Vera - 01.02.1987, Blaðsíða 29
FJÁR-
LÖGIN
VONDU
Desember er mikill annatími á Alþingi og
standa þingfundir oft langt fram á nótt.
Fjármálin setja þá svip sinn á þingið því
stefnt er að því að afgreiða fjárlögin fyrir
jól. Önnur umræða fjárlaga var 12. des-
ember s.l. og þriðja og síðasta umræðan
föstudaginn 19. og laugardaginn 20. des-
ember.
Margt fróðlegt en oft miður ánægjulegt kemur fram
við fjárlagaumræðuna. Meðal annars varð Ijóst að þrátt
fyrir mikið góðæri er halli fjárlaga allt að þrír milljarðar
króna. Kvennalistinn gagnrýndi harðlega þessa fjár-
málastjórn ríkisstjórnarinnar, þar sem sparnaður hefur
naer eingöngu beinst að félagslegum framkvæmdum
°9 þjónustuþáttum á meðan rekstrargjöldum ráðu-
neyta og sumra rlkisstofnana hefur verið leyft að þenj-
ast út eins og Kristín Halldórsdóttir komst að orði við
aðra umræðu fjárlaganna þann 12. desember s.l. Lág-
taunafólk verður lítið vart viö góðærið og niðurskurður
félagslegrar þjónustu bitnar verst á þeim. Um leiö má
akki heyra minnst á skattlagningu stóreigna, arðs af
hlutabréfum né að íþyngja megi bönkum og verslunar-
fyrirtækjum sem mest hafa notið góöærisins sagði
Kristín.
Niu breytingartillögur
Kvennalistinn lagði fram einar níu breytingartillögur
v'ð fjárlagafrumvarpið og snertu þær aðallega þá mála-
Hokka sem illa hafa orðið úti í meðförum ríkisstjórnar-
'nnar. Því miður á þetta við um mörg málefni en eins og
ðent var á í siðustu Veru hefur varla nokkurt fengið eins
skammarlega útreið og dagvistarmálin. Kvennalistinn
la9ði fram breytingartillögu um að framlag til dagvistar-
^ála yrði hækkað úr 20 milljónum I 173,440 milljónir
s®rn er lágmarksupphæð ef á að vera hægt að mæta
þeim skuldbindingum sem ríkið hefur þegar gert viö
sveitarfélögin um uppbyggingu dagvistarheimila.
Kvennalistinn lagði einnig fram breytingartillögur um
tvöföldun framlags til lista og menningarmála, hækkun
framlags til Háskóla íslands og til Rannsóknasjóðs, um
aukningu á framlagi til ferðamálaráðs, um aukningu á
framlagi til námsefnisgerðar hjá Námsgagnastofnun,
um að framlag ríkissjóðs til Lánasjóðs ísl. námsmanna
yrði aukið um 200 milljónir til þess að minnka lántöku-
þörf sjóðsins, um hækkun á framlagi til Þróunarsam-
vinnustofnunar úr 24 milljónum króna í 92,7 milljónir,
sem er lágmark ef sú stofnun á að geta haldið áfram að
starfa. Kvennalistinn bar einnig fram breytingartillögu
um hækkað framlag til hópleitar að brjóstkrabbameini,
en vorið 1985 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu
Kvennalistans um að hefja slíka leit sem fyrst. Nýr liður
var því tekinn inn í fjárlög þar sem úthlutað er 5 milljón-
um til þess að koma þessu í framkvæmd en áætlaður
kostnaður er 7 milljónir. Guðrún Agnarsdóttir benti á að
þessi niðurskurður yrði til þess að færri konur yrðu
skoðaðar en ætlað var og því legði Kvennalistinn til að
framlagið yrði hækkað um 2 milljónir.
Nýbygging Alþingis
Kvennalistinn lýsti yfir andstöðu sinni við tillögu um
12 milljón kr. framlag til hönnunar nýs húss fyrir starf-
semi Alþingis. Þingkonurnar höfðu áður hafnað þátt-
töku I flutningi tillögunnar og greiddu atkvæði gegn
henni. Kristín Halldórsdóttir sagði að að vísu væri hús-
næðisvandi Alþingis mikill og þungbær en það væri trú
Kvennalistakvenna að þennan vanda mætti leysa á
annan hátt. Benti Kristín á að komið hefur fram mikil
óánægja með verðlaunatillöguna og vitnaði hún í Ragn-
heiði H. Þórarinsdóttur borgarminjavörð og Þór
Magnússon, þjóðminjavörðþarsem þau bendaásögu-
legt gildi og verðmæti gömlu húsanna sem yrðu látin
víkja og hve bygging hússins sem vann í samkeppninni