Vera - 01.07.1984, Page 14
1
líða betur. Ég hef mikið hugsað um þessi
mál. T.d. í sambandi við svitakófin, ein-
hversstaðar hef ég lesið aö þetta séu
sjokkviðbrögð líkamans vegna hormóna-
minnkunar. Þetta getur valdið miklum
óþægindum og ég er viss um það að ef ég
hefði ekki verið búin að lesa mér til um
þetta þá hefði ég ekki verið jafnvel undir-
búin. í rauninni fór ég mjög vel út úr þessu
miðað við þau óþægindi sem ég fékk.
Það er vitleysa þegar sagt er að það sé
of mikið gert úr breytingaskeiðinu og mað-
ur eigi ekki að vera að ræða þessi mál. Því
fólk á að vita allt um þetta,” segir Þuríður
og leggur áherslu á orð sín, ,,og konur eiga
að vita hverju þær eiga von á — og það á
að virða og taka tillit til þeirra og hjálpa
þeim. Það á ekki að afgreiða þetta sem
móðursýki eins og læknar gera oft. Það á
ekki að gefa konum róandi töflur í stað
þess að ræða málin. Við verðum að kom-
ast til botns í því hvernig á að laga þetta og
hvað er hægt að gera, við eigum heimt-
ingu á því að það verði gerðar rannsóknir
í þessa átt!. . . Það eru gerðar rannsóknir
á öllum sviðum og þetta er nú ekki svo lítið
svið. .
Ég spyr um fyrirlestra Þuríðar. Konur
sækja þá vel, en eru þær tilbúnar að
ræða tilfinningahliðina?
„Já, þær eru tilbúnar og vilja ræða þá
hlið mála mjög mikiö. Ég byrjaði raunar á
þessu í hálfgerðri rælni hér um árið. Ég var
beðin að koma á fund hjá Málfreyjum og
ræða sjálfvalið efni. Síðan átti Áslaug
Ragnars viðtal við mig um breytingaskeið-
ið í útvarpinu í haust og þá reis bylgjan og
eftirþaðhef égfariðvíða. . . ég hefði aldrei
trúað að það væru til svona margir
kvennaklúbbar og samtök, aldrei nokkurn
tíma! Það er yndislegt að koma meðal
þessara kvenna. Ég hef alltaf fengið um-
ræðu, misjafnlega mikla en alltaf skemmti-
lega. Sumar konur eru meira tilbaka en
aðrar eru hressari. Mjög margar konur eru
langt niðri og það eru oft konur sem hafa
alltaf verið í mjög góðu jafnvægi, en svo
við tíðahvörfin er eins og það sé kippt und-
an þeim fótunum og þær eru því óviðbún-
ar.
Konur vilja ræða þetta. Ungu konurnar
eru sérstaklega skemmtilegar, þær hafa
áhuga og eru opnar. Eldri konurnar, þær
sem eru komnar yfir sjötugt eru indælar og
þakklátar, en þær segja lítið. Þegar þær
voru yngri var þetta alls ekki rætt og þær
eru komnar yfir þetta og finnst kannski
óþægilegt að vera að rifja það upp. Ég hef
talað á fundum í allan vetur, eitt til tvö
kvöld í viku og ég hef gert þetta af því að
ég finn þörfina.
Ég hef enga læknisfræðilega kunnáttu,
ég er bara kona sem vil tala við aðrar kon-
ur um það, að það sé mál til komið aö við
vöknum og áttum okkur á því að við eigum
þarna 25 ár sem við verðum að reyna að
tryggja að verði okkur til ánægju en ekki
byrði. Þessi mikli áhugi hjá konum fyrir því
að fá mig til sín og ræða málin kemur ekki
af engu — hann kemur af því að konur
hefur þyrst í þessa umræðu, þær þurfa á
henni að halda. Og svo undrast þær
kannski af hverju ég er í þessu ,,er þetta
ekki Þuríður Pálsdóttir söngkona” segja
þær en það er bara hrein tilviljun að þaö er
ég en ekki einhver önnur!
Ég vona bara að þessar umræður verði
til þess að konur vakni og fari að ræða
þessi mál. Þá er tilganginum náð!”
Hópurinn sem vann að
efnisöflun um tíða-
hvörfin:
Dagbjört Bjarnadóttir,
Guðrún Erla Geirs-
dóttir, Guðrún Jóns-
dóttir og Rannveig
Ólafsdóttir.
HATTABUÐ
REYKJAVÍKUR
FILTHATTAR OG KOLLUR
LÉTTIR SUMARHATTAR OG HÚFUR
STRÁHATTAR margar geröir
ALPAHÚFUR í mörgum litum
SLÆÐUR, SJOL, TREFLAR, GRIFFLUR
ÚRVAL AF HÖNSKUM
MINKASKINNSHÚFUR OG TREFLAR
Sendum í póstkröfu
HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR
Laugavegi 2,101 Reykjavík s: 12123
14