Vera - 01.01.1984, Page 8
Samtök kvenna á
vinnumarkaðinum
Framhaldsstofnfundur samtakanna
var haldinn sunnudaginn 29. janúar s.l.
Fundurinn var vel sóttur og skráðir fé-
lagar eru nú 300 talsins. Margar ályktan-
ir varðandi réttindamál kvenna voru
samþykktar á fundinum eftir umræður
um þær í starfshópum. Ályktanirnar
verða sendar samninganefndum, þar á
meðal má nefna:
Samþykkt var ályktun um atvinnuöryggi
kvenna og þess krafist að lögum og kaup-
tryggingarákvæðum í fiskvinnslu verði
breytt, þannig að ekki verði hægt að segja
fólki upp launum með viku fyrirvara eins
og nú tíðkast. Farið var fram á, að engir
launataxtar verði fyrir neðan lögboðin lág-
markslaun svo og það, að réttindamál
kvenna (s.s. barnsburðarleyfi, veikindi
barna o.fl.) verði ætíð eins og best gerist í
Framhaid á bls. 38
Gefið þeim smjör og ost í nestið.
)
8