl eru: fyrst „hugmyndir að
störfum jafnréttisnefnda sveitarfélaga
1983-86“ frá Jafnréttisráði og síðan
Jafnréttislögin 1976. Bókin telur rúmar
120 bls. og er í venjulegu bókarbroti,
kilja. ítarleg heimildaskrá er aftast og
kemur þar fram að nýjustu heimildir eru
frá þessu ári, 1983. Bókin ætti að geta
komið að góðum notum þeim sem
áhuga hafa á að fræðast um stöðu
kvenna í íslenskum stjórnmálum, en
upplýsingar um hana hafa ekki legið
fyrir á einum stað fyrr en núna.
Barmmerki og ráðstefnur
Aðrar fregnir af störfum Jafnréttis-
ráðs má helstar telja væntanlega ráð-
stefnu um tæknivæðingu á vinnumark-
aðinum með sérstöku tilliti til jafnréttis
kynjanna og er þar átt við tölvubylt-
inguná og hlut kvenna á því sviði. Sú
ráöstefna er ráðgerð í febrúar. Þá er nú
verið að undirbúa ráðstefnu um jafn-
rétti og skóla (ráðstefnan hefur enn
ekki fengið titil) en þar mun ráðið hafa í
huga 7. gr. Jafnréttislaganna sem
kveður á um að „í skólum og öðrum
mennta- og uppeldisstofnunum skal
veita fræðslu um jafnrétti karla og
kvenna“ Og: „Kennslubækur og
kennslutæki, sem þar eru notuð skulu
vera þannig úr garði gerð og hönnuð
að kynjunum sé ekki mismunað.“ Sú
ráðstefna verður væntanlega í marz.
Jafnréttisráð hefur látið gera barm-
merki til að minna á tilveru sína og
vekja athygli á málstaðnum. Á merkinu
er merki Jafnréttisráðs og þrír mismun-
andi textar, einn á hverju merki, en þeir
eru á þessa leið: „Stöndum við jafnt að
vígi?“, „Jöfnum metin!“ og „Hallar
nokkuð á þig?“ Merkin kosta 30 kr.
stykkið og eru til sölu á skrifstofu Jafn-
réttisráðs, Laugavegi 116.
Að lokum vill Jafnréttisráð geta
Fréttabréfs, sem það gefur út og geta
þeir sem þess óska, gerst áskrifendur
að því, en það er ókeypis.
ítlUM M
O © '
HVAÐ ER YFIRDÝNA?
Yfirdýna er gerö úr 100% bómullarvatti u.þ.b. 5-6 cm. þykku,
sem orsakar aö þú skorðast sérstaklega vel og hver vöövi fær
stuðning. Þaö er mikilvægt aö hryggstaöan sé bein, svo þú fáir
fullkomna hvíld.
ATH! NÝ OG ENDURBÆTT
ÞJÓNUSTA:
Nú getur þú fengiö
springdýnu, sem hentar
þér nákvæmlega.
Þaö er mjög mikilvægt,
svo þú fáir fullkomna
hvíld og endurnýist
á hverri nóttu.
Komdu því á Smiðjuveginn
til okkar,
viö finnum út hvaö
þér hentar.
DÝNU- OG BOLSTURGERÐIN
SMIÐJUVEGI 28 D, KÓPAVOGI — SÍMI: 79233
LÚXUSDÝNAN
Höfum fyrirliggjandi þrjá stífleika og
fjórar mismundandi geröir.
Auk þessa framleiöum viö dýnuhlífar og
teygjulök frá Tannus.
52